Sjómaðurinn - 01.03.1939, Síða 43
SJÓMAÐURINN
35
alla farmenn til þess að fylgjast vel með afdrif-
um þessa máls, og gera sitt lil að réttur þeirra
samkv. eldri lögum verði cigi rýrður.
Vélstjórafélag íslands 30 ára.
20. febrúar varð Vélstjórafélag Islands 30 ára.
Óskar Stýrimannafélag Islands vélstjóratséttinni
til hamingju með afmælið.
XJtsvar og tekiuskattur.
Ef rnenn lelja sig hafa of báll útsvar og tekju-
skall, þá skal slila fyrstu kæru til niðurjöfn-
unarnefndar, út af útsvari, og skattstjóra út af
tekjuskati. Telji hlutaðeigandi sig ekki hafa
fengið leiðréttingu mála sinna, getur hann kært
hvorltveggja lil yfirskatlanefndar og siðan á-
fram lil ríkisskattanefndar, ef nauðsynlegt er.
Það cr ekki hægt að kæra lil yfirskattanefndar
og ríkisskattanefndar, nema að áður liafi verið
kært til niðurjöfnunarnefndar og skattstjóra.
Kærur, sem koma eflir að kærufrestur er úl-
runninn, eru ekki teknár lil greina. Hægl er
að fela öðrum að kæra fyrir sig yfir útsvari og
skatti.
J. Lauritsen
er eins og kunnugt er eitl af kunnustu útgerð
arfélögum í Danmörku. Það vekur þvi alltaf
mikla athygli, þegar þetta félag hyggir sér ný
skip. Nýlega hefir félagið fcngið 2 ný skip, ann-
að 4500 tonn að stærð og hitl 3200 tonn. Hafa
þessi skip verið smíðuð með það fyrir augum,
að húa sem allra hezl í haginn fyrir skipshafn-
irnar, cn á þetla liefir félagið alltaf lagt rika á-
Iierslu. Allir svefnstaðir og borðsalir eru fyrsta
flokks, en auk ]>ess liafa verið settir í hvort skip
lestrar- oð setusalir (,,Opholdsmeser“) fyrir yfir-
menn og undirmenn. Allur úthúnaður skipanna
er og að öðru leyti fyrsta flokks svo að annað
eins þekkist varla.
„Queen Elisabeth“,
slærsla skip heimsins, hljóp af stokkunum 27.
septemher s.l. Það var hyggt í skipasmíðastöð
John Brovvn & Co. i Clyde Bank. „Queen Elisa-
heth“ er systurskip „Queen Mary“, en er 4000
hr. tonnum stærra; það er 85.000 hr. tonn. Á því
eru aðeins 2 reykháfar, en 3 á „Queen Mary“.
Hver liinna 4 skrúl’a skipsins vegur 32 tonn;
eimpipurnar eru yfir 3000 fet að lengd. Orkuver
skipsins framleiðir raforku, sem er nægileg til
Ijósa fvrir borg með 200 þús. ihúum; í skipinu
eru 30 þúsund lampar. Farþegaþilfarið er 724
fet á lengd og 118 fel á breidd. Á skipinu eru
14 þilför.
FBEISTINGIN.
Skipið átli eftir að liggja nokkra daga við
hryggjuna. Fyrsta kvöldið kom kvenmaður um
horð. Stýrimaðurinn stöðvaði h'ana, en þar sem
liún sagðist vera systir N. N„ er hyggi aftur í,
fékk hún að halda áfram. Ilún kom um borð
á hverju kvöldi, og stýrimaðurinn fór nú að
veita henni athygli. Eitt kvöldið, er liún kom,
stóð liann við landganginn. Hann heilsar kurteis-
lega og segir:
— í hvert skifti sem ég sé yður, þá hugsa ég:
„eigi leið þú oss i freistni“.
Hún hrosir yndislega og svarar: — I hvert
skifti, er ég sé yður, þá liugsa ég: „heldur frelsa
oss frá illu“.
Eill af varðskipunum okkar hafði lekið tog-
ara að veiðum i landhelgi.
Skipherrann kallar: — What nam'e of the sliip?
— Helvetia, var svarað.
— Ja, hver fj....... er þá ekki sá gamli sjálf-
ur að veiðum í landhelgi, sagði skipherrann og
sigldi í hurtu.
„Losun og lestun“
heitir ný hók eftir B. Winllier, sem nýlega er
komin út i Danmörku. Er hún samin fyrir stýri-
menn og fjallar um ýmsa gagnlega hluti við
vinnu þeirra við losun og lestun. Höfundurinn
er sjálfur stýrimaður og hlýtur hók hans ágæt-
an dóm í „Medlemshlad for Dan.sk Styrmandsfor-
ening“. — Bókin er 387 síður og kostar 10 kr.
hefl og 12 kr. innbundin.
Skipstjóri á strandferðaskipi liafði nýlega
fengið nýjan viðvaning um horð, er ekki var
álitið, að sligi í vitið.
Eitt skifti, er viðvaningurinn var við stýrið,
spyr skipstjórinn, er þektur var fyrir að hafa
gaman af að skemta sér á kcstnað skipshafn-
arinnar, hvort hann hafi séð hvalinn leika sér
við skipsdrauginn?
Nei, svaraði viðvaningurinn, en ég hefi séð
skipstjórann leika sér við skipsjómfrúna.