Prentarinn - 01.04.1994, Side 2

Prentarinn - 01.04.1994, Side 2
VSK böl bókaútgáfu Georg Páll Skúlason Félag bókagerðarmanna hefur gert könnun á prentstað íslenskra bóka sem birtust í bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 1994.1 bókatíðindum koma þó ekki allar bækur sem unnar eru á árinu 1994. Bókaútgáfa hefur minnkað um ca. 10% milli ára en skv. bókatíðind- um 1993 komu út tæplega 400 titl- ar það ár, en á þessu ári komu að- eins út 356 titlar skv. bókatíðind- unum. Könnunin sýnir aukningu á prentun erlendis úr 19,48% í 22,19%. í þeirri tölu er innifalið allt samprent, þ.e. bækur sem unnar eru að hluta til á íslandi, en prent- aðar erlendis á mörgum tungu- málum samtímis. Ekki eru ná- kvæmar upplýsingar um hve stór hluti er þess eðlis. FBM hefur haldið úti átaki um að fólk kaupi íslenskar bækur unnar á íslandi og hefur orðið nokkuð ágengt í þeirri baráttu, en betur má ef duga skal. Greinilegt er að virðisaukaskatt- ur á bækur hefur haft veruleg áhrif til hins verra á bókaútgáfuna í landinu og því er það skýlaus krafa bókagerðarmanna að hann verði felldur niður strax og bóka- útgáfa hafin til fyrri vegs. Islend- ingar eru bókaþjóð og til að standa undir því nafni þarf að hlúa að bókaútgáfu í landinu. Eftirfarandi listi sýnir fjölda bóka prentaðra í hverju landi: ísland 277 bækur 77,81% Singapore 17 bækur 4,78% Ítalía 13 bækur 3,65% Portúgal 10 bækur 2,81% Danmörk 8 bækur 2,25% Skotland 8 bækur 2,25% Spánn 5 bækur 1,41% Noregur 4 bækur 1,12% Hong Kong 4 bækur 1,12% England 3 bækur 0,84% Þýskaland 3 bækur 0,84% Belgía 3 bækur 0,84% Holland 1 bók 0,28% samtals 356 bækur 100,00% 2 PRCHTARIHH 4/94 NYTT TRUNAÐARMANNARAÐ Auöur Atladóttir, ísafoldarprentsmiöja Axel Snorrason, Svansprent Bergþór Páll Aöalsteinss., Akóplast & POB GuÖrún Guönadóttir, G. Ben. Edda Gunnbjörn Guömundsson, Prentsmiöjan Oddi Hallgrímur P. Helgason, ísafoldarprentsmiöja Hjörtur Reynarsson, Morgunblaöiö Páll E. Pálsson, Offsetþjónustan Jón Úlfljótsson, Steindórsprent-Gutenberg Snorri Pálmason, Morgunblaöiö Stefán Sveinbjörnsson, Prentsmiöjan Oddi Þorvaldur Eyjólfsson, Plastprent Arnkell B. Guömundsson, Elín Siguröardóttir, lceland Review Hinrik Stefánsson, Prentsmiöjan Oddi María Hafdís Kristinsdóttir Stefán Ólafsson, ísafoldarprentsmiöja Þórhallur Jóhannesson, Prisma Guöjón B. Sverrisson

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.