Prentarinn - 01.09.1999, Qupperneq 5

Prentarinn - 01.09.1999, Qupperneq 5
Georg Páll Skúlason ræðir við Birgi Jónsson prentrekstrarfræðing Hann lagði land undir fót að ioknu sveinsprófi í prentun sem hann tók í Prentsmiðjunni Odda árið 1996 og fór í fram- haldsnám við London College of Printing. Námið stóð í þrjú ár og nú er hann útskrifaður með BA próf í prent- rekstrarfræðum (Print- ing Management). Prentarinn spjallaði við Birgi Jónsson þegar hann hóf námið í des- ember 1996 (4. tbl) og ákvað að heyra í honum aftur núna þremur árum síðar og vita hvað á daga hans hefði drifið og hver framtíðin væri hjá honum þegar fjár- freku námi væri lokið. Til hamingju með útskriftina, Biggi. áhugavert en langaði samt að vinna mig upp í eitthvað sem tengdist meira mínum bakgrunni eða menntun. Eg var búinn að ákveða að sjá hvemig málin hefðu þróast eftir eitt ár og sjá hvort ég væri kominn í starf sem ég fyndi mig í. Ég sat síðan á skrifstofunni dag einn þegar síminn hringdi aftur, í honum var framkvæmdastjóri RRD í Evrópu og Asíu og vildi hún fá að vita hvort ég væri mjög upptekinn. Ég gat ekki sagt að ég væri það og bað hún mig þá að vera kominn út á flugvöll eftir 3 tíma af því að ég væri að fara til Sviss að vinna alla helgina. Ég stökk af stað með ekkert í hönd- unum nema vinnuseðilinn af verkinu og nafnið á manninum sem átti að hitta mig á flugvellin- um. Ég fór beint í smiðjuna sem var að vinna verkefni fyrir okkur og var á staðnum alla helgina. Þegar ég kom síðan í vinnuna eftir svefnlausa helgi var ég kall- aður inn á teppi og sagt að ég væri kominn með nýja vinnu og titil. Núna er ég einn af 4 fram- leiðslustjórum fyrirtækisins og er mjög ánægður í þessu starfi þó að það sé krefjandi og vinnutíminn langur og óreglulegur. Þar sem við höfum í raun enga fram- leiðsluaðstöðu í Evrópu sjálfir þá felst mitt starf í að finna fyrirtæki sem geta unnið fyrir okkur og samhæfa síðan alla aðila tækni- lega til þess að tímasetningar og áætlanir standist. Það eru allnokk- ur ferðalög sem tengjast þessu vegna þess að við notum mjög oft smiðjur í nokkrum löndum til að vinna hvem samning til þess að vera fljótari að dreifa bókunum. Þessi verk geta verið frá 1000 eintökum upp í 1 milljón eintaka og við höfum frekar lítinn tíma til að klára þau. Til að gefa fólki smá hugmynd um hraðann þá get ég sagt að ef verk er 14 arkir s/h, kápa í 5 litum og lökkuð og upp- lagið 5000 fræstar bækur, þá líða aldrei meira en 12 tímar frá því að ég sendi skjalið í smiðjuna þangað til bækurnar eru farnar í dreifingu. Þannig að það er oft líf í tuskunum." Hvemig er þetta borgað? „Eðli málsins samkvæmt er ekki neinn kauptaxti sem menn fá borgað eftir, heldur er hver og einn metinn sérstaklega og eru samningar skoðaðir og bættir reglulega. Ég var mjög heppinn með vinnu og hlutirnir em búnir að gerast mjög hratt hjá mér á þessu hálfa ári sem ég er búinn að vera að vinna. Ég er mjög ánægð- ur með mín laun og hlunnindi og fjárfestingin í náminu sýnist mér borga sig á örfáum árum.“ Eru mögnleikar miklir fyrir nýútskrifaða nema að fá starfað námi loknu? „Það verður að segjast eins og er að prófið er ekki sjálfsagður aðgöngumiði að góðu starfi, held- ur hefur bakgrunnurinn og reynsl- an mikið að segja og hjálpar mik- ið þegar kemur að því að sækja um vinnu og fá áhugavert starf. Það em alls ekki allir sem útskrif- ast sem fá vinnu og reyndar em ekki margir af mínum bekkjarfé- lögum komnir með vinnu. Það er mikið af óspennandi tilboðum sem gefa lítið í aðra hönd.“ Er hugmyndin að setjast að líti eða hefur þií hug á að koma heim? „Þegar ég sá að Donnelley var að fara fram á samning til lengri tíma langaði mig til að kanna möguleika á starfi heima. Ég sendi nokkrum fyrirtækjum bréf en fékk lítil sem engin viðbrögð, reyndar var bara einn aðili sem sá sér fært að taka sér tíma tii að senda mér línu til að þakka fyrir bréfið og óska mér góðs gengis og þótti mér vænt um það. Þetta kom mér reyndar alls ekki á óvart og það er nokkuð ljóst að ef fólk vill fá almennilega vinnu eftir svona sérhæft nám þá verður það varla á Islandi í bráð. Iðnaðurinn er kannski ekki alveg kominn á það stig heima að hann vilji nýta sér sérmenntaða stjórnendur. Ég sé þessvegna fram á að næstu ár verði ég úti, þó að hugurinn leiti alltaf heim. Aftur á móti hef ég mikinn áhuga á að athuga hvernig það kæmi út fyrir RRD að fá íslensk fyrirtæki til að vinna verkefni fyr- ir okkur, vegna þess að tæknin og þekkingin eru til staðar á Islandi. Þetta hef ég verið að kynna fyrir RRD og var tekið mjög vel í þetta. Það verður þessvegna gam- an að sjá hvað gerist í þeim mál- um.“ Hvað heillar þig mest við Loitdon? „Ég og Helena Lind Svansdótt- ir sambýliskona mín erum mikið fyrir að prufa nýja matargerð og förum stundum á nýstárlega veit- ingastaði. Músíklífið er fyrsta flokks og við sækjum tónleika mikið, það er margt hægt að gera hér og okkur líður vel. Daníel Freyr sonur minn sem er 6 ára er einnig búsettur hér og hann er ör- PRENTARINN ■ 5 ugglega það sem heillar mig mest í London“ Nú hefur þú verið að kynna þér ýmis mál í náminu, sem lesendur Prentarans hafa notið góðs af í greinaskrif- um undanfarið. Hvað sýnist þér standa uppiír varðandi framtíðina íprentbransan- unt? „Ég held að prentiðnaðurinn eigi eftir að halda hlut sínum í framtíðinni. Við eigum í gífur- legri samkeppni við Netið og raf- ræna miðla en ég held að ef iðn- aðurinn getur lagað sig að þessu og fyrirtækin þróað sig til að temja þessa tækni og boðið sjálf þessa þjónustu þá getum við bara vaxið. Eins og ég skil orðið „prentiðnaður“, þá er það þjónust- an til þess að miðla upplýsingum í hvaða formi sem þær eru, ekki bara farvi á pappír. Þó held ég að við eigum ekki eftir að sjá hefð- bundið prentverk leggjast af í framtíðinni, hins vegar verður mikil bylting í sjálfvirkni fram- leiðslunnar á næstu 10 árum. En það verður alltaf þörf fyrir góða og vel þjálfaða starfsmenn." Hverju myndir þú ntœla með við þá sem hyggja á framhaldsnám í prentverki? „Menn þurfa að vera með það á hreinu af hverju þeir vilja fara út í þetta, skólinn sem ég kem úr er gífurlega dýr og það er engin trygging fyrir því að þetta komi til með að borga sig að lokum. En ef fólk er tilbúið að taka áhættuna og áhuginn er fyrir hendi þá mæli ég hiklaust með þessu og óska öilum góðs gengis.“ Viltu segja eitthvað að lok- um? „Það er lítið eftir nema biðja ofsalega vel að heilsa öllum gömlu vinnufélögunum á klakan- um.“ Prentarinn þakkar Birgi fyrir spjallið og óskar honum alls góðs í framtíðinni. Jafnframt er áhuga- vert að sjá hvort honum tekst að koma á samvinnu milli fyrirtækja hér heima og RRD.

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.