Prentarinn - 01.09.1999, Side 7

Prentarinn - 01.09.1999, Side 7
Miðdalsmótið, golfmót Félags bókagerðarmanna, fór fram á golfvelli Dalbúa í Miðdal 14. ágúst 1999. Þetta er í fjórða sinn sem við höldum golfmót í Mið- dal, þátttakendum fjölgar með hverju móti og að þessu sinni voru keppendur 44. Eftir kaffiveitingar var kepp- endum raðað á teiga og hófst mótið kl. 11.30 undir öruggri stjórn Jóns Þ. Hilmarssonar, gjaldkera Dalbúa. Miðdalurinn skartaði sínu fegursta og kepp- endur léku við hvern sinn fingur í blíðskaparveðri fram eftir degi en í lokin gerði eina af þessum miklu rigningardembum sem Miðdalur er frægur fyrir. Kepp- endur létu það ekki koma sér úr jafnvægi og spiluðu sitt golf. I mótslok var boðið upp á veit- ingar og tóku þátttakendur hraust- lega við veitingum eftir skemmti- lega keppni. Keppt var um far- andbikar FBM í fjórða sinn ásamt eignarbikar fyrir fyrsta sæti með forgjöf. Postillon-bikarinn var veittur fyrir fyrsta sæti án forgjaf- ar, eignarbikar fyrir fæst pútt og Kristinn Friðriksson t.v. kom sá og sigraði í Miðdalnum og tók þrjá bikara. Hér tekur hann við verðlaunum hjá Sœmundi Arnasyni og Jóni P. Hilmarssyni, t.h., mótsstjóra. eignarbikar í kvennaflokki. Einnig voru veittar viðurkenning- ar fyrir að vera næst holu á 5. og 8. braut og lengsta teigshögg á 3. braut. Auk þess var dregið úr skorkortum svo lengi sem verð- laun dugðu. Aðalstuðningsaðili mótsins var Hvítlist er veitti fjölda verðlauna. Einnig gaf Morgunblaðið verðlaun. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir stuðn- inginn. • 1. verðlaun með forgjöf og far- andbikar FBM hlaut Kristinn Friðriksson með 63 högg, í öðru sæti varð Guðjón Steingrímsson með 67 högg og í þriðja sæti Jó- hannes Olafsson með 68 högg. Kristinn Friðriksson vann einnig Postillon-bikarinn, 1. verðlaun án forgjafar, með 77 höggum, jafnir í öðru og þriðja sæti urðu þeir Al- bert Elísson og Páll Erlingsson með 79 högg. Kvennabikarinn vann Guðný Steinþórsdóttir á 72 höggum með forgjöf. I öðru sæti var Guðrún Eiríksdóttir með 78 högg og í þriðja sæti Halla Svan- þórsdóttir með 85 högg. An for- gjafar varð Guðrún í fyrsta sæti með 92 högg, Guðný með 100 högg og Halla með 113 högg en átta keppendur voru að þessu sinni í kvennaflokki. Púttmeistari FBM varð Theódór Guðmunds- son, með 23 pútt. Mjög ánægjulegt var hve marg- ir tóku þátt í mótinu að þessu sinni en með þessu keppnisfyrir- komulagi að raða keppendum á teiga er völlurinn sprunginn og fyrirsjáanlegt er að annan hátt verður að hafa á næsta ári, því þá gerum við að sjálfsögðu ráð fyrir fleiri keppendum. Fimmta Mið- dalsmótið verður um miðjan ágúst árið 2000. Félag bókagerðarmanna og Samtök iðnaðarins stóðu fyrir hófi í tilefni af útskrift nýsveina í bókagerðargrein- um 11. júní sl. Alls útskrifuðust 24 sveinar, 9 í prent- smíð, 13 í prentun og 2 í bókbandi. FBM óskar öllum nýsveinum til hamingju með áfangann og velfarnaðar í starfi. FBM veitti viðurkenningu fyrir góðan árangur á sveins- prófi og hlutu hana eftirtalin: F.v. Guðlaug Jónsdóttir, bókband, Guðrún Berglind Sigurðardóttir, prentsmíð, og Bjarki Logason, prentun. PRENTARINN ■ 7

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.