Prentarinn - 01.12.2001, Síða 12
Lnðrasveitin
bíður...
Jakob Viðar Guðmundsson ræðir við
Inga Rafn Ólafsson
Prenttæknistofnun hefur verið í stöðugri þróun allt frá
stofnun. Hlutverk hennar er að vera
eftirmenntunarmiðstöð fyrir prentiðnaðinn.
Á vegum stofnunarinnar eru haldin námskeið varðandi
alla þætti prentiðnaðar.
Sérstaklega eru tölvunámskeið umfangsmikil, en einnig
eru haldin námskeið í prentun og bókbandi.
Einnig hefur Prenttæknistofnun séð um rekstur Marg-
miðlunarskólans sem er sameign hennar og Rafiðnaðar-
skólans. Á haustmánuðum tók Ingi Rafn Olafsson við
framkvæmdastjórn Prenttæknistofnunar og til að
forvitnast um framtíðina hjá stofnuninni og dálítið um
hann sjálfan heimsótti ég hann og pundaði á hann
nokkrum spurningum.
| 12 ■ PRENTARINN
Svona í byrjun: Segðu okkur dá-
lítið frá sjálfum þér. Hafði það
einhver áhrifá það að þú valdir
þrentsmíð að faðir þinn Ólafur
Ingi Jónsson var kennari við
Iðnskólann og þrentsmiðjustjóri
hjá DV?
Já, það hugsa ég. Ég sagði nú
reyndar alltaf, þegar ég var lítill
og var spurður hvort ég ætlaði
mér ekki að verða prentari, þvert
nei. Eftir stúdentinn var ég eitt-
hvað í vafa um hvað ég vildi
gera. Mér bauðst að komast á
samning hjá DV Það var mikil
lægð í þjóðfélaginu á þessum
tima og mér fannst ekki mikið um
tækifæri svo ég ákvað bara að slá
til og prófa þetta.
Nú lœrðir þú þrentsmíði hjá
Frjálsri fjölmiðlun. Hvað tók
svo við?
Eftir að ég kláraði sveinsprófið
fór ég til Þýskalands í eitt ár. Þar
var ég í þýskunámi en langaði
einnig til að vinna í þýskum
prentiðnaði. Það gekk eftir og ég
vann hjá Meinders og Elstermann
í Osnabriick í fjóra mánuði. Það
var nrjög lærdómsríkt og hvatti
mig til að fara í ffekara nám sem
ég og gerði. Ég kom heim og
vann í hálft ár og fór svo í nám til
Bandaríkjanna, nánar tiltekið
Rochester í New York ríki. Þessi
borg er nálægt landamærum
Bandaríkjanna og Kanada. Skól-
inn heitir Rochester Institute of
Technology (RIT). Prentskólinn
þar er talsvert virtur. Þar dvaldi
ég í þrjú ár og lauk þaðan BS
námi í framleiðslustjórnun fyrir
prentverk.
Og þegar þú kemur heim, ferðu
þá strax að vinna Itjá Moggan-
um?
Já. Ég hafði unnið aðeins á
Mogganum áður en ég fór út og
líka bæði sumrin þegar ég kom
heim, á meðan ég var í náminu,
en fer svo að vinna þar þegar ég
kem heim vorið '99 og þá sem
verkstjóri í auglýsingaffam-
leiðslu. Ég var þar í rúm tvö ár
eða þangað til 1. ágúst siðastlið-
inn er ég byrjaði hér hjá Prent-
tæknistofnun
Snúum okkur þá að Prent-
tœknistofiiun. Er eittlivað sér-
stakt sem þú œtlar að beita þér
fyrir?
Ég sé Prenttæknistofnun á
nokkrum tímamótum um þessar
mundir. Hún hafði mjög skýrt
hlutverk á tímabili sem var að
mennta prentiðnaðarfólk á tölvur
og um nýjungar á sviði umbrots
og myndvinnslumála, meðal ann-
ars. Prentara- og bókbindaranám-
skeið breytast með tímanum en
ekki eins mikið og námskeiðin
fyrir prentsmiði. I mörgum tilfell-
um voru námskeiðin hjá Prent-
tæknistofnun grunnnámskeið á
tölvur. Þetta hefur breyst. Nám-
skeiðin sem við erum farin að
bjóða upp á eru mun sértækari.
Til dæmis má nefna litastjórnun-
arnámskeið sem haldið var í vet-
ur, einnig má nefna námskeið
sem við erum að hugsa um að
bjóða í vor. Það er strengspennu-
námskeið, sem er mjög sérhæft
prentaranámskeið, hugsað fyrir þá
sem eru að prenta á prentvélar
sem eru með streng. Þetta eru
svona dæmi um námskeið sem
ekki mundu hæfa neinum nema
þeim sem eru í þessum iðnaði. Ég
sé lika fyrir mér að Prenttækni-
stofnun komi mikið við sögu í
vexti og framgangi nýja námsins í
upplýsinga- og íjölmiðlagreinum.
Stofnunin hefur haft umsýslu
með þessum undirbúningi og sér
einnig um rekstur starfsgreinaráðs
í upplýsinga- og fjölmiðlagrein-