Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.06.2011, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 24.06.2011, Blaðsíða 60
 Plötuhorn Dr. Gunna regnbogi  Guðjón Rúdolf Margt skratti gott Regnboginn er þriðja platan sem Guðjón Rúldolf og Þorkell Atlason gera saman. Þorkell spilar á alls konar hljóðfæri og semur tónlistina með Guðjóni, sem syngur og semur textana. Líkt og á hinum plötunum þeirra er tónlistin mjög fjölbreytt og þeir hendast óhikað í ýmsa stíla. Límið er söngrödd Guðjóns, sem beitir röddinni á sérstakan hátt og er í nágrenni við Louis Armstrong og Hall- björgu Bjarnadóttur – hefur mjög sérstaka og skemmtilega rödd. Það eru tíu lög á Regnboga og mörg skratti góð. Mjög góðar bakradda- stelpur koma fyrir í bestu lögunum, sem eru seiðandi og hæg, en líka poppuð og sumarleg. Ekki eins frábær og sérstök eru rokkuðu lögin og þunglamalegt lokalag er snarbrött tilraun sem varla er fær. russian Bride  Varsjárbandalagið Með balkið á tæru Íslendingar tengja vel við fjörugu Balkan- sveifluna. Geirfuglar og Spaðar hafa t.d. verið í þessari deild og Orphic Oxtra og Nix Noltes einbeitt sér að sveiflunni. Varsjárbandalagið hefur verið til í tvö ár og líkt og fleiri hendir bandið sígauna- og klezmer-kryddi í súpuna. Þetta er ágætis plata, en kannski ekki saga til næsta bæjar; til þess er hún of hefðbundin. Bandið vindur sér í kunn lög og „balkar“ þau upp eða reynir sig við þjóðlög. Bandið er með stílinn á tæru. Mesta fúttið er í tveimur lögum sem harmóníku- leikari sveitarinnar, Sigríður Ásta Árna- dóttir, semur. Annað þeirra, titillagið, syngur Hera Björk með stæl. Framtíðar- sigrar bandsins hljóta að liggja á þessum slóðum. the optimist  Steve Sampling Músík fyrir mók Fjórða sólóplata Steves Sampling er óröppuð, öfugt við hina fínu Milljón mis- munandi menn, sem hann kom með í fyrra. Þessi er snurðulaus og lágfreyðandi. Það má slengja á hana merkimiðum eins og electro, trip hop og dubstep, sé vilji fyrir hendi. Það er ekki ýkja mikið að gerast á þessari plötu, en hún líður ljúflega í gegn með einstaka ris- köflum, eins og í hinu frábæra titillagi. Upp- byggingin er laumu- pokaleg, mismikið á beinunum og stundum mætti vera feitari „húkkur“. Þegar ég stundaði næturgöltur kom maður stundum í eftirpartí þar sem skuggalegt lið lá í móki og tónar líkir þeim á þessari plötu liðu um vistarverurn- ar. Þetta er því músík fyrir mók, jafnvel fyrir skæða þynnku (steve- sampling.bandcamp. com skaffar dótið).  hrefna Sætran oPnar veitinGaStað á BrunarúStum Grillmarkaður skreyttur mosa og roði Staðurinn er að miklu leyti innréttaður og skreyttur með efni úr íslenskri náttúru, svo sem tré, grjóti, mosa og hlýraroði. Hrefna stendur hér við timburvegg sem skilur langborðsherbergi frá veitingasalnum. Hlaðið stuðlaberg og þurrkaður íslenskur mosi setja sterkan svip á veitingastaðinn. l andsliðskokk-urinn Hrefna Sætran stefnir að því að opna á allra næstu dögum nýjan veitingastað, Grill- markaðinn, í húsa- þyrpingunni sem hefur risið á bruna- rústunum á horni Lækjargötu og Aust- urstætis. Hrefna segir að hún og félagar hennar hafi verið búin að velta stað sem þessum fyrir sér í tvö ár. Þau vantaði aðeins rétta húsnæðið og um leið og þau fengu inni á þessum bletti mið- bæjarins var hafist handa. Staðurinn er hannaður utan um ís- lenskt þema og mun sækja helstu hráefni sín, þar á meðal nauta- og lambakjöt, beint til bænda. Það fer ekkert á milli mála, þegar inn er komið, að staður- inn er rammíslenskur. Hlýraroð er hluti af skemmtilegri veggskreytingu Grillmarkaðarins. Fatahengið er stúkað af með þessum hlaðna trévegg.Iðnaðarmenn eru búnir að vera á þönum undanfarið og leggja nú loka- hönd á verkið. Gengið er inn á veitingastaðinn úr portinu sem vísar út í Austurstræti. 48 dægurmál Helgin 24.-26. júní 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.