Verktækni - 01.09.2004, Side 4
04 / KJARAMAL
Nýtl launakerfi
hjá Reykjavíkurborg
Jóhannes Benediktsson.
í byrjun nóvembermánaöar var innleitt nýtt starfsmatskerfi hjá Reykjavíkurborg. l' kjarasamning-
um borgarinnar við Kjarafélag Tæknifræðingafélags íslands (KTFÍ) Starfsmannafélag Reykjavíkur-
borgar, Eflingu - stéttarfélag sem gerðir voru árið 2001, var samið um að taka upp nýtt starfs-
matskerfi og leiðrétta laun í áföngum á samningstímabilinu. Jóhannes Benediktsson er fulltrúi
KTFÍ í Starfsmatsnefnd sem hefur stýrt þessari vinnu. Jóhannes hefur mikla reynslu í kjaramál-
um og hefur verið í samninganefndum KTFÍ gagnvart Reykjavíkurborg og ríkinu frá árinu 1988.
Starfsmatskerfið hjá Reykjavfkurborg nefn-
ist SAMSTAKF og er byggt á bresku kerfi,
„Single Status Job Evaluation". Starfsmats-
nefndin er þessar vikurnar að kynna niður-
stöður starfsmatsins. A kynningarfundun-
um hefur komið fram að ekki eru allir sáttir
við sitt. „En það er rétt að taka það fram, og
kom mér ánægjulega á óvart, að það heyr-
ast fáar óánægjuraddir um framkvæmd á
viðtölunum sjálfum eða starfayfirlitið sem
birtist út frá þeim," segir Jóhannes.
Jóhannes segir að í kjarasamningunum
2001 hafi verið sett það langtímamarkmið að
greiða sömu laun fyrir sambærileg og jafn
verðmæt störf. Til að ná þessu markmiði var
ákveðið að innleiða eitt samræmt starfsmats-
kerfi, hafa eina launatöflu og leiðrétta launa-
mun í áföngum á grundvelli starfsmats. Þetta
hefur krafist mikillar vinnu. Þrír starfsmenn
hafa sinnt þessu verkefni í fullu starfi auk
Starfsmatsnefndarinnar, sem áður var nefnd.
í henni eiga sæti þrír fulltrúar frá borginni og
stéttarfélögin þrjú eiga hvert sinn fulltrúa.
Haldnir hafa verið yfir 100 fundir í nefndinni
á síðastliðnum tveimur árum.
„Við mátum það svo að það væri rétt fyrir
tæknifræðinga að vera með í starfsmatskerf-
inu enda er það mín reynsla að það er auð-
veldast að sækja kjarabætur í gegnum
breytingar sem þessar. Nýja launakerfið
byggir á starfslaunum samkvæmt starfsmati
auk hæfnislauna allt að 4 launaflokkar
vegna símenntunar, auk hæfnislauna
samkvæmt mati forstöðumanns 1-4 flokkar.
Hæfnislaun vegna símenntunar komu til
framkvæmda í febrúar s.l. Röðun forstöðu-
manna kemur væntanlega til framkvæmda
í byrjun árs 2005. Starfsmatið nær til 26
tæknifræðinga í sex mismunandi störfum.
Þrjú starfsheiti tæknifræðinga fengu leið-
réttingu í starfsmati. Ég tei að við megum
vel við una hvernig við komum út úr starfs-
matinu. Það sýndi sig að laun okkar eru á
réttu róli miðað við aðra en það er einnig
mikilvægt að sjá hvernig við stöndum gagn-
vart öðrum hópum", segir Jóhannes.
Viðtöl í u.þ.b. 2400 kiukkustundir
Starfsmatið tekur til um 4500 starfs-
manna sem sinna um 400 mismunandi
störfum. Sem fyrr segir hefur innleiðing
kerfisins krafist mikillar vinnu. Sem dæmi
má nefna að tekin voru um 800 starfs-
matsviðtöl sem að meðaltali tóku þrjár
klukkustundir, samtals um 2400 klukku-
stundir, eða 300 vinnudaga! Úrvinnsla fór
fram síðastliðinn vetur og sumar. Þess má
geta að þrettán tæknifræðingar fóru í viðtal.
I viðtöiunum svöruðu starfsmenn um 70 -
90 spumingum af þeim 700 sem em i kerf-
inu. Þrettán þættir vom metnir og var hverj-
um þeirra skipt niður í fimm til átta þrep.
Þrepin aðgreina mismunandi kröfur sem
gerðar em í starfi á tilteknum þætti. Hvert
þrep gefur tiltekinn stigafjölda og samanlögð
stig allra þátta mynda heildarstigafjölda
starfsins. Niðurstöður úr viðtölum ásamt rök-
studdum tillögum um mat vom lagðar fyrir
Starfsmatsnefndina sem fór yfir mat á öllum
störfum og röðun þeirra til starfslauna.
Fundin var leitnilína milli launaflokka og
matsstiga. Samhliða þeirri línu var dregin
samsíða lína, svokölluð tekjulína, sem svar-
aði til fjárheimilda. Störfum sem lentu
undir tekjulínunni var endurraðað að þeirri
línu, þ.e. laun þeirra eru hækkuð, en alls
hækkaði tæplega helmingur allra starfs-
manna um einn launflokk eða meira.
Þó nýtt launakerfi sé orðið að veruleika
þá er vinnunni ekki lokið. Sem fyrr segir
þarf að kynna kerfið, en einnig á eftir að
hnýta lausa enda og ljúka launaleiðrétting-
um. Starfsreglur vegna endurmats og afrýj-
unaleiðir sem taka eiga gildi 1. febrúar
2005 hafa einnig verið birtar.
Starfsmat og núvarandi grunnlaunaflokkar
| » flrunmwflokkur ■ l»k|ul -fritrnUna (grlll)
Jóhannes segir að vinnan í Starfsmats-
nefndinni hafi verið mjög gefandi og fróðleg.
Margt hafi komið á óvart eins og til dæmis
það að konur eru yfir 85% starfsmanna
borgarinnar. - Nokkuð sem hann og sjálfsagt
margir fleiri hafa ekki gert sér grein fyrir. Óli
Jón Hertervig tæknifræðingur hefur verið
fulltrui KTFÍ í þessari vinnu auk Jóhannesar.
Upplýsingar um niðurstöður starfsmatsins
eru á vef samningsaðila (www.rvk.is) Þar
eru m.a. listar með starfsheitum, ístarf-
flokkun og heildarstig allra starfa sem voru
metin samkvæmt starfsmatskerfinu.