Verktækni - 01.09.2004, Page 13
VERKTÆKNI /13
Sólveig Þorvaldsdóttir sagði frá dvöl sinni á Haíti.
Rainrace
- Ráðgjöf á sviði aimannavarna- og einkavarnamáia
Sólveig Þorvaldsdóttir hætti störfum sem
framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins
fyrir rúmu ári síðan. í framhaldi af því
stofnaði hún fyrirtækið Rainrace sem veitir
ráðgjöf á sviði almannavarna-og einka-
varnamála hér heima og erlendis. Auk þess
að sinna verkefnum sjálf hefur hún umsjón
með samstarfi átta ráðgjafa. Hver þeirra býr
yfir sérþekkingu en þeir eiga það sameig-
inlegt að vinna að verkefnum sem tengjast
slysum og áföllum, stórum sem smáum.
Hópurinn vinnur undir samstarfsheitinu:
Rainrace Network.
Stór markhópur
Verkefni Rainrace eru ráðgjöf, rannsóknir
og kennsla varðandi hvers konar neyðar-
og björgunarmál. Markhópurinn er stór:
fyrirtæki og heimili, almannavarnir,
stjórnvöld, ríkisstofnanir, alþjóðastofnanir
og björgunaraðilar; í raun allir sem þurfa
að undirbúa sig að bregðast við neyðar-
ástandi. Sólveig segist með þessu móti nýta
þekkingu sína og reynslu á sviði verkfræði,
áhættugreiningar, almannavarna, björgun-
arstarfa og alþjóðlegrar neyðarþjónustu.
„Helstu verkefni Rainrace hingað til hafa
verið fyrir Sameinuðu þjóðirnar, rannsókn-
arverkefni fyrir ESB, þjálfun á sænsku
alþjóðarústabjörgunarsveitinni, auk ann-
arra smærri verkefna. Ég kenni líka rústa-
björgun fyrir Hjálparsveit skáta í Kópavogi,
en fæ engin laun fyrir það. - Svona er sjálf-
boðaliðagenið sterkt í manni!"
Rainracé
%
Neyðarstjórnun fyrirtækja
Rainrace veitir fyrirtækjum ráðgjöf varðandi
það hvernig bregðast skal við áföllum, þ.e.
neyðarstjórnun. Sólveig segir slíkt ástand
geta skapast af ýmsum ástæðum, til dæmis
vegna náttúaihamfara. Áhrifin á fyrirtækið
geta verið bein eða óbein, til dæmis á
starfsfólk, skrifstofur, flutningsleiðir, við-
skiptaaðila og byrgja. „Neyðarstjórnun nær
einnig til ástands sem skapast þegar stór-
slys henda fyrirtæki, stórbruni, óeirðir verða,
hryðjuverk eða annað sem tmflar verulega
starfsemi fyrirtækisins. Ekki þarf alltaf stóra
atburði til þess að valda truflun hjá fyrir-
tækjum. Ráðgjöfin felst í að fara yfir með
starfsliðinu hvað gæti gerst og hvernig væri
réttast að bregðast við. Til dærnis hefur
verið mikið verið unnið í hafnarvernd hér á
landi, hvernig fyrirbyggja megi sprengjuárás
í höfnum. Segja má að Rainrace vinni með
fyrirtækjum að svara spurningunni: Hvað ef
sprengjan springur? Viðbrögð við áfalli em
alltaf byggð á sama gmnni, hvort sem það
em almannavarnir að störfum, fyrirtæki að
bregðast við áföllum eða heimili. Viðbrögð-
in byggja á rnjög einföldum lykilatriðum,
enda verða þau að vera einföld til að koma
að gagni þegar mikið liggur við," segir Sól-
veig.
Sólveig segir nokkrar ástæður vera fyrir
því að fyrirtæki eigi að gera ráðstafanir til
að bregðast við áföllum. Þar séu í húfi aug-
ljósir hagsmunir, eins og eigenda og starfs-
fólks, en þetta varði líka samfélagið í heild.
„Ef þjóðfélagið verður fyrir áfalli, tökum
sem dæmi öflugt Kötlugos, þá er ekki nóg
að almannavarnir hafi undirbúið sig. Áhrif-
in á samfélagið koma til með að vera með
ýmsum hætti og við getum öll haft áhrif á
afleiðingarnar."
Veffang: www.rainrace.com
stjömbúnað fyrir hitakerfi
frá virkjun til heimilis
Danfoss er leiðandi í framleiðslu
stjórnbúnaðar fyrir hitakerfi
Danfoss hf
Skútuvogi 6
104 Reykjavík
Sími 510 4100
www.danfoss.is