Prentarinn - 01.09.1999, Qupperneq 6

Prentarinn - 01.09.1999, Qupperneq 6
I starfsmannafélagi prentsmiðj- unnar Grafík eru 55 manns. Félagið hefur verið starfandi með ýmsum hætti síðan 1936.1 ágústmánuði 1994 þegar prentsmiðjan Edda og G.Ben prentstofa sameinuðust var ákveðið eftir mikla samkeppni um nafn að kalla félagið EddiBen. Fyrsti formaður félagsins var kjör- inn Örn Geirsson og hefur hann gegnt embættinu frá upphafi. Gjaldkeri er Konráð Þorsteinsson og hefur hann einnig haft veg og vanda af íþróttamálum innan fyrir- tækisins. Má þar nefna Dúddamót- ið í golfi þar sem Fróði og Grafík leiða saman hesta sína. Vikulegar fótboltaæfingar eru á sunnudögum. Innanfélagsmót í pílukasti, knatt- spyrnu milli deilda, keilu og fl. Spilakvöld eru haldin þar sem spiluð er félagsvist. Dagskrá Eddaben ár hvert hefur verið fjölbreytt og má þar fyrst nefna árshátíð sem haldin hefur verið á ýmsum stöðum, Hótel Sögu á 100 ára afmæli FBM, Hótel Örk, Broadway, Skólabrú og úti í Washington D.C. og víðar. Hljómsveit prentsmiðjunnar Cover leikur fyrir dansi. Konráð Þorsteinsson hefur samið texta um Grafík við KR lag Bubba Morthens. Einnig hefur verið fastur liður að fara sem hefur verið með ýmsu sniði, það er að segja fullorðins- eða fjölskylduferð. En þó alltaf innan Stór-Hafnarfjarðarsvæðisins. I boði hefur verið að fara á hestbak, göngu- ferð og/eða bátasigling, sem svo hefur end- að með sameiginlegu grilli og tilheyrandi. Ýmist hefur verið farið frá hesthúsum Ishesta í Garðabæ eða Hafn- arfirði (að undan- skildu 1997 var far- ið í Syðra-Langholt þar sem í boði var bátasigling, hesta- ferð, veiði eða bara að liggja í heita pott- inum). A meðan út- reiðartúr stendur yfir hafa hinir gengið um Heiðmörkina og/eða yfir í Kaldársel þar sem við höfum grillað saman í Valabóli eða við reiðhöll Sörla. Haustferð Helgarferð til útlanda eða óvissuferð. 1998 var farin óvissuferð, mæting við Grafík og ekið í rútu út í buskann. I þetta skipti Nesjavallaleið til Þing- valla þar sem allir fóru um borð í bát frá Þing- vallasiglingum og sigldu yfir vatnið þar sem partírúta frá Hópferða- bílum sem inniheldur ísskáp og fl. beið með einn kaldan fyrir mannskapinn. Síðan lá leiðin unt Lyngdalsheiði yfir á Laugarvatn í Miðdalinn þar sem biðu okkar samlokur, gos og bjór í félagsaðstöðu Golffélagsins. Þaðan var síðan farið á Geysi og stoppað til að fara í sund og fl. Síðan lá leiðin í Kjarnholt þar sem starfs- mannafélagið hafði tekið á leigu sal og búið var að grilla ofan í mannskapinn B og sungið var fram eftir G R A F I K nóttu. A leiðinni heim var síðan stoppað á Hótel Örk í kaffi, konna og balís. 6 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.