Verktækni - 01.07.2003, Síða 7
Verktækni 7.tbI 2003
í Svíþjóð 50 þúsund en eru nú 23-24 þúsund
og fækkar enn. Um 7.000 félagar CF starfa
hjá fyrirtækinu. Ericsson féllst á að vinna að
svoköiluðu stuðningsverkefni. Það er gert til
að aðstoða starfsmenn sem sagt er upp við
að finna nýja vinnu. Einnig hefur stéttarfé-
lagið verið með í ráðum þegar velja þarf
starfsmenn sem sagt er upp. Hvort tveggja
er talið hafa gefið góða raun en þess má
geta að 80% þeirra sem sagt var upp hefur
tekist að fá aðra vinnu. Aðkoma CF hefur
orðið til þess að félögum hefur fjölgað.
í máli Mikaels Brandt hjá CF kom fram að
fyrstu fjöldauppsagnimar hjá Ericsson árið
2001 komu eins og þmma úr heiðskíru lofti.
Mjög illa var staðið að uppsögnunum en alls
hefur nú 800 félögum í CF verið sagt upp
hjá Ericsson. Samskiptin við fyrirtækið hafa
batnað mikið að undanförnu.
Uppsagnir hjá Nokia
Nokia hefur ekki farið varhluta af sam-
drætti á alþjóðamarkaði frekar en Ericsson í
Svíþjóð. Með samningum við fyrirtækið
tókst að fækka þeim sem sagt var upp úr
1.100 í 800. Trúnaðarmenn TEK (Finnska
verkfræðingafélagið) sáu um samningagerð
við Nokia. Viðræður gengu vel og fyrirtækið
var aðili að samkomulagi um stuðningsað-
gerðir fyrir þá sem sagt var upp. TEK og
finnsk yfirvöld styrktu verkefnið og almennt
er talið að aðgerðir hafi gefið góða raun.
Ingenjör melian arbetsliv,
familjeliv och stress (Danmörk)
IDA gerði könnun undir þessu nafni.
Alls voru 1396 verkfræðingar spurðir en
60% þátttaka var í könnuninni. Reynt var
að svara spurningunni hvort verkfræðingar
væru almennt stressaðir en í ljós kom að
svo er ekki ef hópurinn er borinn saman
við aðrar stéttir/hópa. Hins vegar er nokk-
uð hátt hlutfall verkfræðinga „við það" að
vera stressaðir. Alls töldu 48,4% spurðra
verkfræðinga sig lítillega stressaða.
Þeir sem helst töldu sig stressaða voru:
kvenkyns verkfræðingar, verkfræðingar á
aldrinum 28-45 ára og verkfræðingar með
börn á framfæri. Það sem helst var gefið
upp sem orsök stressins var: of mikið að
gera í vinnuninni, of mikil truflun í vinnu-
tíma, skortur á starfþróunarmöguleikum,
„þvinguð" yfirvinna, sveigjanlegur vinnu-
tími og vinna heima við.
IDA hefur fengið Evrópustyrk til að
vinna verkefni sem nefnist: „Get a life
engineer" Tilgangur verkefnisins er að gera
verkfræðifagið eftirsóknarverðara.
Total rewards (Danmörk)
Um er að ræða tegund af launakerfi sem
algengt er í Bandaríkjunum. Ekki er verið að
hækka laun heldur eru ýmiss konar sporslur
og fríðindi reiknuð inn í launin. Launakostn-
aður á ekki að hækka við þetta. Dæmi eru
um að eftirfarandi sé reiknað inn í launin:
áskrift að dagblöðum, símakostnaður, far-
miðar með lestum, viðbótarlífeyrissjóðs-
greiðslur, aukafrí, fæði, þrif á heimili laun-
þega, íbúðarkostnaður, endurmenntun, tölva
og hlutabréf. Útbreiðsla mun aukast hratt.
Fyrirtækin vilja hafa svona launakerfi. Mis-
munandi er hvort svona greiðslur eru skatt-
skyldar. Skattfrelsi er væntanlega eini hvat-
inn fyrir launþega að þiggja svona greiðslur.
Ymsir ókostir geta fylgt því að semja um
aukagreiðslur. T.d geta greiðslur í lífeyrissjóð
lækkað. Einnig getur verið mun erfiðara að
gera nákvæman launasamanburð. Þá getur
orðið erfiðara að ná fram breytingum á mið-
lægum kjarasanmningum. Einnig getur
orðið erfiðara að skipta um starf ef starfs-
maður er bundinn af einhverju sem erfitt er
að breyta með skömmum fyrirvara.
VERKTAKAÞJONUSTA • VIÐHALDSÞJONUSTA • ÞJÓNUSTUSAMNINGUR • ÖRYGGISÞJÓNUSTA
/ 7 0 ár hefur Þarfaþing þjónusté
CLU
fyrirtækjum, stofnunum, verkfræðistofum og einstaklingum
Við veitum hraða og örugga
þjónustu því við vitum að
framkvæmdatíminn skiptir miklu
máli fyrir rekstur fyrirtækja
Þarfaþing hf. - Kjalarvogur 5-104 Reykjavík - Sími 568-0059 - Bréfsími 568-0375 - tharfathing@simnet.is
m: