Prentarinn - 01.01.1998, Síða 18

Prentarinn - 01.01.1998, Síða 18
■ ■■ FÉLAGSMÁL Sameinaði lífeyrissjóðurinn Stofnun séreignardeildar Traust staða Sameinaða lífeyrissjóðsins í árslok 1997 þrátt fyrir mikla aukningu lífeyrisréttinda. Rekstrarárið 1997 erfyrsta heila árið í rekstri sjóðsins eftir að endan- legri sameiningu fimm lífeyris- sjóða við sjóðinn fór fram 1. apríl 1996. Mikil aukning iðgjalda og góð raunávöxtun sjóðsins á árinu 1997 Iðgjaldatekjur sjóðsins jukust um 15,7% á milli áranna 1996 og 1997. Raunávöxtun þegar tillit hefur verið tekið til hækkunar neysluverðsvísi- tölu var 8,4% og hrein raunávöxtun, þegar tillit hefur verið tekið til rekstrarkostnaðar var 8,2% í saman- burði við 8,0% árið áður. Kostnaður í hlutfalli við eignir nam 0,1 %. Lífeyrisgreiðslur á árinu 1997 voru 720,5 millj. kr. og jukust um 13,4% á árinu bæði vegna fjölgunar lífeyrisþega og hækkunar lífeyris- greiðslna l.júlí 1997. Lífeyris- greiðslur sjóðsins fylgja almennt hækkun vísitölu neysluvöruverðs, sem hækkaði um 1,8% milli áranna 1996 og 1997. lífeyrissjóÖurinn Hækkun lífeyrisréttinda 1. júlí 1997 Hinn 1. júlí 1997 varreglum við útreikning elli- og örorkulífeyris breytt þannig að stuðull við útreikn- ing ellilífeyris hækkaði úr 1,4 í 1,5 eða 7,1% við 67 ára aldur og stuðull til útreiknings örorkulífeyris hækk- aði með sama hætti. Þessi aukning réttinda kostaði 2,7 milljarða króna. Nýjar matsaðferðir við útreikning lífeyris- skuldbindinga Við tryggingafræðilega úttekt á sjóðnum í árslok 1997 voru teknar í notkun nýjar útreikningsreglur m.a. nýjar töflur um lífaldur, sem sýna að lífaldur karla hefur hækkað verulega á síðustu 5 árum. Matsreglur þessar hafa verið settar sameiginlega af félagi tryggingastærðfræðinga og samtökum lífeyrissjóða. Kostnaðar- auki sjóðsins vegna þessa er 1,65 milljarðar króna. Góð staða þrátt fyrir mikla aukningu skuldbindinga Þrátt fyrir að skuldbindingar sjóðs- ins hafi aukist annars vegar vegna aukningar á lífeyrisréttindum og hækkun lífeyrisgreiðslna 1. júlí 1997 og hins vegar vegna þess að kostnaður við greiðslu ævilangs líf- eyris hefur aukist verulega er staða sjóðsins góð. Vegna góðrar ávöxtun- ar sjóðsins á hann þrátt fyrir allt verulegar eignir umfram skuldir. Eignir sjóðsins umfram skuldbind- ingar í árslok 1996 námu 1,6 millj- örðum króna og í árslok 1997 1,8 milljörðum króna. Sú rekstrar- hagræðing sem orðið hefur með sameiningu 7 lífeyrissjóða í Samein- aða lífeyrissjóðnum er nú þegar farin að skila sér og á enn eftir að gera það á næstu árum. Stofnun séreignar- deildar við sjóðinn 20. janúar 1998 Við stofnun Sameinaða lífeyris- sjóðsins 1992 var ákveðið að sjóður- inn gæfi sjóðfélögum sínum kost á því að auka lífeyristryggingar sínar, annars vegar með því að greiða til séreignardeildar og hins vegar með því að bjóða upp á líftryggingar. Akvæði þess efnis að stofna séreignardeild var samþykkt á aðalfundi sjóðsins 1993 en fjármála- ráðuneytið neitaði að staðfesta breytingar á reglugerð sjóðsins til Aðalfundur sjóðsins verður haldinn 18. maí nk. Lífaldur karla hefur hækkað verulega á síðustu 5 árum samræmis við það. Eftir árangurs- laus fundarhöld með fjármálaráðu- neytinu ákvað sjóðurinn að leita álits Umboðsmanns Alþingis á laga- legri stöðu ráðuneytisins að synja sjóðnum um stofnun slíkrar deildar. Hinn 8. janúar 1998 skilaði Um- boðsmaður áliti sínu þar sem skýrt kemur fram að ráðuneytinu hafi ekki verið þetta heimilt. f kjölfar þessa ákvað sjóðurinn að óska enn á ný eftir staðfestingu ráðuneytisins á starfrækslu séreignardeildar við sjóðinn og staðfesti ráðuneytið stofnun séreignardeildar við sjóðinn 20. janúar 1998 og tók hún þá sam- dægurs til starfa. Séreignardeildinni er ekki ætlað að koma í stað sam- tryggingar sjóðsins heldur er hún hugsuð sem góð viðbót. Sérstaklega hjá þeim sem vilja draga úr vinnu áður en þeir ná ellilífeyrisaldri eða ef sjóðfélagar vilja hafa ríkulegri ellilífeyri fyrstu árin eftir að taka ellilífeyris hefst. Aöalfundur sjódsins 18. maí nk. Aðalfundur sjóðsins verður haldinn 18. maí nk. A fundinum verður gerð grein fyrir starfsemi hans á árinu 1997 og ræddar tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins m.a. vegna nýrra laga um starfsemi lífeyris- sjóða, sem taka gildi 1. júlí nk. Ljóst er að sjóðurinn uppfyllir öll skilyrði laganna, en hann þarf hins vegar að breyta samþykktum sínum í nokkrum atriðum til samræmis við lögin. Aðalfundir sjóðsins hafa allt frá stofnun hans verið opnir öllum sjóðfélögum. ■ 1 8 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.