Prentarinn - 01.04.1994, Page 6

Prentarinn - 01.04.1994, Page 6
Hermann Zapf - skrifari og leturhönnuður Þorsteinn Þorsteinsson ^ABCDEFGHIJKL M NOPQRSTUVW Cadigraphy CPXY7 , is ditfinguisfitd fy íarmony ofsfyfuj It is conscious oj tíc mctftods dy wíicf ityets its resuCt- Itsfonns arc dcjhutc■ e a lowe í leysiprenturunum frá Apple eru nokkrar leturtegundir innbyggðar, þar á meðal þrjár eftir einn og sama manninn. Tvær eru við hann kenndar: skrifletrið Zapf Chancery og merkjafonturinn Zapf Ding- bats, en þriðja letrið er sýnu frægast og heitir Palatino. Höfundurinn er Hermann Zapf, Þjóðverji sem fáir draga í efa að sé merkasti letursmiður sem nú er á lífi. Og þyki mönnum það ekki nóg þá má geta þess að hann er einnig að flestra dómi fremsti skrifari á seinni hluta aldarinnar. Vinur minn Gunnlaugur SE Briem telur jafnvel að hann sé mesti skrautskrifari allra tíma. Zapf hefur sumsé markað djúp spor bæði í kallígrafíu og týpógrafíu aldarinnar og því er sú spurning nærtæk hvernig tengsl- um þessara þátta sé háttað í verki hans. Má greina áhrif skrifarans hjá leturgerðar- manninum? Skrautskrift er list, um það er ekki deilt, en eiga kallígrafísk áhrif heima í leturgerð? Þarf letur ekki umfram allt að hafa notagildi, skiptir fríðleiki þess nokkru máli, er ekki nóg að það sé læsilegt? Um þetta eru menn ekki á eitt sáttir, en þetta eru spurningar sem vert er að velta fyrir sér þó hér sé ekki rúm til að ræða þær af neinu viti. Hermann Zapf fæddist í Núrnberg í Þýskalandi 1918 og varð því 75 ára í fyrra. Kornungur tók hann að leggja sig eftir skrautskrift, þegar hann hafði séð sýningu á verkum eftir Rudolf Koch sem var einn fremsti skrifari og leturgerðarmaður Þjóð- verja á fyrstu áratugum aldarinnar. Arang- ur Zapfs varð brátt ótrúlegur, og þeim mun ótrúlegri sem hann naut engrar tilsagnar í listinni. f stríðinu fékkst Zapf við kortagerð en varð listrænn stjórnandi hjá Stempel- letursmiðjunni fljótlega eftir að því lauk. Hann vakti fyrst verulega athygli 1949 fyrir skriftarbók sem hann hafði lokið við í upphafi stríðsins og var einn samfelldur óður til skriftar og leturs og orðsins listar. Nýtt letur var á inngangi bókarinnar, kennt við ítalska 16. aldar skrifarann Palatino, sem síðan var gefið út ári síðar. Það var endurreisnarletur (garaldi) með greinilegum áhrifum frá skrift einsog sjá mátti á ýmsum stöfum, td. X, x og Y; með- al annarra einkenna má nefna að innrými stafa á borð við a, e og g var mjög mikið í samanburði við helstu garalda einsog Garamond og Bembo. Skáletrið var óvenju lítið hallandi og áberandi ,fallegt'. Yfirleitt er skáletur mun miður læsilegt en beina letrið en það verður naumast sagt um PALATiNO-skáletrið. Enda er það oft notað í samfelldu máli þegar þörf er á fal- legu og læsilegu letri, meðal annars í kvik- myndum og sjónvarpi. f samfelldum texta er beina letrið dálítið vandmeðfarið, enda hugsaði Zapf það ekki sem bókaletur held- ur sem auglýsingaletur fyrst og fremst. Hann hannaði því annað afbrigði, að ýmsu leyti reglulegra, sem almennt bókaletur. Það heitir Aldus og er notað á þessari grein; því fylgja hásteflingar og lágstafa- tölur en ekki feitt letur, enda þarf yfirleitt ekki á því að halda við bókaprentun. Þrátt fyrir þetta hefur Palatino alltaf verið eft- irsótt bókaletur, og í fyrra taldist mér til að það hefði verið þriðja algengasta letrið á ís- lenskum bókum. Letrið Melior af leturætt egypta sem kom út 1954 var einnig verulega nýstár- legt. Sporöskjuform setja mestan svip á letrið; O-in eru einkar athyglisverð: kannski er þar kominn sá „ferhyrndi hringur" sem löngum hafði verið talið að ekki væri til. Melior var hugsað fyrst og fremst sem blaðaletur, það er ákaflega læsilegt en hefur um leið yfir sér þennan þokka sem alltaf virðist fylgja letri Zapfs. Um 1952 fór Zapf að huga að leiðum til að bræða saman antíkvu og steinskrift með einhverjum hætti. Honum þótti lítið til þeirrar steinskriftar koma sem mest var notuð og vildi freista þess að gera nýja sem væri bæði þokkafyllri og læsilegri. A ftalíu fann hann áletranir frá 15. og 16. öld þar sem stafir voru þverendalausir en höfðu samt ýmis einkenni fornaleturs, bæði í hlutföllum og annarri gerð. Þessum rann- 6 PRENTARINN 4/94

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.