Prentarinn - 01.01.1998, Blaðsíða 24

Prentarinn - 01.01.1998, Blaðsíða 24
PRENTÞJÓNUSTAN EHF./LJÓSM.: SIGURBERGUR M. ÓLAFSSON mtök bókagerdarmanna í 100 ár og stéttartal ÞJÓÐSAGA Verkið er gefið út í samvinnu við Félag bókagerðarmanna, og er tvíþætt, 100 ára afmælisrit samtaka bóka- gerðarmanna og stéttartal þeirra í 400 ár. ehf Dvergshöfða 27 • Sími 567 1 777 • Fax 567 1 240 í afmælisritinu, sem ber nafnið Samtök bókagerðarmanna í 100 ár, er ítarlega fjallað um þau samtök sem bókagerðarmenn hafa átt með sér allt frá því að Prentarafélagið í Reykjavík var stofnað árið 1887. Frásögnin er byggð á fjölþættum heimildum, prentuðum, rituðum og munnlegum og krydduð með ljóðum og skemmtilegum frásögnum. Rúmlega 200 Ijósmyndir prýða bókina, sem er 712 bls. Höfundur er dr. Ingi Rúnar Eðvarðsson. Nýtt stéttartal bókagerðarmanna tekur við af nokkrum eldri ritum einstakra greina innan stéttarinnar sem sameinuðust í Félagi bókagerðarmanna árið 1980 en er mjög aukið rniðað við þau.Verkið hefur að geyma æviskrár 2.220 manna þar sem tugþúsundir íslendinga korna við sögu. Það er í tveimur bindum, alls 824 bls. Ritstjóri er Þorsteinn Jónsson ættfræðingur.

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.