Prentarinn - 01.12.2001, Page 13
um. Með þessu móti fylgist prent-
iðnaðurinn sjálfur með því sem er
að gerast í grasrótinni.
Eru félagsmenn nógu duglegir
að sœkja námskeiðin hjá Prent-
tœknistofnun?
Nei, því miður. I haust, þegar
ég tók við, þá undirbjó ég sex
námskeið, sem áttu að koma til
framkvæmda á haustmánuðum.
Aðeins eitt þessara námskeiða var
haldið en hin voru felld niður
vegna ónógrar þátttöku. Svo virð-
ist sem almennur doði hafi verið
hjá félagsmönnum í haust. Þetta
batnar vonandi með hækkandi
sól. Eg hafði hugsað mér að fara í
fyrirtæki eftir áramót til að kanna
hvað félagsmenn vilja læra og
hvað þeir vilja að við gerum fyrir
þá.
Nú hefur lieyrst af félagsskap
sem kallast Móri, sem er á ykk-
ar vegum. Getur þú sagt mér frá
honum?
Móri var stofnaður á vormán-
uðum 2001 af Hirti Guðnasyni,
þáverandi ffamkvæmdastjóra
Prenttæknistofnunar. Þá þegar var
einn fundur haldinn. Síðan gerðist
lítið fyrr en á haustmánuðum að
félagar voru kallaðir saman aftur.
Félagar í Móra eru fagmenn,
bæði á auglýsingastofum og í
prentfyrirtækjum, sem hittast og
ræða málefni sem varða prent-
verk. Á síðasta fundi voru búnar
til stillingar fyrir Adobe Acrobat
sem henta til prentunar bæði fyrir
dagblöð og fínni prentun. Þeir
sem áhuga hafa á að ganga inn í
þennan hóp ættu að setja sig í
samband við mig.
FBM hefur í nokkur ár leigt út
kennsluefhi, fyrst efni á itiynd-
böndum og síðan á marginiðl-
unardiskum. Prenttceknistofn-
un hefur nú tekið að sér að
lána félögum FBM slíka marg-
miðlunardiska. Hefur aldrei
komið til tals að gefa fólki kost
á að taka námskeiðin á netinu?
Það er örugglega framtíðin að
hægt verði að fara inn á Netið og
eitthvað af þessum námskeiðum
verði tekið þaðan í fjarkennslu.
Þetta er hugmynd sem er verið að
vinna með og er eitt verkefni fyrir
prentara komið nokkuð langt í
Fólk er að fá námslán til að fara í margmiðlunarskóla erlendis, af hverju á það ekki að fá námslán í marg-
miðlunarnám á Islandi?
þessu máli. Einnig verður að huga
að því að tengingar eru með mis-
miklum hraða þannig að erfitt er
að setja hluti á Netið sem eru
þungir í niðurhleðslu. Félagsmenn
geta komið hingað til okkar og
fengið þá kennsludiska sem við
eigum, það er reyndar nýr pakki í
pöntun. Eg mun gefa nánari upp-
lýsingar um það í næstu Svörtu
list hvað verður á boðstólum og
ég hvet fólk til að nýta sér það.
Við munum líklega rukka ein-
hverja tryggingu til að diskarnir
skili sér.
Margmiðlunarskólinn er tvö ár
og þá er maður orðinn marg-
miðlunarfrœðingur. Nú er cetl-
unin að bjóða uppá þriðja árið.
Það hefur verið markmiðið frá
stofnun Margmiðlunarskólans að
koma honum á háskólastig. Með
því að bæta þriðja árinu við geta
nemendur klárað BA gráðu í
margmiðlunarfræðum. Nú eru
viðræður í gangi við Tækniskóla
Islands um samvinnu og jafhvel
sameiningu.
Þannig að það er brýnt hags-
munamál að koina þessu í gegn.
Þetta er mikið hagsmunamál.
Bara það að nemendur fái þá fyr-
irgreiðslu sem þeim ber. Fólk er
að fá námslán til að fara i marg-
miðlunarskóla erlendis, af hverju
á það ekki að fá námslán í marg-
miðlunarnám á íslandi?
Nú eru allir að spá í atvinnu-
tcekifœrin. Er mikil þörffyrir
svo hámenntað tceknifólk hjá
atvinnulífinu?
Eg held að það sé þörf fyrir all-
ar gerðir af hæfileikaríku fólki.
Fólk þarf bara að finna sér sinn
stað í þessu umhverfi, það sem
hentar einum hentar ekki öðrum.
Góður hönnuður er ekki endilega
góður forritari og öfugt, svo dæmi
sé tekið. En saman geta þessar
tvær manngerðir gert góða hluti.
Svona aðeins í lokin um þig
sjálfan. Þetta er búið að vera
viðburðaríkt ár hjá þér ekki
satt? Bœði það að taka við
þessu starfi og svo ertu tiýorð-
inn pabbi, er það ekki?
Jú, þetta er búið að vera mjög
viðburðaríkt ár. Eg og konan mín
Nathalía Halldórsdóttir eignuð-
umst litla telpu í ágúst. Hún heitir
Elísabet og er að sjálfsögðu alveg
yndisleg. Við keyptum líka íbúð
sem við gerðum upp. Svo varð ég
þrítugur og skipti um vinnu. Þetta
er svo sannarlega búið að vera ár
breytinganna hjá okkur. Það hefur
mikið gengið á en þetta er rosa-
lega gaman og mikil áskorun að
taka við þessu öllu saman. Mér
var tjáð það, um það leyti sem ég
var að byrja hér, að ég væri að
verða fyrir þremur af mestu
streituvöldum sem til eru, það er
að eignast bam, flytja og skipta
um vinnu.
Og ertu svona þokkalega heill
eftir?
Já, já, ég er ekki farinn á taug-
um og við skulum vona að það
gerist ekki.
Það vita það tiú ekki allir að þú
spilaðir með lúðrasveit verka-
lýðsins í mörg ár. Ertu ennþá að
spila?
Því miður er ég nú hættur því.
Ég datt útúr því þegar ég flutti út
og svo þegar ég kom heim var ég
svo mikið að vinna og hafði ekki
tíma og núna er ég að vinna enn-
þá meira og kominn með fjöl-
skyldu, svo í augnablikinu finn ég
mér ekki tíma. Maður þarf að
taka upp á þessu aftur þegar fram
líða stundir. Lúðrasveit verkalýðs-
ins var stofnuð af Stefáni Ög-
mundssyni prentara ásamt öðmm
þannig að sem prentari er engin
önnur lúðrasveit sem kemur til
greina. Annars er fjölskyldan eins
og er eina áhugamálið ásamt úti-
veru.
Viltu segja eitthvað að
lokiuti?
Ég vil bara hvetja félagsmenn
til að koma á námskeið bæði hjá
Prenttæknistofnun og Margmiðl-
unarskólanum og muna að mennt-
un lýkur aldrei, maður lærir eitt-
hvað nýtt á hveijum degi. Eins
hlakka ég til kreflandi verkefna
sem bíða í framtíðinni.
PRENTARI NN ■ 13