Prentarinn - 01.04.1994, Side 21

Prentarinn - 01.04.1994, Side 21
Saga prentiðn aðar á Islandi LOKSINS ER HÚN KOMIN, SAGAN OKKAR Þóra Elfa Björnsson minningargreinin kom úr setningu var joðið á sínum stað - ég della það. í annarri próförk er það horf- ið - en í þriðju próförk er það komið á sinn stað - nýjum setjara þótti eitthvað vanta. Eg della það. Þegar ég fór heim var greinin komin á síðu og gamla prófarka- skáldið drúpti höfði. Þegar ég fletti blaðinu morguninn eftir draup það höfði. Hvað hafði gerst? Þetta: skáldið leitar alltaf inn á hættusvæðið, inn í óreiðuna sem það dreymir um að koma skikk á. Prentvillupúkinn skelfdi hann og heillaði og slík var kynngin í lokaátökum þeirra að enginn mannlegur máttur gat komið þar nærri. Þetta var síðasta glíma gamla mannsins við erki- óvin sinn; skömmu síðar opnaði hann þá bók sem ein er villulaus og hrein. Þegar mér barst fregnin laut ég höfði. Hölundur er prófarkalesari. Prent eflir mennt er áttunda bindið í Safni til iðnsögu Islendinga og er það væntanlegt á markaðinn þessa dagana því verið er að leggja síð- ustu hönd á útgáfuna en verkið hefur verið nær þrjú ár í smíðum. Höfundurinn, dr. Ingi Rúnar Eð- varðsson, hafði aðstöðu í húsa- kynnum Félags bókagerðarmanna til söguritunarinnar enda hægt um vik að seilast þar til heimilda, bæði á bókasafni FBM og hjá félags- mönnum sjálfum. í bókinni er ekki aðeins um sögulegan fróðleik um iðngrein- arnar að ræða heldur er einnig ít- arlegur bókarauki um letursögu eftir Þorstein Þorsteinsson og er ^ ekki síður fengur að i \ honum. ■ í inngangi Inga Rúnars kemur fram \ að markmiðið með ritinu sé að segja '\ frá breytingum í ||\ sögu prentiðnað- - ar á Islandi hvað varðarfram- leiðsluferli og \ vinnubrögð, \ lýsa verkefn- VP \ um og vinnu- \ stöðum og \ samtökum W \ sem tengjast - ■ \ iðngreinun- \ um. Þannig \ er rakin ______—---------ý" saga fjög- urra iðngreina: setningar, prentunar, prentmyndagerðar og bókbands, en þó er ekki farið þráðbeint eftir tímaröð heldur tek- ið mið af stýrandi tímabilum í sögu íslenskrar prentlistar og sér- kenni hvers þeirra lýst ítarlega. Margur hefur furðað sig á því að prentiðnaðurinn, sem alltaf er að kynna aðra, skuli ekki fyrir löngu hafa prentað sína eigin sögu en nú hefur verið myndarlega bætt úr því. Meðal annars er tekið dæmi af ákveðnu fyrirtæki sem var áber- andi á hverju tímabili svona til glöggvunar. Nokkrar algengar kenningar um þróun iðnaðar eru teknar fyrir svo menn geti betur áttað sig á hvar íslenskur prentiðnaður stend- ur í ljósi þeirra og er ekki síst nauðsyn á því í dag að hafa slíkan sjónarhól svo hægt sé að setja hlut- ina í stærra samhengi ef menn vilja gera raunhæfan samanburð á umhverfi sínu. Sérstaklega er fjallað um starfs- fólk í prentiðnaði bæði faglært og ófaglært, vinnutíma þess og launa- kjör og einnig rætt um samkeppni innlendra aðila og einnig við þá útlendu. Ekki gleymast listamenn- irnir sem unnu við bókiðnir og er æviágrip um 40 manns í röðum tónlistarmanna, rithöfunda, myndlistarmanna og leikara sem hafa unnið sér frægðarorð fyrir sérgáfu sína. Margir hafa komið að tónlistinni en ekki eru færðar sönnur á það í þessari bók hvort það er tilviljun eða hvort takturinn í vélunum hefur einhver áhrif á að laða þá til sín. Prent eflir mennl er eiguleg bók og nauðsyn hverjum sem vill kynna sér þróun og sögu prentiðn- aðar hér á landi. Þessi glæsilega bók er 550 síður að stærð í tólf meginköflum auk bókaraukans. Hún er seld til áskrifenda á kr. 4.000. Áskrifenda- listar liggja frammi á skrifstofu Fé- lags bókagerðarmanna og hjá trúnaðarmönnum félagsins á vinnustöðum. pnEmnm 4/V4 21

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.