Aðventfréttir - 01.01.1990, Side 5

Aðventfréttir - 01.01.1990, Side 5
hugann við það, sem þessi heimur hefur upp á að bjóða; faríseum, sem treyst hafði verið fyrir frelsunarboðskap fyrir heim- inn og loks lærisveinunum, sem voru að- njótandi þeirra forréttinda, að hafa sam- neyti við Drottin sinn daglega. Þessi dæmisaga öll snertir viðbúnað fyrir framtíðina. Á meðan rangláti ráðs- maðurinn hafði vinnu, leiddi hann ekki hugann að framtíðinni. En þegar framtíð- in birtist honum sem bláköld staðreynd, einbeitti hann sér að málinu af öllum huga sínum. Viðfangsefnið var ekki það, hvort ráðabrugg hans hafi verið ótilhlýði- legt og jafnvel ekki ólögmætt — það, sem málið snýst um er, að hann hugsaði fram á veginn! Jesús segir, að börn Guðs, þau, sem ríki hans munu erfa, eigi að vera að minnsta kosti jafn „slungin" og umhugað um framtíðina og börnum þessa heims. Þýðingarmesti viðburðurinn Endurkoma Jesú er þýðingarmesti við- burðurinn, sem þessi heimur mun verða vitni að. Það er ekki hægt að hugsa til þess, að við verðum óviðbúin honum. Ei- lífðarframtíð okkar er langtum þýðingar- meiri en framtíð okkar til að mynda í starfi. Ef við getum ráðið við hin verald- legu mál okkar, ættum við að geta gert okkur grein fyrir, hvað þarf til, svo að við getum verið undirbúin fyrir himininn, og komið því síðan í verk. En hve það er nú samt auðvelt að hafa endaskipti á hlutunum og gefa innantóm- um málum forgang í lífinu. Stundum verðum við svo altekin af því ,,að klífa metorðastigann" að svo virðist sem við glötum andlegum skilningi og dóm- greind. ,,Þeir, sem verja ævidögum sín- um í að safna jarðneskum fjársjóðum, sýna að þeir búa yfir minni visku, minni hugsun og umhyggju fyrir eilífum vel- farnaði sínum en rangláti ráðsmaðurinn sýndi gagnvart sinni jarðnesku fram- færslu" IChrist's Object Lessons IDœmi- sögur Krists) eftir E.G.White, bls. 372). Við þurfum að minnast hve Jesú varaði við að verða háður þægindum þessa heims. I sögunni um sáðmanninn féll sumt af sæðinu meðal þyrna. Jesús sagði, að þyrnarnir merktu áhyggjur, auðæfi og nautnir lífsins (Lúkas 8,14), sem kæfa andlega íhugun hjá okkur. Við þurfum ekki að vera mjög fjáð til að falla fyrir slíkum freistingum. Bara það að langa til að verða ríkur, eða réttara sagt, aðeins að verja of miklu af tíma okkar og áhuga í veraldleg mál leiðir til hins sama að lok- um. Kjarninn í því sem Jesús sagði var þetta: ,,Hví að nota orku í að fást við ver- aldleg málefni, þegar eilífðarörlög ykkar eru í húfi?" Sumir skarpgáfaðir menn geta kannski hugsað um fleiri en eitt efni í einu. En ógerlegt er að einbeita sér nema að einu efni í einu því í orðinu felst að hugsunun- um er beint að einu máli. Páll postuli seg- ir svo: ,,En eitt gjöri ég . . . Eg seilist eftir því, sem framundan er, og keppi þannig að markinu, til verðlaunanna á himnum, sem Guð hefur kallað oss til fyrir Krist Jesú" (Fil. 3,14). Laódíkeusöfnuðurinn, sem um er getið í Opinberunarbókinni, keppti ekki að neinu. Hann er ánægður með þáverandi ástand sitt. ,,Þú ert hvorki kaldur né heit- ur . . . Þú segir: ,,Ég er ríkur og orðinn auðugur og þarfnast einskis"" (Op. 3,15—17). Það virðist óhugsandi að slíka afstöðu megi finna einmitt hjá þeim hópi manna, sem segist trúa, að Jesús komi skjótt. Auðvitað ætti þetta fólk, sem sér, að næstum öll táknin um endurkomu Krists eru þegar uppfyllt, að vera fullt af áhuga — vakandi, vökult, allsgáð, eftir- væntingarfullt og viðbúið. En engill Laódíkeu segir það vera hálfvolgt og ve- sælt. Harry Emerson Fosdick, sem var kunn- ur prédikari áður fyrr í New York, sagði frá skólafélaga, sem ákvað að sinna heimavinnu sinni ,,á vísindalegan" hátt. Hann keypti sér sérstakt skrifborð, þar sem hann gat látið bókina liggja með viss- sum halla, lampa, sem brá nægilegri birtu yfir bókina, augnskyggni, sem úti- lokaði alla utanaðkomandi birtu, inniskó ogjakka svo að hann kæmist í lestrarskap til að sinna alvarlegu námi. Svo kom þessi námsmaður heim og lagaði til á sér fötin, stillti lampann, augnskyggnið, skrifborð- ið og bókina — og steinsofnaði. Líkt og Laódíkeumaður! Að afneita hinu augljósa Það er hluti af þessari mynd, að einmitt þeir sem þvertaka fyrir að vera Laódíkeu- menn, eru þannig fullkomið dæmi um hugsunarhátt þeirra. Þeir sem segja: „Vakning er fyrir einhverja aðra. Sjálfur er ég alveg viðbúinn" eru einmitt þeir sem mesta þörf hafa fyrir vakningu. Því eru hvatningarorð Jesú þessi: „Verið brennandi af áhuga og gjörið iðrun." Iðr- ist hálfvelgju ykkar, sjálfsánægju, þess, hve skjótt þið semjið ykkur að háttum heimsins. Verið brennandi af áhuga — sem er algjör andstæða hálfvelgjunnar. Verið upptendruð ^af áhuga. Fyrir nokkrum mánuðum hélt aðvent- söfnuðurinn heimsþing sitt. Eftir að hafa hlýtt á skýrslur um framgang fagnaðarer- indisins í mörgum löndum, samþykkti söfnuðurinn áætlun um alheimsboðun. Ekki átti framar að vinna í pörtum. Allur heimurinn er athafnasvið okkar og allir okkar kraftar beinast að því að boða heiminum öllum fagnaðarerindið. „Dag- ar, vikur og mánuðir líða en við höfum einum deginum, einni vikunni, einum mánuðinum skemmri tíma til að sinna verki okkar. I mesta lagi fáein ár í viðbót og þá mun raustin, sem við getum ekki neitað að svara, hljóma og segja: „Gjör þú reikningsskil ráðsmennsku þinnar"" (Sama rit, bls. 373,374). Viltu gefa Guði heit í dag eða endur- nýja heit þitt? Frestaðu því ekki til viku- loka, ekki einu sinni til kvölds. Gerðu þér grein fyrir hvað í húfi er: Eru höfuðatrið- in í lífi þínu — það er að segja, það sem þú lætur þér virkilega annt um — er það að leiða þig í áttina til himins eða í burtu þaðan? Héldi líf þitt áfram á sömu braut og það nú er, hvar mundi það þá enda? Páll postuli flutti söfnuðinum í Kólossu þessi hvatningarorð — og vissulega okk- ur einnig: „Fyrst þér því eruð uppvaktir með Kristi, þá keppist eftir því, sem er hið efra, þar sem Kristur situr við hægri hönd Guðs. Hugsið um það, sem er hið efra, en ekki um það, sem á jörðinni er . . . Deyðið því hið jarðneska í fari yð- ar: Hórdóm, saurlifnað, losta, vonda fýsn og ágirnd, sem ekki er annað en skurð- goðadýrkun . . . Iklæðist því eins og Guðs útvaldir, heilagir og elskaðir, hjart- ans meðaumkun, góðvild, auðmýkt, hóg- værð og langlyndi . . . En íklæðist yfir allt þetta elskunni, sem er band algjörleik- ans . . . Hvað sem þér gjörið í orði eða verki, gjörið það allt í nafni Drottins Jesú og þakkið Guði föður fyrir hann" (Kól. 3,1-17). Síðasta setningin dregur fram kjarna málsins alls: „Gjörið það allt í nafni Drottins Jesú." Ef við gefum Guði slíkt heit, mun okkur „finnast fátt um hið fá- nýta veraldarprjál." Þegar við gerum það heit, að hafa Krist fyrstan, síðastan og bestan í öllu, mun allt annað fá þann sess, sem því hæfir — og við munum taka þann sess, er hæfir okkur, en hann er við hlið Jesú nú og um eilífð. Spurningar til umræðu 1. Útskýrið Lúkas 16,8—'Húsbóndinn hrósaði rangláta ráðsmanninum." Hver er húsbóndinn hér? 2. Hversu mikið af fjármunum okkar tilheyrir Guði og hve mikið okkur sjálfum? 3. Útleggið dæmisöguna um rangláta ráðsmanninn, þannig að hún eigi við (a) söfnuðinn, (b) líf ykkar sérstaklega. Neal C. Wilson var for- seti heimssambands Sjö- unda dags aðventista þar til íjúlí 1990. Aöventfréttir 1. 1990 5 *EGISTÍB

x

Aðventfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.