Aðventfréttir - 01.01.1990, Síða 16

Aðventfréttir - 01.01.1990, Síða 16
víngarði Drottins. Þar skiptir starfið, þjón- ustan höfuðmáli, en ekki endurgjaldið. Sé þjónustan við Guð rétt skilin, erum við með henni búin að hljóta gjöf, öðlast for- réttindi. Hugleiðið til að mynda hinar sterku hamingju-, þakklætis- og gleðitilfinning- ar, sem fylla hjarta okkar, þegar við leið- um einhvern til Krists. Augu okkar ljóma og við verðum sérlega hýr á svipinn að verða vitni að því er þau gefast Kristi og láta skírast í hans nafni. Hvað getur veitt meiri innri ánægju? Er það ekki endurgjald í sönnustu merkingu þess orðs? Hið sama má segja um fylgd við Krist almennt. Að vera virkur í þeirri fylgd er bæði gjöf og forréttindi. Lífið með Kristi er í sjálfu sér laun. Okkur veitast sérstök auðæfi — auðæfi sem taka langt fram öll- um jarðneskum auði. Til grundvallar öllu þessu er þekkingar- auður — eða vitneskjan um það að við hvílum í hönd Guðs, að við eigum föður á himnum, sem elskar okkur, sem hefur áhuga á okkur og leiðir okkur um rétta vegu. Kannski skiljum við ekki alltaf, hversu viturlegt það er að ganga á vegum hans, en það megum við vita, að ef við göngum á þeim og treystum honum ævinlega, munum við sjá það að lokum að þeir munu reynast okkur það besta sem hugsast getur. Því að ,,vér vitum, að þeim sem Guð elska, samverkar allt til góðs" (Róm. 8,28). Að ganga örugg Ef við höfum þessa sérstöku þekkingu, getum við því runnið æviskeið okkar í ró- semi og trausti, því að þá eigum við þessa fullvissu, að „hvorki dauði né líf . . . hvorki . . . hæð né dýpt, né nokkuð ann- að skapað muni geta gjört oss viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú Drottni vorum.” Og það er enn meiri auðlegð sem fellur þeim í skaut sem hefja starf snemma í víngarðinum: fullvissan um endurlausn- ina — um það, að vera barn Guðs, sú upp- lifun að lifa lífi, sem hefur gildi og sú tilfinning að vera einhvers virði, sem veitist fyrir vitneskjuna um að vera skap- aður í mynd Guðs. Allt þetta og margt fleira eru blessanir, sem veitast lærisveinum Krists þegar í þessu lífi og þeim, sem honum þjóna. Frá þessum sjónarhóli séð hafa þeir, sem starfað hafa í víngarðinum frá því snemma morguns, hlotið fjölmargar blessanir fram yfir þá sem komu á síð- ustu stundu. En hvað þessir síðbúnu hafa farið margs á mis! En það er gleðilegt að þeir skyldu koma þótt seint væri! Sé dæmisagan skoðuð þannig, verður hún allt í einu deginum ljósari, þótt við fyrstu sýn hafi okkur virst erfitt að túlka hana. Við sjáum að það er enginn forrétt- 16 indahópur og að enginn er ranglæti beitt- ur. Hafi einhverjir farið einhvers á mis eru það þeir.sem komu á síðustu stundu og urðu því af öllum þeim góðu kostum, sem þeir nutu sem komu snemma. En jafnvel á elleftu stundu hlotnaðiat þeim sama blessunin og þeim sem á undan þeim komu: hina dýrmætu vitneskju um að vera í hendi Guðs, sú upplifun að lifa lífi, sem hefur gildi og sú tilfinning að vera einhvers virði, sem veitist fyrir vitn- eskjuna um að vera skapaður i mynd Guðs. I þessum skilningi öðlast þeir í rauninni sömu laun og hinir, sem fyrr komu. Merkir það, að þeir, helgað hafa allt œviskeið sitt kristilegu starfi og þjónustu muni engra blessana njóta fram yfir þá sem koma á síðustu stundu? Og það er eitt enn sem veitist hvorum- tveggja að sama marki, dýrmætasta gjöf- in, sem til er — eilíft lif. í þessu efni verður það ljóst, að í þjónustu Guðs eru allir jafn- ir, því að ekki getur verið um æðri laun að ræða en sjálft eilífa lífið. Þeir sem fyrstir komu geta ekki beðið um meira. Þeim sem komu seint var ekki hægt að gefa neitt minna. Eilíft líf verður að vera hið sama fyrir alla. Dæmisagan um verkamennina í vín- garðinum hjálpar okkur til að skoða, hvaða hvatir liggja að baki þjónustu okk- ar. Hvers vegna ert þú kristinn? Hvers vegna ert þú lærisveinn Krists? Hvers vegna starfar þú í víngarði hans? Kærleikur ætti að vera hvöt okkar — kærleikur til Jesú og kærleikur til sam- ferðamannanna. Ef við skynjum þetta til fulls mun þjón- usta okkar og fylgd við Jesú ekki mótast af hugsuninni um endurgjald, heldur fremur af viðleitni til að sýna Drottni kærleika okkar og þakklæti fyrir það sem hann hefur fyrir okkur gert. Og ef við höfum í reynd upplifað sams konar kær- leika í okkar lífi, getum við ekki komist hjá því að veita honum áfram til sérhvers sem á vegi okkar verður. Guð leitar fólks, sem er fúst að fara út í víngarð hans. Hvílík forréttindi falla okkur þá í skaut! Það eitt væri nægileg laun í sjálfum sér. Kannski hefur þú hik- að þar til nú. Minnstu þess, að dagurinn er brátt á enda. Senn kemur nóttin. Það er ekki langur tími eftir. Við ættum að grípa tækifærið, sem við höfum — að svara Guði játandi. Jesús bíður þín, vegna þess að hann elskar þig — og kærleikur hans er þó sannarlega ríkuleg laun! Spurningar til umræðu 1. Er það rangt að vænta launa? Hvern- ig tók Jesú á þessu máli? Hvað er vegið og metið? 2. Hvað hafa, að mati höfundar, þeir verkamenn, sem komu snemma, fram yf- ir hina síðbúnu? 3. I hverju eru allir verkamenn jafnir? Hvað segir þetta okkur um hjálpræðið? Harald Knott er formað- ur Sambandsins í Suð- ur-Þýskalandi. Aöventfréttir 1. 1990 M31SIÍ

x

Aðventfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.