Aðventfréttir - 01.01.1995, Side 5
Frá
Æskulýðsdeildinni
Æskulýðsstarfið er ferli en ekki
rígbundnar hefðir. Hluti af þessu ferli
eru hinir mismunandi hópar sem nú
eru starfandi að frumkvæði unga
fólksins sjálfs. Ungmennin sem
hittast í húsakynnum safnaðarins
eða í sumarbústöðum eða á
heimilum til andlegra stunda eða til
félagslegs gamans. Allir eru
velkomnir. Engan má því vanta.
Sumir heimsækja aldna eða
elnmana öllum til mikillar ánægju.
Einnig nýtur Hlíðardalsskóli góðs af
heimsóknum ungmennanna. Starf-
semi unga fólksins er því fjölbreytt
um þessar mundir og ber því í skauti
sér bjartari framtíð með hækkandi
sól.
Framundan er æskulýðsvikan
(27. - 31. mars) með höfuðáherslu á
undlrstöðuatriði kristinnar trúar:
Sköpun mannsins, fallið - hvað er
synd? Hvað er sálin - hvernig
glatast hún - hvernig frelsast hún?
Frelsi fyrir fyrirgefningu, frelsi fyrir
lög eða sigur Krists og starf Heilags
anda. Er hægt að verða fullkomin?
Skrökvaði Kristur þegar hann sagði
að við ættum að vera fullkomin?
Endurkoman, nýja jörðin, eilífðin
t
Þökkum ykkur öllum innilega
auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa
Bjarna S. Finnssonar
Guð blessi ykkur öll
Kristín Elísdóttir
Elín Bjarnadóttir
Halldór Ólafsson
Eria Bjarnadóttir
Sigurgeir Aðalgeirsson
Haukur Bjarnason
Erna Svavarsdóttir
Hörður Bjarnason
OllýSmáradóttir
Barnabörn og barnabarnabörn
o.s.frv. Komdu, vertu með og taktu
þátt. Við hittumst sem vinir þar sem
allir eru jafnir að virðingu, þar eð við
eigum öll Guð að föður.
Seinna (tíminn óákveðinn,
sennilega í apríl) verður helgarmót
að Hlíðardalsskóla. Efni mótsins
verður NÓAFLÓÐIÐ OG ÁHRIF
ÞESS Á YFIRBORÐ JARÐAR,
ÍSALDIRNAR OG FRUMMAÐUR-
INN SVOKALLAÐI. Þú munt heyra
útskýringar sem munu koma þér á
óvart. Þetta verður því bæði
skemmtilegt og fróðlegt, fyrir utan
góðan félagsskap. Nánar verður
greint frá þessu síðar.
Ungmennamótið í sumar verður
sennilega dagana 22/23. til 26. júní.
Þetta verður ferðamót. Farið verður
frá Reykjavík til Skálholts og þaðan
um hálendið þvert til Hóla í
Hjaltadal. Kynntar verða orsakir
siðaskiptanna, saga þeirra hér á
landi og áhrif um leið og við
heimsækjum þessa sögufrægu
staði. Andlegar stundir verða í
höndum erlends gests. Hafst verður
við í tjöldum og kofum á leiðinni.
Þetta verður ógleymanleg upplifun
með góðum ferðafélögum og
miklum söng, í faðmi stórbrotinnar
náttúru og á merkustu slóðum
kristninnar á íslandi. Nánari
upplýsingar koma seinna.
Safnaðarheimili
Haf narfj arðarsafnaðar
í smíðum
Austurhlið hússins
Eins og lesendur Aðventfrétta vita
festu Samtökin kaup á fokheldu
húsnæði í Hólshrauni 3, Hafnarfirði
fyrir söfnuðinn þar. Innrétting þess
húsnæðis er nú í fullum gangi.
Myndirnar hér að ofan eru af húsinu
en hluti safnaðarins er rúmlega
helmingur suður enda efri hæðar
hússins.
BjÖRGVIN SNORRASON, Æskulýðsleiðtogi
Kirkjuárið 2. ársfjórðungur 1995
APRÍL
1. Útbreiðslublöð og bækur
22. Menntamáladagur - Aðventfréttir - fórn
MAÍ 29. „Tökum höndum saman“ - fórn til nýrra safnaða
6. Dagur Systrafélagsins
13. Dagur anda spádómsins
JÚNÍ 20. Fórn til Alþjóða líknarsjóðsins
3. Dagur aðventskáta - fórn til skátastarfs
Afgefnu tilefni bendum við á að þó að hvíldardagar séu tileinkaðir
sérstakri starfsemi eða málefni er ekki tekin upp sérstök fórn nema á
þeim dögum þar sem þess er getið. Allar aðrar fórnir renna í
safnaðarsjóð.
AðventFréttir 1,1995
5