Aðventfréttir - 01.01.1990, Side 3
HVÍLDARDAGUR
Er reiknað með
einhverri framtíð
í áformum þínum
Við þörfnumst
þess að fylgja
Kristi bæði
tafarlaust og
algjörlega.
EFTIR NEAL C. WILSON
Foröast skaltu
Ekki voru allar dæmisögur, sem Jesús sagði,
þess eðlis, að í þeim benti hann mönnum á að
fara og gera slíkt hið sama. Sumar bentu í gagn-
stæða átt — hvað ætti að forðast eða að gera
ekki. Stundum dró hann lærdóma af spilltu
mannlegu eðli til að skýra muninn á því, hvað við
annars vegar og Guð hins vegar höfumst að.
Hann sagði til að mynda sögurnar um rangláta
dómarann (Lúkas 18,1—8) og um vininn ágenga
(Lúkas 11,5—13) í því augnamiði. í dæmisög-
unni um meyjarnar tíu (Matt. 25,1—13) höf-
um við dæmi um hvorttveggja, hið jákvæða
og neikvæða, það sem okkur ber að gera og
hið neikvæða, það sem við ættum ógert
að láta.
Dæmisagan, er ég nota sem inngang
að lestrum þessarar viku, er
sagan um rangláta ráðs-
manninn, sem er að finna
í Lúk. 16,1—12. Jesús sagði
þessa dæmisögu fyrst og
fremst lærisveinum sínum til
lærdóms og gagns. En fleiri voru
einnig viðstaddir eins og venjulega
og hlýddu á frásögn hans. í þessu til-
viki voru viðstaddir, auk lærisveina
hans, bæði tollheimtumenn og faríse-
ar, sem táknuðu sjálfar andstæðurnar
Verið velkomin að njóta blessana bænavik-
unnar árið 1990. Þó að við tiltökum viku,
er við ákveðum að nota sérstakar stundir
til bænagjörðar og andlegra iðkana, þýðir það alls
ekki, að ein vika á ári sé nægileg til slíkra mála. En
það er einmitt sökum þess að við skynjum, að það,
sem heiminum tilheyrir, eigi of mikla hlutdeild í
lífi okkar, tiltökum við slíka viku sérstaklega í
þessu ákveðna augnamiði. Með því kappkostum
við, að auka vitund okkar á þörfinni fyrir æ nán-
ara samfélag í hverri viku við Drottin okkar og
frelsara, Jesú Krist.
Sé á heildina litið, varðar
heiti lestra þessarar viku
mikilvægi þess að
búa sig undir
endurkomu
Krists. Það
getur
eitt
vita
að hann sé að koma, já, jafnvel að trúa því, að hann
komi skjótt og svo enn annað að vera viðbúin
komu hans. Þegar Jesús kom til jarðarinnar fyrra
sinni, var mörgum ljóst af rannsókn spádómanna,
að koma hans var fyrir dyrum, en þó voru þeir í
hjarta sínu óviðbúnir komu hans.
Til að vera okkur til aðstoðar við þennan undir-
búning, munum við rannsaka sumar af dæmisög-
unum, sem Jesús sagði á svo áhrifaríkan hátt, er
hann fræddi áheyrendur sína um þetta efni. Jesús
notaði dæmisögur sem kennsluaðferð, en ekki
einvörðungu til að skýra mál sitt, þannig að þegar
áheyrendur hans komust í hinar algengu, hvers-
dagslegu aðstæður, sem hann ræddi um í
sögunum, sem hann sagði, minntust þeir
þeirra andlegu lærdóma, sem hann hafði
dregið af þeim. Með þessu móti voru ræður
hans títt endurteknar í lífi þeirra. Það var
næstum því, sem þeir gætu heyrt rödd hans
hljóma á nýjan leik, þegar þeir komust í
þær kringumstæður sem hann hafði lýst svo
lifandi fyrir þeim eða þeir tóku þátt í hinum
algengu störfum, sem svo oft voru uppistað-
an í hinum einföldu en eftirminnilegu og at-
hyglisverðu sögum, sem hann sagði.
Aöventfréttir 1. 1990
3