Verktækni - 01.07.2003, Page 14

Verktækni - 01.07.2003, Page 14
Menntun Námskeið á vegum Endurmenntunar Háskóla Islands 14 Námskeiö haldin í samstarfi viö ENSIM (Endur- og símenntunarnefnd VFI, TFI og SV) og fræðslunefnd Arkitektafélags íslands: Ákvarðanataka - þróunaraöferöir Einkum ætlað arkitektum, hönnuðum, teiknurum, tæknifræðingum og verkfræð- ingum. Markmiðið er að þátttakendur læri að beita þróunaraðferðum við ákvarðanatöku í hönn- un og skipulagningu. Kynntar em aðferðir sem notaðar eru við lausn vandamála (Problem Solving) og ákvarðanatöku. Fjallað er um það að breyta vandamáli í verkefni og þau svo leyst með svokölluðum þróunarað- ferðum. Lögð er áhersla á að þátttakendur geti leyst vandamál með erfðaalgrím (Genetic Algorithms) og erfðatengdri áætlun (Evolution Strategies). Að lokum er farið í áreiðanleika lausna, öryggi og áhættumat. Kennari: Magnús Þór Jónsson prófessor við HÍ. Tími: Mán. 10., þri. 11. og mið. 12. nóv. kl. 9:00-17:00. Verð: 39.500 kr. Loftræstiklæðningar Farið er yfir klæðningarefni og klæðning- araðferðir almennt og rætt um val klæðn- ingarefna og reynslu frá vettvangsskoðun- um. Álag á klæðningar og kröfur til klæðninga kynntar og eiginleikar þeirra tí- undaðir. Skoðuð eru áhrif klæðninga á út- vegginn og mat á útveggnum fyrir klæðn- ingu. Kynning á algengu klæðningarkerfi og uppsetningu þess. Rakinn ferillinn, undirbúningur, hönnun og deililausnir. Tæring og tæringarvarnir fyrir festingar og klæðningar og samspil þeirra skoðað. Umsjón: Jón Sigurjónsson verkfræðingur hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. Tími: Mán. 10. nóv. kl. 13:00-16:00 og þri. 11. nóv. kl. 8:30-12:30. Verð: 22.400 kr. Önnur námskeið: Excel 2000 I Fjármál og rekstur Ætlað m.a. fjármálastjórum, starfsfólki í bönkum og í verðbréfa- og fjármögnunar- leigufyrirtækjum og öðrum þeim sem hafa notað Excel en langar að læra meira. Farið er yfir allar helstu aðgerðir í Excel sem nýtast við vinnslu gagna, m.a. vinnslu með margar síður í senn og notkun nafna og fasta. Skoðuð eru innbyggð föll, t.d. fjár- málaföll, textaföll, leitarföll (lookup) og kynnt hvemig fólk býr til sín eigin föll. Farið í gerð einfalds rekstrarlíkans. Kennt að beita

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.