Aðventfréttir - 01.01.1990, Blaðsíða 22

Aðventfréttir - 01.01.1990, Blaðsíða 22
Bara fyrir krakka Að fínna fólgna fjársjóðinn Eftir Penny Estes Wheeler Athugasemd frá höfundi: Tilgangur minn með því að fjalla um þessar átta dœmisögur er tvíþœttur. í fyrsta lagi vona ég að umfjöllun staðreynda og lýsing smáatriða veiti frásögninni raunveruleikablæ sem oft vantar í Biblíusögur. Og í öðru lagi, og það sem er nú það sem er öllu þýðingarmeira, vona ég að dœmisögurnar og útlegging þeirra muni eignast varanlegan sess í hjarta barnanna, sem hlýða á þœr. Vegnaýmissa nákvæmra smáatriða varðandi landafræði Biblíulandanna, menningu þeirra o. s. frv. hvet ég kennara til að lesa sögurnar orð fyrir orð. Yfirleitt eru stuttar setningar í sögunum og orðaforði einfaldur. Eðlilega þurfa kennarar að breyta orðalagi og einfalda það þegar um mjög unga áheyrendur er að ræða. Hið sérstaka verkefni fyrir fyrstu söguna (að láta alfaalfa-fræ spíra) mun halda áfram vikuna á enda. Næstu þrjár sögur birta táknmynd- ir, sem merkja leit Guðs að hinu týnda. Síðan rœðum við um að búa hjarta okkar undir að taka á móti Jesú og að láta allt af hendi til að eignast fjársjóðinn dýrmœta (ríki Guðs). Lokalesturinn er tilraun til að fá börnin til að hugsa um himininn. Hvíldardagur Bóndinn og fræið Biblíutexti: Matt. 13,1—8; Mark. 4,3—8. Jón bóndi leit út um gluggann á hlýja og notalega steinhúsinu sínu. Regn- uoi lagðist yfir þurru og hörðu moldina á ökrunum umhverfis húsið hans. María, yngri dóttir hans, hjúfraði sig upp að hon- um og hann strauk dökkt hár hennar. ,,Lyftu mér upp, pabbi," sagði hún, ,,svo að ég geti séð regnið." Mamma raulaði lag og lyfti potti af eld- inum. ,,Það verður rigning líka þegar við erum búin að borða," sagði hún við þau. ,,Komið þið nú að borða." Máltíðin var ánægjuleg. Allir gátu verið glaðir, því haustrigningarnar voru að hefjast. Regnið mundi mýkja og lina sól- bakaða moldina og eftir fáeina daga mundu svalir vindar blása skýin í burtu. Eftir einn eða tvo sólríka daga mundi moldarforin þorna upp og vera alveg mátuleg til að plægja. Eftir matinn fór Jón bóndi út í skúr til að huga að plógnum sínum. Plógurinn var bara greinóttur viðarlurkur með járn- odd á endanum. Bændur notuðu uxa eða asna til að draga þá. Það var erfitt starf að stýra plógnum, jafnvel eftir að moldin var orðin lin og mjúk. Menn þurftu að vera handsterkir og hafa auga fyrir að stýra plógnum beint. En jafnvel þótt starfið væri þreytandi, var bóndinn óþreyjufullur eftir að byrja. Þegar Jón bóndi hafði gengið úr skugga um að plóg- urinn væri í fullkomnu lagi, fór hann að líta á fræpokana. Þá var víst ekkert annað að gera en að bíða. María spretti úr spori við hliðina á hon- um, meðan hann plægði fyrsta langa og beina plógfarið. Hún ýmist masaði eða söng og pabbi hennar var feginn að hafa hana hjá sér. Bóndinn hélt í plóginn með hægri hendi. í þeirri vinstri hélt hann á löngu priki, sem hann notaði til að stýra ösnunum. Asnar áttu það til að vera dynt- óttir og hann mátti engan tíma missa. Annað regn- tímabil mundi koma fljótlega og þá yrði allt fræið að vera komið ofan í moldina. Loksins var kom- inn tími til að sá fræinu. Jón bóndi lét hrúgu af fræi í fellingu í skikkjunni sinni. Svo gekk hann hægt og varlega út á akur- inn og í hverju skrefi þeytti hann hand- fylli af fræi yfir víðan hálfhring á akrin- um. Hann reyndi að ganga jöfnum skref- um svo að fræið dreifðist jafnt og ekkert færi til spillis. Það yrði hvort sem er nógu mikið, sem færi í fuglana, sem eltu hann gargandi og steyptu sér niður jafnvel þótt María litla baðaði út höndunum og hróp- aði á þá um að láta fræið í friði. Jón bóndi hafði sáð að haustinu eins lengi og hann gat munað. En í ár var allt orðið breytt. Þegar hann í ár þeytti fræ- inu í víðum hálfhring, hverjum á eftir öðrum, hafði hann nokkuð nýtt og und- ursamlegt að hugsa um. Jón bóndi hafði nefnilega hlustað á kenn- ara, mann sem sagði spaklegar og undursam legar sögur. Sögurn ar sem 22 Aöventfréttir 1.1990 UJiSlOJt*

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.