Aðventfréttir - 01.01.1990, Side 27

Aðventfréttir - 01.01.1990, Side 27
Hann plantaði víngarði Biblíutexti: Matt. 7,24—27 Eitt sinn flutti afar heimskur maður til Palestínu. Hann hafði nóga pen- inga milli handa, en hann var bara ekki neitt sérlega slyngur að fara með verðmæti. Hann vissi hvað hann vildi og hann átti nóg af pen- / ingum til að kaupa það sem hann langaði í. Hann langaði í yndislegt \ hús og stórt, sem reist yrði fjarri \ smáhýsum hinna fátæku. Hann valdi sér undursamlegan stað undir húsið sitt. Palestína er að mestu leyti hrjóstrug. Mestan hluta ársins rignir lítið og þar sem ekki rignir, er sjaldgæft að sjá gras og lítið er um tré. Landið er samt fallegt með alla vega löguðum hæðum og dalverpum. Og þegar sólin kemur upp á morgnana og sest á kvöldin, teygja sig langir skuggar yfir sandbreiðurnar. Maðurinn ákvað að byggja húsið sitt á fallegri sléttri lóð. Hann réð smiði og múrara og verkið hófst. Hann ætlaði að láta byggja húsið úr vönduðustu gerð steina sem fáanleg væri. Herbergin á fyrstu hæð ætlaði hann að láta byggja umhverfis húsagarð. Þakið á annarri hæð átti að vera verönd, þar sem fólk gat sest niður og ræðst við eða jafnvel sofið undir stjörnubjörtum himn- inum. Hann ætlaði að láta byggja gripa- hús fyrir geitur, sauðfé og asna öðrum megin við húsið. Búið var að gera grunninn og að reisa eins metra háa veggi þegar ferðalangur átti þarna leið framhjá. Ferðamaðurinn gapti af undrun. ,,Hvað ertu að gera?"i spurði hann ríka mannninn. ,,Geturðu ekki séð það. Eg er að byggja hús. Er þetta ekki besti byggingarstaður heims?" Sá heimski bandaði með hand- leggnum i áttina hæðanna sem risu svo fallegar í fjarska. ,,Þú mátt ekki byggja húsið þitt héma. ,,Þú ert að byggja húsið þitt á sandi. Þegar fer að rigna, mun það skolast á brott. Svo byggir þú hérna í breiðu gili. Það mun yf- irfyllast þegar fer að rigna." Augun í heimska manninum rang- hvolfdust undir þykku augnabrúnunum. Munnurinn á honum, sem var næstum hulinn undir þykku, svörtu skeggi, opn- aðist nú upp á gátt og hann skellihló. ,,Eg er enginn bjáni!" sagði hann. ,,Ég mundi aldrei byggja húsið mitt á sandi. Þetta er góð lóð. Og þegar flæðir, berst flóðið ekki alla leið hingað. Næsta á er í fjögurra kíló- metra fjarlægð." Hann sneri sér við og varð starsýnt á verkamann einn, sem hafði hætt barsmíðinni og farið að leggja vel við hlustirnar. Okunnugi maðurinn laut niður og tók upp handfylli af jarðveginum. Hann nuddaði hann milli fingranna og kreisti hann svo í hnefanum. Sandborinn jarð- vegurinn tók að renna í fyrstu hægt og ró- lega út á milli fingra hans en svo hraðar og hraðar. ,,Ja, ég hefði nú gjarnan (viljað verja nokkrum tíma með þér og ræða við þig," sagði heimski maðurinn, tók undir handlegginn á manninum og ýtti honum af stað, ,,en nú verð ég að halda áfram að vinna. Smiðirnir og múrararnir hætta að vinna ef ég fylgist ekki með þeim." Þetta varð fallegt hús. Þegar heimski maðurinn stóð uppi á þaki gat hann séð margra kílómetra leið. Hann brosti því hann var svo hreyk- inn yfir húsinu sínu. sunnan megin í slakkanum. Svo hafði hann í hyggju að bæta við einu herbergi eða svo eftir eitt eða tvö ár. Konan sem hann ætlaði að fara að eiga hlyti að verða stórhrifin af þessu stóra húsi. Allt fór vel í fyrstu. Konan kom og henni þótti svo vænt um nýja húsið sitt. Þarna var djúpur brunnur, sem hún gat farið í og sótt sér vatn til að vökva garðinn sinn, þar sem spruttu agúrkur, laukur og melónur. Það byrjaði að rigna í september. Það voru bara smáskúrir. Maðurinn hló með sjálfum sér, þegar hann minntist þess, sem ókunnugi maðurinn sagði. Það var ekkert hægt að finna að húsinu hans. Já, reyndar gegnbleytti rigningin sólbakað landið, svo að nú varð jarðvegurinn það linur að hann gat byrjað að plægja. Lífið lék svo sannarlega við hann. Svo kom að því að það fór að rigna fyrir alvöru, alveg eins og hellt væri úr fötu. Konan hans hljóp um allt húsið til að reyna að þétta það, svo að vindurinn sem fylgdi rigningunni, smygi ekki inn. En maðurinn hló bara, þar sem hann stóð úti á akri og virti fallega og sterka húsið sitt fyrir sér. Kolsvört ský hrönnuðust upp á himnin- um. Elding leiftraði yfir himinhvolfið. Og langt í burtu, þar sem hann gat ekki séð, hvolfdust milljónir lítra af vatni á sólbak- aðar hæðirnar. Það voru engin tré til að stöðva vatnsrennslið. Það var held- ur ekkert gras til að drekka það í sig. Svo þúsund smálækir runnu nú yfir Miðvikudagur Einkar heimskur maður Aöventíréttir 1. 1990 27 Bara fyrir krakka

x

Aðventfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.