Verktækni - 01.07.2003, Side 18
AC sfjórnarbor4i T?í
18
Skipaö í fagráö THÍ
Stjórn TFI hefur skipað fulltrúa í fagráð
Tækniháskóla Islands. Fagráð á vél-
tæknisviði: Gunnar Sæmundsson, vél-
tæknifræðingur, fagráð rafmagns- og
tölvutæknisviðs: Gunnar Ingi Gunnars-
son, rafmagnstæknifræðingur, fagráð
byggingartæknisviðs: Þorkell Jónsson,
byggingartæknifræðingur og fagráð iðn-
aðartæknisviðs: Ragnar Pálsson, iðnað-
artæknifræðingur. Fagráðunum er meðal
annars ætlað það hlutverk að móta nám-
ið og Iaga að þörfum atvinnulífsins.
Löggildingarnefnd
Fundir í Löggildingamefnd TFI eru að jafn-
aði haldnir mánaðarlega. A síðasta fundi
voru samþykktar löggildingar til tveggja
tæknifræðinga. í báðum tilvikum var um að
ræða löggildingar til að leggja fram sémpp-
drætti af burðarvirkjum, vatns-, hita- og frá-
veitukerfum mannvirkja til byggingarfulltrúa.
Menntunarnefnd
Menntunamefnd TFI afgreiðir umsóknir um
leyfi til að nota starfsheitið tæknifræðingur
og inngöngu í félagið. A síðasta fundi vom
samþykktar um-
sóknir tveggja nýútskrifaðra
tæknifræðinga um starfsheitið og inngöngu í
félagið. Jafnframt því vom samþykktar tvær
umsóknir um að ganga að nýju í félagið og
að auki fékk einn inngöngu sem áður hafði
fengið leyfi til að nota starfsheitið en ekki
verið félagsmaður fyrr en nú. Á heimasíðu
TFI (www.tfi.is) er að finna reglur Menntun-
amefndarinnar og leiðbeiningar varðandi
umsóknir. Fundir MenntunarnefndarTFI eru
að jafnaði haldnir annan fimmtudag í mánuði.
Samstarf eöa sameining?
Búið er að skipa vinnuhóp sem á að kanna
möguleika á nánara samstarfi eða samein-
ingu félaga verkfræðinga og tæknifræðinga.
Er þetta í samræmi við ályktun aðalfundar
TFI síðastliðið vor. Hópurinn á að skila nið-
urstöðum eigi síðar en í lok október nk.
VerktTækni Open
Verkfræðingur náðu loksins að sigra
tæknifræðinga áVerkTækni Open golf-
mótinu, eftir sjö ára baráttu. Erum við
tæknifræðingar afskaplega ánægðir með
þetta enda ekkert gaman að vinna alltaf.
En við höfum harma að hefna næst!
Einar H. Jónsson, form. TFÍ.
t
Vatnarannsóknir á Islandi
Vatnamælingar Orkustofnunar og Islenska vatnafræðinefndin standa sameiginlega
fyrir ráðstefnu um rannsóknir á íslensku ferskvatni á Grand Hótel Reykjavík
mánudaginn 13. október n.k. kl.08:30-17:00.
Ráðstefnan er haldin í tilefni af Ári ferskvatnsins 2003. Er hún einkum ætluð
þeim sem koma að vatnarannsóknum með beinum eða óbeinum hætti, þeim sem
nýta sér slíkar rannsóknir svo og áhugafólki um þetta efni.
Á ráðstefnunni verður einnig sérstök dagskrá vegna skólaverkefnis um ferskvatn
sem vatnafræðinefndin stendur fyrir í samvinnu við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur.
Skráning á ráðstefnuna og miðlun frekari upplýsinga verður í höndum Sigríðar
Árnadóttur (sar@os.is, beinn sími 569 6072) og Ríkeyjar Hlínar Sævarsdóttur
(rhs@os.is, beinn sími 569 6069) hjáVatnamælingum Orkustofnunar.
Pólýhúðun
Duhgi
Lang sterkasta lakkhúð sem
öwder Coating”, á alla málma
psst! Og svo or hún lika svo ódýr
www.polyhudun.is
* 200 Kópavogur