Bræðrabandið


Bræðrabandið - 01.02.1974, Side 7

Bræðrabandið - 01.02.1974, Side 7
Bls 7 -BRÆÐRABANDIÐ- 2. tbl. fluttur til alls heimsins (Op. 14. og 18.) Við truum því að systir White hafi gert það ljqst, að Kristur getur ekki komið fyrr en allur heimurinn hefur fengið sanngjarnt tækifæri til að heyra hinn frelaandi boðskap Guðs. Hún skrifaði t.d.: "Hefði fólk Guðs framkvæmt fyrirætlun Guðs um að flytja heiminum náðarboðskapinn, væri Kristur þegar kominn." (6T, bls. 450.) Guð var fús að leiða verk sitt til skjqts sigurs í kjölfar 1844 - hreyfingarinnar, árið 1888 og aftur 1901 (meðal annars). Hvers vegna hefur það dregizt? Hvað er hægt að gera núna? Þreföld áskorun. Sem svar við þessari spurningu, senda fulltrúarnir á ársfundinum 1973 eftirfarandi áskorun til allra starfsmanna og meðlima um allan heim. Áskorunin er þre- föld. 1. Opnið án frekari tafa hjartadyrnar alveg fyrir Frelsaranum, sem bíður og grátbænir (Op. 3:20). Veitið Jesú aðgang sem alvaldi lxfsins. Látið hann koma inn í hjartað og breyta því og stjórna. Lifið undir áhrifum "vorregnsins" í samræmi við allt það ljós, sem þið hafið. Iðkið allt, sem Guð hefur ráðlagt ykkur. 2. Leg^ið til hliðar allan mótþróa, sem hefur of lengi ha’ft ahrif á ákvarðanir einstaklings og safnaðarins. Þetta mun undirbúa leiðina fyrir endurnýjun "haustregnsins", sem hefur dregizt allt frá fyrstu árum safnaðarsögu okkar, því Guð getur ekki sent Andann í fyllingu sinni, meðan fólkið skeytir ekki um þær leið- beiningar, sem hann í náð sinni hefur sent gegnum þennan sama Anda - Anda spádómsins. 3. Gerið nýtt heit um að vinna að hlutverki safnað- arins að flytja boðskap englanna þriggja til þeirra mill- jóna, sem byggja jörðina. Þetta heit krefst rersónulegrar helgunar, persónulegs vitnisburðar og persónuiegra fórna. Auk þess felur það í sér, að hver meðlimur leiti innilega til Guðs í bæn um "haustregn" máttar Heilags anda til þess að vitnisburðurinn í orði og athöfn geti verið áhrifaríkur, sannfærandi og kærleiksríkur. Við trúum því, að allur himinninn sé reiðubúinn að gera stórvirki fyrir söfnuðinn, sem flytur síðasta náðar-

x

Bræðrabandið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar: 2. tölublað (01.02.1974)
https://timarit.is/issue/362478

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

2. tölublað (01.02.1974)

Handlinger: