Verktækni - 01.09.2004, Síða 8

Verktækni - 01.09.2004, Síða 8
08 / NORRÆNT SAMSTARF NIL 41 í Kaupmannahöfn Fundur um kjaramál verkfræðinga og tæknifræðinga á Norðurlöndum, NIL 41 (Nordiska Ingenjörslönemötet) var haldinn í Kaupmannahöfn dagana 1. og 2. nóvember 2004. Fyrir SV sátu fundinn Hulda Guðmundsdóttir formaður félagsins og Árni B. Björnsson framkvæmdastjóri. Á fundinn mæta fulltrúar allra verkfræðingafélaganna á Norðurlöndunum. Að þessu sinni sóttu einnig fundinn fulltrúar félaga tæknifræðinga en ákveðið hefur verið að svo verði einnig í framtíðinni. Af hálfu KTFÍ sóttu fundinn að þessu sinni Bjarni Bentsson, formaður og Jón ísaksson Guðmann varaformaður. Á NIL fundi mæta þeir starfsmenn norrænu félaganna sem hafa með samningamál og kjaramál að gera. Félögin sem áttu fulltrúa á fundinum voru: IDA Danmörk verk- og tæknifr. CF Svíþjóð verkfræðingar TEKNA Noregur verkfræðingar NITO Noregur tæknifræðingar TEK Finnland verkfræðingar DIFF Finnland tæknifræðingar SV Island verkfræðingar KTFÍ fsland tæknifræðingar Efst á baugi Danmörk IDA er ekki með kjarasamning við dönsku vinnuveitendasamtökin. Félagið hefur gert kjarasamning við 21 fyrirtæki. í opinbera geiranum gerir félagið almennt kjara- samninga. í gangi en þar eru samningar lausir á næsta ári. Danska ríkisstjórnin hefur gert breytingar á sveitarstjórnarstiginu þar sem sveitarfélögum er fækkað og verkefni eru færð til. IDA hefur tekið í notkun nýja heimasíðu. Nýnemum í verkfræði fækkar og er það mikið áhyggjuefni. Finnland I Finnlandi má sjá hægan efnahagsbata. Kaupmáttaraukning hefur verið nokkur m.a. vegna skattalækkana. Atvinnuleysi í Finn- landi var 9% árið 2003 en hefur minnkað nokkuð og var 7,2% í september 2004. Með- al verkfræðinga og tæknifræðinga er at- vinnuleysið tæplega 5% og vex hraðast meðal þeirra sem eru eldri en 55 ára. Samningar eru almennt lausir í byrjun ársins 2005. Breytingar hafa verið gerðar á orlofslögum þess efnis að launþegum er frjálst að selja fimmtu orlofsvikuna gegn launum. Svíþjóö Samningar eru í höfn á almenna markaðn- um og gilda þeir til vorsins 2007. Nýnem- um í verkfræði hefur fækkað mikið og því eru þeir verkfræðingar sem starfa við rannsóknir og kennslu í erfiðri stöðu að sækja launahækkanir. Nokkur reynsla er komin á svo kallaða afkomutryggingu sem er eins konar viðbót við atvinnuleysisbæt- ur. Tryggingin er talin hafa gefist vel. Sænska tæknifræðingafélagið 0ngenjörs- förbundet) sem er með 14.000 félagsmenn hefur gert samstarfssamning við CF og til greina kemur að félögin sameinist. At- vinnuleysi meðal verkfræðinga í CF hefur aldrei verið meira og mælist nú 3,3%. Það fer hins vegar minnkandi. Meðal nýútskrif- aðra verkfræðinga hefur atvinnuleysi verið 14% og 31% þeirra sem útskrifast og eru með vinnu, starfa við annað en fagið. Stækkun ESB og afleiðingar þess á vinnumarkaðinn IDA tókst í samningi viðTDC -TeleDan- mark að auka rétt foreldra til fjarveru frá vinnu vegna veikinda barna. IDA vonast til að þetta samkomulag verði til þess að önnur fýrirtæki verði viljugri að semja um aukinn rétt foreldra til að vera hjá veikum börnum. I opinbera geiranum eru viðræður Noregur Almennt gilda kjarasamningar í opinbera geiranum til ársins 2006 en á almennum markaði eru kjaraviðræður í gangi. Norska ríkisstjórnin hefur lagt fram nýtt lagafrum- varp um atvinnulífið. Stéttarfélög eru með frumvarpið til umsagnar. IDA gerði árið 2003 könnun á hugsanleg- um áhrifum stækkunar Evrópusambands- ins til austurs, á vinnumarkaðinn. Könn- unin fólst í því m.a. að safna upplýsingum í ESB löndum, skoðun á tuttugu dönskum fyrirtækjum, greiningu á stefnu m.a. Þýska- lands, Kanada og Bandaríkjanna á inn-

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.