Prentarinn - 01.12.2001, Síða 10
Elías og Kittý
vorum við í nokkur ár meira og
minna inni í prentsmiðju og
fannst spennandi. Pabbi stakk upp
á því við Sigga bróður að nema
þetta fag, en þegar ég sjálf stefndi
þangað reyndi hann að draga úr
mér. Ætli honum hafi ekki þótt
nóg komið. Pabbi fékk þó engu
um það ráðið og þegar við Kobbi
kynntumst tókum við ákvörðun
urn að heija nám í prentiðn.
Gummi bróðir var svo sá sem
alltaf var viss um hvað hann vildi
og bað um samning hjá Baldri í
Odda þegar hann var smá polli.“
Þess má geta að Guðmundur,
bróðir Kristínar, hefúr reyndar
snúið sér að húsasmíð í seinni tíð
en eitt sinn er hann átti leið í ísa-
foldarprentsmiðju leit hann aug-
um Alfheiði Agnesi og hafði í
flimtingum þá upplifun sína að
hann langaði í fyrsta sinn á ævi
sinni að kyssa prentara. Kristín
leiddi þau svo saman í útskriftar-
Maggi Matt og Gulla
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir
fliif sögur með
skoðað. í ritnefnd þessa góða
blaðs eru hjónin og prentsmiðirnir
Kristín Helgadóttir og Jakob Við-
ar Guðmundsson. Þau kynntust
reyndar áður en hugurinn steíhdi
á prentiðnina, en hafa gengið veg-
inn saman síðan. Sonur Jakobs er
Halldór Viðar prentari í Prentmeti
en sá hefúr fellt hug til grafiska
hönnuðarins Aspar. Faðir Kristín-
ur næst. Enda vitað að flestir
útivinnandi eyða lengri tíma
með vinnufélögunum en fjöl-
skyldunni og það eitt býður
hættunni heim. Því ætti að vera
ákjósanlegt að starfa með sínum
heittelskaða. Eða hvað?
„Jú, það getur verið mjög
þægilegt að vinna með makan-
um. Þá höfum við það sama að
tala um, upplifum sömu hlutina
og erum saman meira en önnur
pör,“ segir ungur prentsmiður
ánægður með stöðuna. Önnur tek-
ur í sama streng. „Það er gott að
umgangast sama fólkið, en einn
stærsti kosturinn er að þurfa bara
á einn stað á morgnana. Samnýt-
ing bílsins, samtaka með börnin
og allt það.“ Prentari nokkur segir
gott mál að vinna við sama starf-
ið en að óskynsamlegt sé að vinna
á sama vinnustaðnum. „Það er of
mikið af því góða. Fínt að geta
Alfhildur og Guðmundur Helgi
Til að öðlast fullkomna lífsham-
ingju er stundum talað um að
tvennt þurfi til. Annað er starf
sem veitir viðkomandi virðingu
og lífsfyllingu, hitt er lífsföru-
nautur og fjölskylda í framhaldi.
Víst er að ástin leynist við óvænt-
ustu aðstæður og á ólíklegustu
stöðum, en hjá fjölda prentlærðra
einstaklinga hefur hún oftar en
ekki fundist innan prentstéttarinn-
ar sjálfrar. Trúlega er hægt að
fullyrða að engin iðngrein státi af
jafnmörgum ástarsamböndum eða
fjölskylduvenslum og prentiðnin.
Það skrifast svo kannski á þann
reikning að samræmi milli fjölda
kynjanna er jú jafnara en gerist og
gengur í húsasmíði, pípulögnum,
rafvirkjun eða bílamálun. Og
kannski það að menn eru að sýsla
með bækur sem víst eru fullar af
ástum og ævintýrum.
Hafsteinn og Kristín
Kostir og gallar
í prentsmiðjum hefúr löngum
verið langur vinnudagur. Sú stað-
reynd getur ein og sér orsakað
fjölda ástarsambanda. Frægar eru
sögur af mörgum prentaranum
sem braut upp langan vinnudag
með því að dobla veikara kynið
inn í ræstingakompu til skrafs og
ráðagerða. Kossar og blíðlegt
augnaráð hafa einnig verið fastur
passi í matsölum og skúmaskot-
um, og kærustupör gjarnan orðið
til eftir árshátíðir og jólaskemmt-
anir. Sem sagt: langur vinnudagur
með sama fólkinu kveikir eðlis-
lægar kenndir sem svo finna sér
farveg í þeim sem hjartanu stend-
Guðmundur og Þórdis
rætt hvort um annars starf af
skilningi, en rugl að vera saman
allan liðlangan daginn, heima eða
að heiman. Þá slokknar fljótt á
spennun ni.“
í faðmi fjölskyldunnar
En það er ekki bara ástin sem
orsakar náin tengsl í prentsmiðj-
unum, heldur einnig frændsemi
og bræðralag. í prentsmiðjunni
Odda er sennilega um auðugastan
garðinn að gresja þegar þetta er
ar var Helgi Kr. Jónsson prentari
og bræður hennar Guðmundur og
Sigurður heitinn voru einnig
menntaðir í prentiðn. Guðmundur
er annars kvæntur Alfhildi Agnesi
prentara, en foreldrar hennar eru
Jón Anton Stefánsson prent-
myndasmiður og Guðrún Alfs-
dóttir bókagerðarmaður, og systir
hennar Sigríður innskriftarmaður
í Gutenberg, sem svo er gift Arna
Andersen prentara. Því má svo
bæta við að Jakob Viðar á tvær
systur í bransanum, þær Nínu í
ísafold og Kolbrúnu í Flatey.
Mágur þeirra er Kjartan Kjartans-
son prentsmiðjustjóri í Isafold, en
Kjartan krækti í eiginkonuna
Höllu þegar þau unnu bæði i
prentsmiðjunni Hilmi. En hvernig
stendur á þessum ákafa í prent-
bransann hjá sömu fjölskyldunni?
Kristín Helgadóttir hefúr orðið:
„Pabbi var fyrsti prenmemi Prent-
smiðjunnar Odda og fjölskyldan
bjó má segja inni í prentsmiðj-
unni, eða í sama húsi. Þess vegna
Július og Lilian
10 ■ PRENTARINN