Fréttatíminn - 24.06.2011, Blaðsíða 39
V ið erum stödd í blokk í portúgölsku borginni Porto árið 1994. Enski knatt-spyrnuþjálfarinn Sir Bobby Rob-
son, einn sá virtasti á sínu sviði og núverandi
þjálfari Porto, er nýfluttur í blokkina, stendur
á stigapallinum og les bréf frá sextán ára ná-
granna sínum sem vill að átrúnaðargoð hans,
Domingos Paciência, spili meira. Robson
biður hann um rökstuðning og drengurinn
tekur hann á orðinu. Hann skilar skýrslu með
tölfræðilegum staðreyndum til að sanna sitt
mál. Robson verður svo hrifinn að hann tekur
drenginn inn í þjálfarateymi unglingaliðs
Porto og kemur honum til Lilleshall í Englandi
þar sem drengurinn, langyngstur allra, fær
þjálfaragráðu.
Drengurinn sem um ræðir hefur heldur
betur risið til metorða frá þessum tíma og
þótt Robson, sem lést árið 2008, lifi ekki að
sjá afraksturinn, getur hann ekki verið annað
en stoltur af því að hafa átt þátt í því að greiða
götu Andrés Villas-Boas sem þjálfara. Nú,
sautjan árum eftir að þeir hittust í blokkinni
í Porto, er hann yngsti þjálfari sem nokkurn
tíma hefur unnið Evrópukeppni og jafnframt
yngsti þjálfarinn í ensku úrvalsdeildinni eftir
að hann var ráðinn til stórliðsins Chelsea.
Villas-Boas var aðeins 21 árs þegar hann var
ráðinn yfirmaður knattspyrnumála á Bresku
Jómfrúreyjum. Hann stýrði liðinu í tveimur
leikjum, tapaði samanlagt 14-1 fyrir Bermúda
og sagði forsvarsmönnum liðsins ekki hvað
hann væri gamall fyrr en daginn sem hann
hætti.
Eftir ævintýrið á eyjunum, sem þekktari
eru sem skattskjól heldur en fótboltamusteri,
hóf hann störf hjá José nokkrum Mourinho
sem þá stýrði Porto. Villas-Boas vakti fljótt
athygli Mourinhos fyrir að vera með auga fyrir
smáatriðum og hann byrjaði að kortleggja lið
andstæðinganna fyrir Mourinho. Hann fylgdi
honum til Chelsea og þaðan til Inter Milan.
Villas-Boas var í miklum metum hjá Mourinho
sem kallaði hann „augu sín og eyru“. Frægar
eru sögur af Villas-Boas þar sem hann lá í
leyni í runnum við æfingasvæði andstæðinga
Chelsea og safnaði upplýsingum.
Hugur hans stóð alltaf til að stíga út úr
skugga Mourinhos og þjálfa sitt eigið lið. Það
tækifæri kom veturinn 2009 þegar hann ákvað
að taka við Académica de Coimbra í portú-
gölsku deildinni. Liðið var án sigurs þegar
hann tók við en Villas-Boas kom því upp í 11.
sæti deildarinnar og í undanúrslit bikarsins.
Í fyrra tók hann svo við Porto og afganginn
af sögunni þekkja flestir. Sigur í keppninni
um meistara meistaranna í Portúgal, sigur í
bikarkeppninni, sigur í deildinni með 21 stigs
forystu, aðeins þrjú jafntefli og ekkert tap og
sigur í Evrópudeildinni. Slíkur árangur fer
ekki fram hjá neinum. Roman Abramovich,
eigandi Chelsea, var fljótur að grípa tækifærið
og borgaði rúma tvo milljarða til að tryggja sér
þjónustu Portúgalans unga. oskar@frettatiminn.is
fótbolti Chelsea fær nýjan knattspyrnustjóra
Andre Villas-Boas dregur
fram þrjá menn sem hann
kallar lærimeistara sína.
Þeir eru Bobby Robson,
sem kom honum í þjálfun,
José Mourinho, sem tók
hann undir sinn verndar-
væng og hafði hann með í
þjálfarateymi sínu hjá Porto,
Chelsea og Internazionale,
og Pep Guardiola sem
Þrír lærimeistarar
hann segir hafa veitt sér
mikinn innblástur. Hann
tileinkaði þessum þremur
mönnum sigur Porto í
Evrópudeildinni nú í vor. Af
þessum þremur segist hann
þó mest líkjast Robson.
„Margir tala um mig sem
eftirlíkingu af Mourinho en
ég neita því alfarið. Kannski
er ég líkari Robson,“ segir
Villa-Boas. Hann leggur
áherslu á hraðan og frjálsan
sóknarleik eins og Robson
og hugmyndir hans liggja
langt frá hugmyndum Mour-
inho þótt hann viðurkenni
að hann hafi lært mikið af
honum. Hann hitti Guardiola
fyrst í febrúar á þessu ári og
segist bera gífurlega mikla
virðingu fyrir honum.
Bobby
Robson
Jose
Mourinho
Pep
Guardiola
Reifst við
Robson 16 ára
André Villas-Boas var í vikunni ráðinn knattspyrnustjóri Chelsea. Þessi 33 ára þjálfari náði
undraverðum árangri með Porto á síðasta keppnistímabili og stýrði liðinu til sigurs í deild og
bikar í Portúgal, sem og Evrópudeildinni. Hann fer sömu leið og einn af lærimeisturum hans,
José Mourinho, sem yfirgaf Porto fyrir Stamford Bridge.
Fleyg ummæli
Villas-Boas
„Fólk einblín-
ir mikið á vinnu
þjálfarans en
ég sé það ekki
þannig. Ég
er ekki eins
manns sýning.
Fótbolta-
leikur vinnst
ekki á einum
manni heldur
sameiginlegri
getu – gæðum
leikmanna og
uppbyggingu
félags.“
„Ef miðju-
maður vinnur
ekki fyrir mig
þá er ekki pláss
fyrir hann í
mínu liði.“
André Villas-Boas verður fjórði yngsti knattspyrnu-
stjórinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar þegar hann
stýrir Chelsea í fyrsta leiknum í deildinni 15. ágúst
– gegn Stoke á útivelli. Þá verður hann 33 ára og 302
daga. Aðeins Attillo Lombardo, Gianluca Vialli og
Chris Coleman voru yngri þegar þeir stýrðu sínum
liðum í fyrsta leik. Nordic Photos/AFP
fótbolti 27 Helgin 24.-26. júní 2011