Verktækni - 01.09.2004, Qupperneq 3

Verktækni - 01.09.2004, Qupperneq 3
Ráöstefna um samgöngumál TFÍ ogVFÍ munu standa fyrir ráðstefnu um samgöngumál í febrúar-mars á næsta ári. I deiglunni er m.a. að taka til umfjöll- unar vegagerð á hálendinu, styttingar á lengri vegalengdum og jarðgangagerð. Ráðstefna á sviöi Vindverkfræði Fjórða Evrópu og Afríku ráðstefnan á sviðiVindverkfræði (EACWE 4) verður haldin í Prag 11.-15. júlí 2005. Nánari upplýsingar eru á vefslóðinni: http://www.itam.cas.cz/eacwe2005/ Heimasíður SV, TFÍ og VFÍ Tæknifræðingafélag Islands: www.tfi.is Stéttarfélag verkfræðinga: www.sv.is Verkfræðingafélag íslands: www.vfi.is Efni á heimasíðurnar Þeir sem óska eftir að fá birtar tilkynn- ingar, fréttir og annað efni á heimasíð- um TFÍ og VFÍ geta sent tölvupóst til rit- stjóraVerktækni, sem sér um að koma efninu inn á síðurnar. Samlokufundir Samlokufundir eru að jafnaði haldnir fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl. 12:00 íVerkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Félagsmenn fá samlokur og drykki án endurgjalds en utanfélagsmenn geta keypt veitingarnar á sanngjörnu verði. Samlokufundimir em auglýstir á heima- síðumVFÍ ogTFÍ. Tölvupóstföng Félagsmenn eai hvattir til að senda upplýsingar um tölvupóstföng sín til skrifstofu félaganna vfi@vfi.is, tfi@tfi.is Þeir sem það vilja eru settir á póstlista og minntir sérstaklega á viðburði á veg- um félaganna. Skilafrestur Næsta tölublað Verktækni kemur út milli jóla og nýárs, eða á allra fyrstu dögum nýs árs. Þeir sem vilja koma efni í blaðið og/eða skilaboðum til ritstjóra em beðnir um að senda tölvupóst á sigmn@vfi.is eða sigrun@tfi.is. Bridgekeppni VFÍ og TFÍ Miðvikudaginn 8. desember n.k. verður haldin Bridgekeppni á vegum VFÍ í Verkfræðingahúsi að Engjateigi 9. Keppnin er ætluð félagsmönnum VFI og TFÍ og gestum þeirra. Mæting er kl. 19 og hefst spilamennskan kl. 19:30 en ráðgert að henni ljúki um kl. 23:00. Keppnisformið er tvímenningur og veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin. Nánari útfærsla verður ákveðin þegar þátttaka liggur fyrir. Keppnisstjóri verður Þorlákur Jónsson, vélaverkfræðingur. Væntanlegir þátttakendur em beðnir að skrá sig, og tiltaka nafn, félag, netfang, síma og hvort þeir em einir eða með makker (og tiltaka þá hver hann er). Skráning er á skrifstofu VFÍ. Netfang: vfi@vfi.is eða og í síma 568 8511. Keppnisgjald er kr. 500 fyrir félagsmennVFÍ ogTFÍ en kr. 1500 fyrir utanfélagsmenn. Kaffi og gos verður til sölu á hóflegu verði. Allir velkomnir. LEIÐARIN N Hugmyndir Enn standa félög verkfræðinga og tækni- fræðinga frammi fyrir spumingunni hvort þau eigi að sameinast eða ekki. Fyrir ári síðan skilaði nefnd, sem falið var að fjalla um aukið samstarf eða sameiningu SV, VFÍ ogTFÍ, því áliti að stefna beri að sameiningu félaganna að undangenginni ítarlegri kynningu og allsherjar atkvæða- greiðslu meðal félagsmanna. Framtíðar- sýn nefndarinnar var sú að verkfræðingar og tæknifræðingar, sem saman mynda stétt háskólamenntaðra tæknimanna, eigi einn sameiginlegan málsvara og starfi saman í einu félagi sem sinnir öllum þeirra hagsmunamálum af krafti. Haldnir voru fundir í félögunum þremur þar sem málin voru kynnt og í haust tók til starfa nefnd sem fékk það verkefni að útfæra hugmyndir um sam- einingu félaganna frekar. Ráðgert er að nefndin skili fyrstu niðurstöðum fyrir jól og verður fróðlegt að sjá hvað þar kemur fram. Félagsmenn munu enn fá tækifæri til að velta þessum málum fyrir sér og hafa áhrif á hvernig félagsstarf og hags- munabarátta verkfræðinga og tækni- fræðinga verður skipulögð í framtíðinni. í þessu tölublaði er sagt frá viðurkenn- ingum IEEE. I niðurlagi greinarinnar segir: „Það er vert að halda því á lofti sem verk- fræðingar starfa við og þeim „afrekum" sem við vinnum í daglegum störfum. Fyrsta skrefið er að við komum sjálf auga á það sem vel er gert í okkar röðum og gerurn það sýnilegt." Þessi orð eiga vitaskuld einnig við um tæknifræðinga. Ég vil nota tækifærið og hvetja verkfræðinga og tækni- fræðinga til dáða, eins og reyndar oft áður, og benda þeim á að koma verkum sínum á framfæri, til dæmis hér á síðum'Verktækni. Verktækni kemur að jafnaði út um mánaðamót. Stefnt er að því að næsta tölublað komi út milli jóla og nýárs, eða á allra fyrstu dögum nýs árs. Að þessi sinni er skilafrestur því óvenju skammur. Efni í næsta tölublað verður að berast til ritstjóra eigi síðar en 13. desember. Að lokum sendi ég lesendum Verk- tækni bestu jólakveðjur með von um að þeir njóti hátíðarinnar sem framundan er. Sigrún S. Hafstein, ritstjóri. VERKTÆKNI Engjateigi 9 • 105 Reykjavik Simi: 568 8510 • Sfmbréf: 568 9703 • Tölvupóstur: sigrun@vfi.is • sigrun@tfi.is Btadið VERKTÆKNI er gefið út af Verkfræðingafélagi íslands, Stéttarfélagi verkfræðinga og Tæknifræðingafélagi íslands og er dreift ókeypis til félagsmanna. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigrún S. Hafstein. Blaðnefnd: Sveinbjörg Sveinsdóttir (SV), formaður, Árni Þór Árnason (TFÍ) og Ólafur Pétur Pálsson (VFÍ), auk ritstjóra. Leyfilegt er að birta efni úr Verktækni ef heimildar er getið. Skoðanir sem settar eru fram i blaðinu samrýmast ekki endilega viðhorfum útgefenda. Prentvinnsla: Gutenberg ■ Mynd á forsiðu: Rafn Sigurbjörnsson ■ Aðstoð við útgáfu: Hænir ■ Simi: 55 88 100 ■ Fax: 55 88 128 • utgafa@utgafa.is

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.