Prentarinn - 01.04.1994, Side 19
Evrópuþing
EGF
ir tveir kæmu frá Þýskalandi og
Spáni.
Aðrar tillögur
Fyrir þinginu lágu 50 tillögur um
hin ýmsu mál, en í umræðum
voru 10 þeirra dregnar til baka.
Flestallar tillögurnar fjölluðu um
það sem við köllum almenn mann-
réttindi og að IGF beini kröftum
sínum að því að bæta öryggis- og
vinnuverndarmál í þróunarlönd-
unum og leggi fram fé og mann-
afla til uppbyggingar verkalýðsfé-
laga og sendi tæknimenn og kenn-
ara til aðstoðar við kennslu í
grunn- og endurmenntun. En viða-
miklar tillögur fjölluðu um endur-
menntunarmál og var samþykkt
að IGF beindi kröftum sínum að
þessum verkefnum.
Margar tillögur og miklar um-
ræður urðu um vaktavinnu og
kom fram veruleg andstaða gegn 7
daga vaktavinnu, ályktað var að
vinnuvikan væri aldrei lengri en 5
dagar og frí ávallt 2 dagar.
Kvennanefnd IGF
Ákveðið var að stofna kvenna-
nefnd innan IGF og skyldi stjóm
ásamt fulltrúum frá Spáni og Italíu
vinna að málinu. Nefndin skal
skipuð fimm fuUtrúum og vinna
að jafnréttismálum.
Starfskjör
Þingið lagði áherslu á að unnið
yrði næstu ár að upplýsingabanka
um laun og önnur starfskjör í að-
ildarlöndunum, til að auðvelda fé-
lögunum að samræma kjör sín við
það sem best væri.
Kosningar
Hörð átök urðu um kosningu aðal-
ritara en þar vom þrír tilnefndir,
þeir Olav Boye frá Noregi, Chris
Harding og Chris Pate frá
Englandi sem var starfsmaður IGF.
Á þinginu urðu miklar umræður
um hver hinna þriggja hefði mest
fylgi. Ljóst var eftir fundi fasta-
nefnda að enginn þeirra hefði 50%
fylgi eins og áskilið er í lögum. Þar
sem Olav hafði aðeins stuðning
Norðurlandanna var ákveðið í
samráði við hann að draga fram-
boðið til baka.
Áhugi var fyrir því innan NGU
að styðja Harding, en ekki varð
samstaða um það, þannig að hver
fulltrúi hafði frjálsan atkvæðisrétt.
Fastanefndin lýsti yfir stuðningi
við Harding. Síðan var gengið til
kosninga og fengu þeir Harding
og Pate 15 mín. hvor til að kynna
sig og útskýra hvað þeir legðu
áherslu á í starfi IGF og sátu síðan
fyrir svömm í aðrar 15 mín.
Harding lagði megináherslu á
innri mál IGF en Pate lagði aftur á
móti meira upp úr alþjóðasam-
starfi. Spumingamar voru mjög
hvassar og oft á tíðum á mörkum
velsæmis. Síðan var gengið til
kosninga og var Pate kjörinn með
105 atkvæðum en Harding fékk 86
atkvæði.
Stjórnarkosning
Formaður IGF var kjörinn René
van Tilborg frá Hollandi, en vara-
formenn þeir Tony Dubbings,
Englandi, Lucio Castillo, Arg-
entínu, Michel Muller, Frakklandi,
og Finn Erik Thoresen, Noregi.
Norrænir fulltrúar í fastanefnd
eru Tom Durbing, Danmörku,
Penti Levo, Finnlandi, og Valter
Carlsson, Svíþjóð.
Næsta þing IGF verður haldið
1998 en stað og stund ákveður
fastanefnd.
Sæmundur Árnason
Fjórða þing Evrópusambands
bókagerðarmanna (EGF) hófst 9.
nóvember með fundi í fastanefnd
sem yfirfór þær tillögur og tilnefn-
ingar er fyrir lágu. Englendingar
lýstu því strax yfir að þeir myndu
draga tilnefningu Hardings til að-
alritara til baka þannig að full
samstaða skapaðist um allar til-
nefningar til stjórnar og fasta-
nefnda (aðild að EGF eiga 28 þjóð-
ir). Formaður EGF, Bryn Griffiths,
setti þingið. Hann taldi miklar
breytingar framundan í starfi EGF
þar sem nánast öll lönd Evrópu
væm á leið inn í Evrópusamband-
ið og EFTA væri að lognast út af,
því væri ljóst að samtök okkar
myndu starfa eftir Maastricht-
samkomulaginu á næstu árum.
Starfsskýrslur
Litlar umræður urðu um skýrslu
stjómar, í og með vegna þess að
margt var sammerkt með skýrsl-
um á IGF þinginu. Tony Dubbing
ræddi um þau gjöld er aðildarfé-
lög inntu af hendi til IGF og EGF,
ljóst væri að mörg félög greiddu
hálft gjald og sum ekki neitt,
vegna fjárhagsörðugleika, því væri
spuming hvort þau ættu að hafa
skertan atkvæðisrétt eða engan.
Fulltrúi Danmerkur flutti
skýrslu um verkefnið Subsprint en
það er um nýtt þvottaefni er kem-
ur í stað þeirra leysiefna sem not-
uð em til þvotta á prentvélum (á
næsta ári mun FBM ásamt Iðn-
tæknistofnun og Prenttæknistofn-
un vinna að Subsprint verkefni).
Fulltrúi Noregs flutti skýrslu
um evrópska verkalýðsáætlun.
Samþykkt var að vinna hana
áfram þegar séð yrði hvaða lönd
yrðu innan ESB, því ef öll lönd
kæmu í ESB og EFTA legðist niður
myndi mjög margt breytast í fé-
lagsmálum í Evrópu.
Fulltrúi Svíþjóðar flutti skýrslu
um alþjóðafyrirtæki í prentiðnaði
en þar hefur verið umiið að sam-
ræmdum samningi, án árangurs til
þessa.
Tillögur
Fyrir þinginu lágu 18 tillögur til
laga- og reglugerðarbreytinga,
þeim mátti skipta í þrjá flokka:
Stuðning og aðstoð við lönd Aust-
ur-Evrópu, endurbætur á gmmi-
og endurmenntun og samvinnu og
samræmingu á samningum.
Samþykkt var að styðja lönd
Austur-Evrópu í grunn- og endur-
menntun með því að kosta leið-
beinendur. Halda áfram því starfi
er unnið hefur verið í samræm-
ingu sveinsprófa og vinna áfram
að samræmdum kjarasamningi.
NGU lagði fram lagabreytingu
um að þing yrði á fjögurra ára
fresti og að fastanefnd kæmi sam-
an árlega. Þetta var samþykkt að
hluta þannig að fastanefad kemur
saman árlega, en tillögum um að
fella þing alveg niður eða hafa þau
á fjögurra ára fresti var vísað til
stjórnar og fastanefndar ásamt
öðrum breytingum en samþykkt
að athuga með þing eftir tvö ár.
Kvennanefnd
Samþykkt var að stofna kvenna-
nefnd innan EGF á sömu nótum
og var samþykkt á IGF þinginu.
Kosningar
Þinginu lauk með kosningu for-
manns, varaformanna og aðalrit-
ara.
Formaður EGF er Tom
Durbbing, Danmörku, og varafor-
menn þeir Tony Dubbings, Eng-
landi, Detlef Hensce, Þýskalandi,
Silvano Landoni, Ítalíu, Michel
Muller, Frakklandi, og René van
Tilborg, Hollandi. Aðalritari var
kjörinn Chris Pate.
Þá var kosið í fastanefnd og á
FBM þar sinn fulltrúa sem er Sæ-
mundur Árnason.
PRENTARINN 4/94 19