Prentarinn - 01.12.2001, Side 11
partíi Halldórs Viðars þegar sá út-
skrifaðist sem prentari. Halldór
hafði reyndar ekki verið spenntur
íyrir prentnáminu en Kjartan í
Isafold tók drenginn á eintal að
hætti fjölskyldunnar og sannfærði
hann um gildi námsins. Og nú
Diana Huiphimai
ætlar Jakob faðir hans að bæta
við sig prentlistinni!
Hjónabandsmiðlunin Oddi
En Oddinn hefur alið af sér
fleiri ástardúfur. Þau Magnús Már
Magnússon og Sigríður Kristín í
Prentmeti kynntust í Odda. Sama
á við um Karenu Osk í Odda og
Ösp og Halldór Vióar
Oddgeir Þór Gunnarsson í Prent-
meti. Prentsmiðurinn Friðrik
Arnason í Odda elskar Díönu L.
Huiphimai sem vinnur ásamt
systur sinni Uthai í Odda, en Ut-
hai er eiginkona Arnar Garðars-
sonar prentsmiðs í Odda. Magnús
Matthíasson framleiðslustjóri í
Odda varð fyrir skotum Amors í
Odda þegar frúin Guðlaug Þ.
Guðmundsdóttir vann þar í bók-
bandinu. I Odda starfa einnig
hjónin Kristín Auðunsdóttir gjald-
Friórik Arnason
keri og Hafsteinn Hjaltason prent-
smiður. Prentarinn Stefán Þor-
steinsson kvæntist Sigríði S.
Björgvinsdóttur prentsmið, og El-
ías Skúlason prentari og Kittý M.
Jónsdóttir vinna bæði og unnast í
Oddanum. Til að æra óstöðugan
verður og að nefna til sögunnar
Rafn Sigurjónsson prentsmið í
Odda sem á Elísabetu Skúladóttur
bókbindara, dóttur Skúla Helga-
sonar prentara, en þau kynntust í
Iðnskólanum. Ólafur H. Stein-
grímsson og Jakobína Jóhannes-
dóttir matráðskona i Odda eru
líka hamingjusöm hjón. Formað-
urinn Sæmundur Árnason kynnt-
ist lífsförunauti sínum Guðrúnu
Eyberg í prentsalnum í Odda og
áttu þau 40 ára brúðkaupsafmæli
á árinu. Þórdís Einarsdóttir tækni-
maður í Odda og Björgvin Bene-
diktsson eru par. Björgvin vann í
mörg ár í Odda, en hann er sonur
Benedikts Björgvinssonar sem er
sonur Björgvins, eins af stofnend-
um Odda. Mágur Þórdísar er
Guðmundur Benediktsson sem er
einnig tæknimaður í Odda. Síðast
en ekki síst eru svo prentararnir
Axel Baldursson og Lilja Dögg
Ólafsdóttir ástfangin upp fyrir
haus.
Örn Garðarsson og Uthai
Huiphimai
Karen Ósk
egi, nánar tiltekið í strandbænum
Kragero, búa Aldís Harpa Stef-
ánsdóttir prentsmiður og hennar
ektamaður Ásberg Magnússon
prentari, ásamt börnum og hundi,
og gera það gott.
Enn kviknar ástin og slokknar í
prentsmiðjum landsins. Sumir
finna lífsforunaut sinn við kaffi-
könnuna í tíu-kaffinu, aðrir
spennandi rekkjunauta þangað tii
þeirri spennu hefur verið aflétt
eftir verklegan þátt á öðrum gólf-
um. Og svo gengur lífið sinn
vanagang og ekkert athugavert
við það í sjálfu sér.
Nýjasta og heitasta parið í
bransanum eru án efa þau G. Ben
og Edda sem tóku saman fyrir
nokkrum árum og gátu af sér
ýmis prentverk. Nýverið tóku þau
svo saman við tvo gaura, trúlega
til að innleiða meira fjör í hjóna-
lífið, en það eru þeir Steindór og
Gutenberg. Verður áhugavert að
sjá hve hjónabandið endist lengi
úr þessu.
Oddinn er stór á mörgum svið-
um, það er lýðum ljóst. En víðar
hafa ástarörvarnar stungist í
hjörtu prentlærðra. Á Morgun-
blaðinu féll Magnús Axelsson fyr-
ir Jakobínu Ingibergsdóttur sem
áður helgaði blaðinu starfskrafta
sína. Jón Orri Guðmundsson í
Grafik lagði snörur sínar fyrir Júl-
íu Ágústsdóttur prentsmið og
kennara, þegar bæði unnu í G.
Oddgeir
Ben, og í Grafik starfar einnig
bókbindarinn Haraldur Haralds-
son sem kvæntist Laufeyju Sigur-
finnsdóttur í bókbandinu í Odda.
Júlíus S. Ólafsson bókbindari í
Odda fann líka ástina sína Lilian
V Reinhold Óskarsdóttur í vinn-
unni, en hún ku hætt í faginu.
Ritstjóri Prentarans Georg Páll
Skúlason kynntist sinni heittelsk-
uðu Lindu Ósk í Iðnnemasam-
bandinu, en hafði rétt misst af
henni í Iðnskólanum í Reykjavík
þegar hún lagði stund á bókagerð,
en Linda fann fljótt hæfileikum
sínum annan farveg en prent-
smiðjumar. Ingigerður Guð-
mundsdóttir prentsmiður var í
fjölda ára starfsmaður í GuðjónÓ.
Þangað þurfti eins og gengur að
fá viðgerðarmann frá Aco. Jón
Gunnar Jónsson varð oftast fyrir
valinu og eitthvað leist Ingigerði
vel á manninn, og jafnvel spum-
ing hvort tækin hafi bilað óvenju
oft af ásettu ráði, því nú hefur ást
þeirra verið blessuð frammi fyrir
Guði og mönnum.
Opin fyrir nýjungum
Islensk prentpör hafa nokkur
freistað gæfunnar í nágrannalönd-
unum. Þannig búa hjónin Magnús
Ivar Þorvaldsson prentari og Kol-
brún Haraldsdóttir í Danmörku,
en þau unnu bæði i Plastos áður
en þau héldu utan. í Suður-Nor-
Kristín Helga og Jakob Vióar
PRENTARINN ■ 11