Prentarinn - 01.01.1998, Blaðsíða 23

Prentarinn - 01.01.1998, Blaðsíða 23
SVAR VIÐ LESENDABRÉFI ■■■ Er skynsamleg gagnrýni að líða undir lok? Svar við grein Finiis Eiríksson- ar í Prentaranum 3.17.97 um að Prenttœknistofn- un sé að líða undir lok. Frá því að Prenttæknistofnun var stofnuð hefur verið hlustað eftir þörfum prentiðnaðarfólks varðandi námskeiðahald. Margar ágætar ábendingar höfum við fengið um námskeið og námskeiðahald. Oft hefur mér þó fundist að heldur lítil gagnrýni væri á starfsemi stofnunar- innar. Þegar ég sá að loksins var ein- hver að gagnrýna starfsemina í síð- asta tölublaði Prentarans verð ég að játa að ég varð spenntur að sjá um hvað greinin fjallaði. Ekki leist mér á fyrirsögnina þar sem spáð var endalokum Prenttæknistofnunar. Þetta hlaut að vera alvarlegt mál sem ekki væri hægt að svara eða leysa með símtali. Eg verð hins veg- námskeiða, sum eru gömul og búið að margkeyra. Önnur eru ný og þarf að auglýsa þau upp. Stundum þarf að fá tíma til að átta sig á nýjum nám- skeiðum og þörfinni fyrir þau. Þó að við þurfum að fella niður og fresta námskeiðum látum við það ekki trufla okkur og höldum áfram að bjóða upp á þessi námskeið þangað til þau taka við sér. Námskeið hafa alltaf verið felld niður ef ekki fæst næg þátttaka. Þannig hefur það alltaf verið hjá okkur (og öðrum námskeiðahöldurum). Þetta hefur komið fram í námskeiðaskránni okkar. Það ætti að vera öllum ljóst sem sækja námskeið til okkar að hæfð með litl- um mark- hóp. Að nám- skeið séu „blásin af hvert á eftir öðru“ er því ekki rétt. Við lítum svo á að námskeið sé í raun aldrei fellt niður heldur ein- ungis frestað þangað til næg þátttaka~ fæst. Finnur segir að ekki hafí verið hringt í hann og látið vita af frestun námskeiðs sem hann var búinn að skrá sig á. Það var margbúið að reyna að ná í hann. Það má benda á að Finnur vinnur á stórum vinnustað með vaktavinnu. Ef ekki næst í fólk er síðasta hálmstrá okkar að biðja Þó að við þurfum að fella niður og fresta námskeiðum látum við það ekki trufla okkur og höldum áfram að bjóða upp á þessi námskeið þangað til þau taka við sér. ar að játa að vonbrigði mín urðu mikil þegar ég las greinina. Tvennt er einkum gagnrýnt. Ann- ars vegar að námskeið féll niður og hins vegar bflastæðaskortur í ná- grenni stofnunarinnar. Finnur er mjög þungorður í garð Prenttækni- stofnunar og lætur m.a. eftirfarandi orð falla: „Eitthvað virðist vera að dofna yfir stofnuninni", „Prent- tæknistofnun komin að fótum fram“, „get ekki hvatt fólk til að sækja ti! Prenttæknistofnunar eftir þetta“, „núna er eitthvað mikið að hjá þessu fyrirtæki". Ef þessi þungu orð væru rökstudd í grein Finns væri ástæða til að taka Prenttæknistofnun til alvarlegrar endurskoðunar en svo er ekki í þessu tilfelli. Árlega sækir u.þ.b. helmingur starfsmanna prentiðnað- arins námskeið hjá Prenttæknistofn- un og varla væri þessi góða aðsókn HJÖRTUR ef stofnunin væri komin að fótum GUÐNASON fram. Árlegaer boðið upp áfjölda ekki er hægt að halda námskeið fyrir 2-3 þátttakendur. Það kemur fyrir að við erum með fullbókað nám- skeið en þegar við hringjum út nokkrum dögum fyrir námskeið til að fá staðfestingu á þátttöku eru kannski fleiri en einn hættir við af ýmsum ástæðum. Þess vegna kemur það fyrir að við vitum ekki sjálf fyrr en einum degi fyrir námskeið að það verður að fella það niður. Þetta er að sjálfsögðu mjög bagalegt fyrir aðra þátttakendur, leiðbeinendur og okk- ur. Við þessu er lítið hægt að gera. Ég leyfi mér samt að fullyrða að töluvert minna er um að við fellum niður námskeið en aðrir tölvuskólar. Stafar það af því að við dagsetjum aðeins örfá námskeið í upphafí ann- ar og bætum svo við eftir þörfum. Á síðastliðnu ári voru haldin fjölmörg námskeið hjá Prenttæknistofnun og einungis örfá voru felld niður eða þeim frestað. Af þessum námskeið- um voru nokkur ný en hin voru sér- vinnufélaga viðkomandi starfs- manns að koma skilaboðum til hans. Eitthvað hefur það misfarist hjá þessum starfsmanni í önn dagsins. Seinni hluti greinarinnar fjallaði um bílastæðaskort og slæma stað- setningu Prenttæknistofnunar. Það get ég ekki samþykkt. Tvö stór bíla- stæðahús eru í næsta nágrenni. Það sem nær er, er í næsta húsi við stofnunina og hitt í u.þ.b. 5 mín. göngufæri, en það er gegnt húsi Fé- lags bókagerðarmanna. Einnig hafa verið lagfærð bílastæði á bak við húsið og eru þar mjög oft laus stæði. Að lokum óska ég eftir að fá gagnrýni á starfsemi Prenttækni- stofnunar. Hvað finnst ykkur um námskeiðin? Hvaða námskeið vantar? Eiga þau að vera lengri eða styttri? Takið þátt í að stjóma og móta eftir- og símenntun ykkar. Allar góðar athugasemdir og tillögur em teknar til alvarlegrar athugunar. ■ PRENTARINN ■ 2 3

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.