Prentarinn - 01.01.1998, Blaðsíða 9

Prentarinn - 01.01.1998, Blaðsíða 9
 — • • • e e e í ff> mmk • .jgjaR& KAGERÐARMENN ■ ■■ vinnuviku voru svo sett 1971 áttum við ekki að fá neitt en önnur stéttar- félög fengu vinnutímastyttinguna á silfurfati. Því vildum við ekki una og þau átök enduðu sem sagt með því að við fengum m.a. 1% tillag at- vinnurekenda í sjúkrasjóð. Nú, mér fínnst einnig mjög eftir- minnilegt þegar okkur tókst að fá samþykkt að konur sem höfðu unnið sex ár í faginu gátu farið á námskeið og síðan tekið sveinspróf." Ertu sáttur við starfslokin? „Já, ég er mjög sáttur. Það er afskaplega gott að geta minnkað við sig vinnuna og hafa tíma til að sinna áhugamálunum. Oft hef ég þurft að taka erfíðar ákvarðanir, en ég hef lagt allt í sölurnar og ég stend og fell með mínum ákvörðunum. Eg hef alltaf reynt að breyta eftir bestu samvisku og þegar þannig er þá hættir maður sáttur." Já, Svanur hefur séð tímana tvenna. Hann hefur tekið þátt í baráttunni fyrir öllum þeim félags- legu réttindum sem við teljum svo sjálfsögð að við hugsum ekki einu sinni um að einhverjir hafí þurft að berjast fyrir þeim. Sjúkrasjóður, fræðslusjóður, lífeyrissjóður, atvinnuleysistryggingar, 40 stunda vinnuvika. Svanur og félagar hans eru mennimir sem gáfu okkur þessi réttindi. Þeir börðust fyrir þeim, fómuðu tíma sínum og fjölskyldulífi og stundum jafnvel atvinnunni. Þeir voru hugsjónamenn sem bám hag samferðamanna sinna fyrir brjósti og höfðu réttlætistilfinninguna að leiðarljósi. Svanur er ekki horfínn úr húsi Félags bókagerðarmanna. Hann hefur fengið til afnota herbergi í kjallaranum og er byrjaður að viða að sér bókbandsáhöldum. Þar ætlar hann að sinna sínum hugðarefnum. Við, sem söknum hans af skrifstof- unni munum geta heilsað upp á hann þarna í kjallaranum og enn um sinn getum við bergt af viskubrunn- inum og sótt okkur þekkingu úr hans hafsjó af fróðleik. ■ PRENTARINN ■ 9

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.