Bræðrabandið - 01.10.1974, Qupperneq 10
Bls.10 - BRÆÐRABANDIÐ 10. tbl.
Raðstefna Aöalsamtakanna (General Conf erenc-') verður haldin í Vxn
í Austurríki 10.-19.júlí 1975 eins og getið hefur verið í blaðinu
áður. Frá íslandi fara 2 kjörnir fulltrúar en auk þeirra munu
trúlega margir hafa hug á að fara héðan. Þeir, sem hafa í hyggju
að fara á Aðalréðstefnuna næsta ár ættu að hafa samband við
skrifstofuna, Ingólfsstræti 21 fyrir l.nóvember.
Námskeið fyrir reykingafólk var haldið að Árnagarði 1.-5.september
og tókst það mjög vel. Fólkið var mjög þakklátt og hefur verið
sagt frá árangri í blöðum. Greinar um námskeiðið birtust í Vísi
og Tímanum, laugardaginn 7.sept.s.l.
.Arthur White, sonarsonur E.G.White hafði tilkynnt komu sína til
íslands og ætlaði hann að vera hér 20.-22. sept. og kynna líf og
starf E.G.White. Því miður varð hann að aflýsa komu sinni vegna
heilsufarsástæðna. Nú hafa þær góðu fréttir borist að aðstoðarmaður
hans Poul Gordon mun vera hér 11.-13. október. Er fólká suðvestur
landi beðið að minnast þessa og er það hvatt til að sækja sérstakar
samkomur, sem haldnar verða þá helgi. Nánar verður sagt frá þessu
í söfnuðunum síðar.
Dagur gamla fólksins i Reykjavíkursöfnuði verður 8.október. Þann
dag verður samkona í Aðventkirkjunni kl. 14. Þessi samkoma er
sérstaklega ætluð þeim, sem eiga erfitt með að sækja kirkju að
staðaldri og verða þeir sóttir heim, ef þeir láta vilaaf sér í
síma 13899. Annars er allt gamalt fólk velkomið.
Krimishóladvöl. Vetrarstarf unga fólksins hófst með helgardvöl að
Krumshólum í Borgarfirði dagana 13.-15. sept. Þátttakendur voru
37 talsins og undu þeir sér vel í glæsilegum húsakynnum, sem eru
í eigu Rotaryklúbbs Keflavíkur. Mikið var sungið og rætt um
sameiginleg áhugamál unga fólksins.
Frá Systrafélaginu Alfa: Flóamarkaður verður að Hallveigarstöðum
6.0kt. Þann dag biðjum við um aðstoð við afgreiðslu og fleira.
Ákveðið er að basarinn verði 9. marz að Hallveigarstöðum.
Við vonum að allar systurnar yngri og eldri hafi tækifæri til að
gera basarinn, sem allra beztan, og gjafirnar komi tímanlega.
stjórnin.