Aðventfréttir - 01.05.1992, Síða 5
Spenna
r
1
loftinu
Búist til brottfarar í góðu veðrt.
Æskunni er boðið upp á margt
spennandi þessa daga. Því miður er
það oft síður en svo þess eðlis að
hægt sé að mæla með þátttöku.
Ungmennin freistast til að líta svo á
að ekkert spennandi gerist á okkar
vegum. Við þurfum að sýna fram á
að trúin er til gagns og gamans hér
og nú en ekki bara einhvern tíma í
ókominniframtíðáhimni. Hvaðátti
Kristur við þegar hann bauð okkur
„líf í fullri gnægð“ Jóh. 10:10?
Svifflugskynning var sannarlega
spennandi, lærdómsrík og þrosk-andi
reynsla sem 13 karlar, 5 konur og 2
börn fengu að reyna 13..september
s.l. á Sandskeiði. Veðrið var
einstaklega gott og fóru þeir
Sigurbjarni (giftur Lindu Jónsd.) og
vinur hans Stefán upp með okkur á
tveimur svifflugum til að svífa um í
loftinu yfir Bláfjöllunum í friði og ró
eins og fuglinn fljúgandi.
Allir voru mjög ánægðir og eru
margir búnir að biðja um að þetta
verði endurtekið næsta sumar. Það er
algjörlega þeim Sigurbjarna og Stefáni
að þakka að við fengum þetta einstaka
tækifæri á svo góðum kjörum og
munum við athuga hjá þeim um
möguleika fyrir næsta sumar.
Takið eftir: Af gefnu tilefni þarf að
taka fram að svifflug er flugvél án
vélar, sem tekur tvo menn í sæti, en
ekki flugdreki þar sem menn hanga í
loftinu!
David West.
SKÁTAMÓT í FAGRADAL VIÐ BREIÐABÓLSSTAÐ
Skátamót eru bara fyrir hrausta
stráka og stelpur. Gamlir menn eins
og undirritaður sem fengu þann
heiður að vera með fundu þetta
fljótt. Á föstudagskvöldinu 10. júlí
yfirgáfum við bíla, vatnssalerni og
rennandi vatn og lögðum upp á heiði
í góðu veðri. Þung byrði var á baki
allra. Við bárum með okkur allt sem
við þurftum á að halda - og það var
ekkert smávegis! Gangan var upp í
móti og var farið að dimma þegar
við loksins komum á slétt graslendið
í botni Fagradals. Þá þurftu hraustir
strákar að fara aftur af stað til að ná
í vatn frá læk hinum megin við
hæðarhrygg á meðan örn og Pétur
bjuggu til salernisaðstöðu handa
okkur.
Veðrið á hvíldardeginum var skin
og skúr - en ekki var minna um að
vera á mótinu fyrir þær sakir. Eftir
hádegi var farið í gönguferð upp á
Geitafell á meðan örn og María bjuggu
til sporleik. Úthaldið hjá skátunum
virtist vera ótakmarkað. Það var
örugglega gengið meira á einum
sólarhring en ég hefi gengið á mörgum
mánuðum.
Við vorum þakklát fyrir að fá þurrt
veður á sunnudagsmorgni til þess að
takaniðurtjöldinoggangafrá. Menn
voru fegnir að komast niður í byggð
aftur. En enn einn skemmtilegan
viðburð áttum við í vændum. Pétur og
Ólöf á Breiðabólsstað eru mikið
hestafólk og fengu skátarnir að fara
á hestabak og fara smáleið. Þetta var
rúsínan í pylsuendanum fyrir marga.
Þreytt en ánægð fórum við aftur heim.
Við þökkum foringjunum Erni, Pétri,
Jónu Björk, Maríu og Ingibergi, fyrir
gott samstarf og öllum Aðventskátum
fyrir góða þátttöku.
David West.
Aðventfréttir 5.1992
5