Prentarinn - 01.04.1994, Side 3
Er Island
láglaunaland?
Sæmundur Árnason
Nú þegar samningar
fara í hönd skulum við
gera okkur grein fyrir
því að ísland er eitt
mesta láglaunaland í
Vestur-Evrópu, og laun
prentara eru allt að
helmingi lægri hér en í
öðrum löndum Vestur-
Evrópu.
Hvers vegna þetta er
svo, er erfitt að svara. Er
það stefna stjómvalda
eða vinnuveitenda sem vilja halda
okkur sem láglaunasvæði, eða er
það okkur sjálfum að kenna? A
undanfömum árum höfum við
farið svokallaða þjóðarsáttarleið
sem hefur lækkað verðbólgu og
vexti og komið á stöðugleika sem
er mikils virði.
En á þessum árum hefur launa-
misrétti aukist gífurlega og á með-
an stærsti hluti launafólks hefur
þetta 50 til 70 þús. á mánuði em til
stéttir sem hafa allt að einni millj-
ón á mánuði. Margoft hefur verið
reynt að hækka lægstu laun en án
árangurs, allt ber að sama brunni,
misréttið eykst, því þeir sem hafa
tíföld laun verkamanna og stjóma
landi og fyrirtækjum hafa engan
skilning á högum lægst launuðu
verkamanna. Það virðist í raun
stefna stjórnvalda að halda Islandi
sem láglaunalandi og jafnvel utan
Evrópu og er nú svo komið að
lægstu laun á Islandi em að færast
nær Austur-Evrópu, t.d. Ungveija-
landi.
Ein meginkrafan er snýr að
stjómvöldum er að bæta lífskjör
fólks, t.d. með hækkun á persónu-
afslætti og hækkun skattleysis-
marka. Hefðu stjórnvöld staðið við
sitt á undanförnum árum væm
mörkin 25 þús. kr. hærri nú. Þessu
þarf að ná til baka. Krafan er hærri
skattleysismörk, hærri persónuaf-
slátt, burt með lánskjaravísitölu,
hærri laun.
Þá má minnast á virðisauka-
skattinn sem settur var á bækur og
blöð og varð til þess að mörg blöð
hættu útgáfu, prentun bóka fór úr
landi í verulegum mæli og at-
vinnutækifærum fækkaði í prent-
iðnaði.
Þá þurfum við einnig að huga
að sérkröfum okkar og þar ber
hæst samninginn um vaktavinnu,
vegna þess að atvinnurekendur
virðast túlka hann þannig að hægt
sé að skylda fólk til vinnu á
sunnudögum. Það er algjör mis-
skilningur að hægt sé að þvinga
fólk til að mæta til vinnu
seinnipart sunnudags á grundvelli
okkar samnings. Þetta atriði þarf
að taka föstum tökum.
Félagar, látum það ekki henda
að Island sé einangrað láglauna-
land sem hráefnisþjóð á sömu
kjörum og lönd Austur-Evrópu,
því þá er stutt í Asíu.
prentnrinn
■ MÁLGAGN FÉLAGS BÓKAGERÐARMANNA
Ritnefnd prentarans:
Sölvi Ólafsson, ritstjóri
og ábyrgöarmaöur.
Elín Sigurðardóttir,
Georg Páll Skúlason,
Karl Emil Gunnarsson og
Þorsteinn Veturliöason.
Allt efni og ábendingar um efni er
vel þegiö. Paö eraldrei lengratil okkar
en í næsta síma.
Leturgerdir í Prentaranum eru:
Gill Sans, Palatino, HelveticaCond.,
Adobe Garamond ofl.
Atvinnurekendur ættu aö koma fram
viö starfsfólk sitt eins og þeir vilja aö
starfsfólkiö komi fram við vipskipta-
vininn.
Blaöiö er prentað á Ikonofix special
matt130gr.
Prentvinnsla: ODDI hf.
Skriftin sem prýðir forsíðuna er gerð
af typografernum og myndlistarmann-
inum Torfa Jónssyni. Hún er gerð í
anda gömlu húmanistanna.
Ósknm félagsmönnum gleðilegra jóla
og farscels komandi árs.
Stjórn FBM
PHENUmN 4/94 3