Prentarinn - 01.12.2001, Qupperneq 22
Georg Páll Skúlason:
Samruni félaga efst á baugf
UNI - Europa Graphical (UNI - EG)
Sœmundur og Ritta Hansen frá Danmörku, en hún lét af störfum
formanns heilbrigðis- og vinnuverndarnefndar á þinginu.
Ársfundur UNI - Europa
grafíkdeildar var haldinn í
Prag, Tékklandi, 11. og
12. október sl. 27 þátttak-
endur höfðu atkvæðisrétt,
einnig voru 33 áheyrnar-
fulltrúar frá 22 löndum
skráðir til þátttöku. Ljóst
er að fátækari félög eiga
erfitt með að greiða fé-
lagsgjöld og þar með að
taka þátt eftir breytingar
á félagsgjöldum en við
sameininguna við UNI var
þessu breytt þannig að
allir greiða jafnt gjald pr.
félagsmann, óháð efna-
hag. Fulltrúar FBM voru
Sæmundur Árnason og
Georg Páll Skúlason.
Frantisek Stasek, formaður
Typograficka Beseda, bauð þátt-
takendur velkomna til Prag. Hann
rakti stuttlega sögu félagsins sem
var stofnað 1882 með 217 félags-
menn. Arið 1939 var landið her-
tekið af nasistum og 15. mars
1946 var félagið sett í samband
með öðrum óskyldum félögum.
Félagið var endurreist árið 1990,
það hefur samningsrétt fyrir uþb.
80% af vinnuafli í iðnaðinum, en
störfum hefur fækkað mikið í
greininni og fyrirtæki flytjast úr
stórborgum. Félagar eru nú 2500,
þ.e. 1250 á vinnumarkaði og 1250
sem ekki eru í starfi.
Ársskýrsla
I upphafi máls sagði Tony
Dubbins formaður þetta vera ann-
an formlega aðalfund UNI - EG,
en grafíski iðnaðurinn er deild í
UNI Europa.
Hann sagði að samstarf hefði
gengið vel og að með því hefði
grafíski iðnaðurinn verið virtur á
borði UNI - International. Við
vildum, sagði hann, að kraftur
UNI - EG myndi ekki minnka við
sameininguna heldur, þvert á
móti, ætluðumst við til að starfið
myndi aukast. Greinin greiðir 6
sinnum hærra gjald en aðrar og
það endurspeglar kraftmeira starf
hjá okkur en hjá hinum greinun-
um. Gott starf hefur verið unnið í
Austur-Evrópu, ráðstefna í Pól-
landi um evrópsk starfsmannaráð.
Staðið var íyrir baráttudegi og
blaðamannafundi vegna peninga-
prentunar og vakin athygli á afar
slæmri stöðu í þeirri grein. Ekki
var eins góð þátttaka í þessu og
við áttum von á. Ekki hefur geng-
ið vel að vinna með atvinnurek-
endum í Intergraf sl. ár. Þýskir at-
vinnurekendur hafa haft forgöngu
í því að neita samstarfi.
Með komu evrunnar á næstu
mánuðum er ljóst að sameiginleg-
ur réttur í Evrópu er mikilvægari
en áður. Sviss hefur neitað að
gera kjarasamning og vitt og
breitt er reynt að skerða félagsleg
réttindi t.d. á Ítalíu, í Þýskalandi,
Austurríki og Noregi. 35 tima
vinnuviku verður komið á í
Frakklandi fljótlega. Dubbins
óskaði IG-Medien til hamingju
með sameiningu VERDI en þýska
félagið er stærsta einstaka verka-
lýðsfélag í heimi.
Starfsemi UNI - EG
og nefndir
Francois Ballestero ritari UNI -
EG fór yfir ítarlega skýrslu um
íjölda funda og starf skrifstofunn-
ar og stjórnar á liðnu starfsári.
Mikið starf heftir verið urrnið í
nefndum um samningamál, Aust-
ur- Evrópu og uppbyggingu fé-
laga þar, kvennanefnd og vinnu-
vernd. Annað hefur gengið upp
og ofan s.s. samstarf við atvinnu-
rekendur þar sem í gangi eru tvö
verkefni sem komast lítið áfram,
s.s. Dismed sem á að verða
gagnagrunnur um allt mögulegt er
viðkemur prentiðnaði og rann-
sókn á störfum í iðnaðinum sem
er ætlað að auðvelda samanburð á
menntun og auðvelda fólki að
færast milli landa og fá starfs-
reynslu sina metna.
Ballestero nefndi m.a eftirfar-
andi verkefhi sem eru efst á list-
anum sem framtíðarverkefni:
Auka og styrkja evrópskt sam-
starf í samningamálum, kynna
gagnagrunn um samninga í prent-
iðnaði, þróa samstarf við atvinnu-
rekendur og stjórnvöld, finna nýja
leið til að vernda peningaprentara,
koma á umræðum milli aðila í
umbúðaiðnaðinum, staðfesta að-
gerðaráætlun kvennahóps UNI og
skipuleggja fundi meðal ungra fé-
laga.
Starfsmannamál
Fyrir fundinum lá engin tillaga
en á síðustu stundu var lögð fram
neyðartillaga sem fjallaði um
starfsmannamál á skrifstofu UNI
- EG. Stjórnin er í viðræðum við
aðalritara UNI - Europa um
starfsmannamál, þe. einn starfs-
manna UNI - EG hefur verið
færður til í starfi á aðalskrifstofu
UNI - Europa. Fundurinn sam-
þykkti tillöguna sem þrýstir á að
grafíski iðnaðurinn líði ekki fyrir
þessar breytingar.
Aðgerðaráætlun kvenna-
hóps UNI - Europa
Monica Marti formaður
kvennanefhdar UNI - Europa
fylgdi úr hlaði aðgerðaráætlun
sem samin hefur verið. í máli
hennar kom ffam að ETUC er að
vinna að jafnlaunaátaki og er að
safna upplýsingum úr mörgum
greinum. Fram kom hjá henni að
lágmarkslaun eru oftar greidd
konum og hlutastörf eru frekar í
höndum kvenna og þá vantar oft
ráðningarsamninga. Þær styðja
sveigjanleika í starfi en ekki á
forsendum atvinnurekenda sem
eru að ráða og reka eftir þörfum.
Mjög mikilvægt er að konur
hafi fulltrúa í öllum nefndum og
stjórnum í verkalýðsfélögum.
Eins leggja þær áherslu á að
farið sé yfir öll gögn, s.s. samn-
inga og lög félaga og kannanir
séu kyngreindar, s.s. varðandi
laun, vinnutíma og vinnuaðstæð-
ur.
Samruni félaga
Mikil áhersla var lögð á sam-
einingaráform félaga og lagði
Simon Dubbins fram skýrslu þar
sem sagt er frá hvað hvert land er
að gera i þessum málum. Víðast
er verið að skoða sameiningu við
önnur félög til að treysta stöðu fé-
laga og mæta þeim breytingum
sem orðnar eru og standa fyrir
dyrum í greininni. í nokkrum
löndum er verið að skoða sam-
runa prentiðnaðarfélaga og félaga
í rafiðnaði. Eina landið sem ekki
er að huga að þessum málum er
Bretland. Fram kom að afar slæm
staða er hjá félögunum í Austur-
Evrópu.
22 ■ PRENTARINN