Prentarinn - 01.04.1994, Side 16

Prentarinn - 01.04.1994, Side 16
DuPont hefur þróað hugbúnað, HyperColor, sem umritar RGB gögn í CMYK og keyrir út tvö sett af litgreiningum: Hefðbundnar litgrein- ingar fyrir staðallitina fjóra og aukalitgreining- ar fyrir cyan, magenta og gulan. Viðbótarplöt- umar eru notaðar til að styrkja litina á þeim svæðum, þar sem þekjan er 100% á hefð- bundnu plötunum. Dave Rosquist, fyrirlesari á Agfa sýningunni og notandi HyperColor, benti á, að þar sem litimir séu innan CMYK litrúms- ins og unnt sé að notast við hefðbundnar röst- unaraðferðir, sé þessi aðferð ódýrust til raunlitaprentunar. „I raun er verið að þétta þekju, skerpa skil og auka mettun alþakinna flata með því að tvíprenta litinn," sagði Rosquist. Pantone hefur í samvinnu við Kodak þróað sex lita aðferð til raunlitaprentunar og kallar hana Hexachrome. Auk staðallitanna eru not- aðir appelsínugulur og grænn. Enn sem komið er er einungis hægt að keyra út Hexachrome litgreiningar með KEPS PCS100 litstýringar- kerfinu frá Kodak. Richard Herbert, einn af framkvæmdastjórum Pantone, sagði í fyrirlestri á Agfa sýningunni, að litstýringarbúnaður væri öldungis ómissandi, þegar raunlitaprentun væri annars vegar. Herbert sagði, að Pantone héldi sig við sex liti vegna þess, að sjö og átta lita prentvélar væru enn sjaldgæfar en hins vegar væri sex lita vélar víða að finna. Linotype-Hell, Scitex og TransCal em með á döfinni hugbúnað, sem gerir kleift að greina í Þrándur í götu Það sem helst stendur í vegi fyrir, að raunlita- prentun geti orðið almenn, er skortur á pmfu- tækni fyrir fleiri en fjóra liti. Enn sem komið er, eru nánast öll prufukerfi gerð fyrir staðallitina eingöngu og það dugar að sjálfsögðu ekki fyrir fimm, sex eða sjö liti. Sama er að segja um skrársnið. Að vísu er hægt að búa til prufur í fleiri en fjómm litum með Cromalin en nákvæmnin er hins vegar vafasöm. Þá má einnig nefna, að engin stöðluð litasett eru til fyrir sex og sjö lita prentun. Hver fram- leiðandi notar sfna eigin liti. Það sem hér er nefnt, kemur í veg fyrir að raunlitaprentun sé hagkvæmur kostur - hún er enn dýr. En það gæti einnig falið í sér ákveðna möguleika fyrir framsýna menn í prentiðnaði, svo mótsagnakennt sem það kann að virðast. Lítum á sumt af því, sem spekingamir á Agfa ráðstefnunni höfðu að segja. Hægt að hagnast á meðan tæknin er ný Líflegar umræður spunnust um raunlitaprent- un að loknum fyrirlestrum. Menn vom sam- mála um, að raunlitatæknin væri enn á bernskuskeiði en það gæfi í sjálfu sér ýmsa möguleika. Gæði væru ekki lengur samkeppn- isþáttur í hefðbundnum prentiðnaði. Allir gætu prentað svo vel, að vart yrði betur gert með fjórum litum. Því væri lágt verð það eina, sem unnt væri að nota til að ná í viðskiptavini. Það leiddi aftur til þess, að hagnaður minnkaði stöðugt. Hins vegar gætu framsæknar prent- smiðjur notað raunlitaprentun til að selja gæði á háu verði - en aðeins um stundarsakir. Þegar tæknin væri orðin stöðluð, sjálfvirk og allra eign, félli samkeppnin aftur niður á sama stig - verðstríð. Því er um að gera að vera fyrri til en keppinautamir, segja þeir djörfustu, meðan eitthvað er upp úr raunlitaprentuninni að hafa. I/erkefni og horfur Hver skyldu svo helstu verkefni fyrir raunlita- prentun vera? í fljótu bragði virðist sem raunlitir henti vel fyrir alla hágæðaprentun, t.d. auglýsingabæklinga og listaverkabækur. Ellen Philips, markaðsstjóri hjá Pantone, hafði eftir útgefendum auglýsingabæklinga, að algeng- asta orsök þess, að viðskiptavinir, sem keyptu vörur eftir myndum í bæklingum, skiluðu vör- unum aftur, væri léleg litasamsvörun milli myndanna og vörunnar. Hún er þess fullviss, að raunlitir séu svarið við þessu. Önnur verkefni gætu verið veggspjöld og umbúðir svo eitthvað sé nefnt. (Reyndar hefur umbúðaiðnaðnaðurinn prentað með fleiri en fjórum litum um árabil.) Eins og áður var sagt, er raunlitaprentun enn á bernskuskeiði og yrði það um ókomna fram- tíð, ef allir héldu að sér höndum og biðu þess, að tæknin yrði hagkvæm. Talsmenn Davis Inc. raunlitaverkefnisins eru hins vegar nokkuð bjartsýnir og telja, að um aldamótin verði raunlitaprentun 15-20% af allri litprentun í heiminum. Hver skyldi ríða á vaðið hérlendis? 16 PRENTARiNN 4/94

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.