Bæjarblaðið - 10.01.1990, Page 13
Iþróttir
BÆJARBLAÐIÐ — Frjálst og óháð 13
Snóker:
Óskar lagði Börk að velli
og varð jólameistari í þriðja sinn
Oskar Kristinsson lauk
gamla árinu vel með
því að sigra hið árlega
jólamót Knattborðsstofu
Suðurnesja og er það í
þriðja sinn sem hann sigr-
ar þetta mót. Urslitin voru
spiluð á gamlársdag og
keppti Óskar við Börk
Birgisson um fyrsta sætið.
Óskar mætti Ellerti Grét-
arssyni í 8 manna úrslitun-
um og sigraði 3-0 og í fjög-
urra manna úrslitum sigr-
aði hann Geir Sigurðsson
4-1.
Rúmlega 40 keppendur
mættu til leiks að þessu
sinni og voru það menn úr
öllum flokkum. Mörg úr-
slit í riðlunum urðu nokk-
uð óvænt en í riðlakeppn-
inni var leikið um tvo
ramma og var gefin for-
gjöf. Þá voru einnig veitt
aukaverðlaun fyrir hæsta
skor í hverjum flokki og í
meistaraflokki varð Börk-
ur hæstur með 97 sem er
stórgóður árangur. Börk-
ur hefði vel getað komist
yfir hundrað, það sem all-
ar lituðu kúlurnar voru á
blett eftir að þær rauðu
voru komnar niður, og því
blasti við Berki góður
möguleiki á hreinsun.
Honum mistókst hins veg-
ar er hann skaut gulu kúl-
unni ofan í og skildi ball-
ann eftir fyrir aftan brúnu
kúluna með snóker á þá
grænu.
Börkur var í mjög góðu
formi á þessu móti og voru
margir búnir að spá hon-
um sigri í úrslitaviðureign-
inni á móti Óskari. Hann
byrjaði vel og sigraði tvo
fyrstu leikina nokkuð
örugglega, en þá virtist
leikur hans detta niður og
Óskar sótti á. Viðureign
þeirra endaði síðan 4-3
Óskari í vil.
Annars urðu úrslit
mótsins þessi:
1. Óskar Kristinsson, 2.
Börkur Birgisson. 3.
Adam Ingason. 4. Geir
Sigurðsson.
Hæsta skor:
M.fl. Börkur Birgisson 97,
1. fl. Guðbjörn Gunnars-
Körfuknattleikur:
Reynismenn
sigruðu Valsmenn
Reynismenn hafa ekki
átt velgengni að fagna
í úrvalsdeildinni í vetur en
á sunnudaginn blés byr-
lega fyrir þeim, því þeir
sendu Valsmenn heim með
tapaðan leik, eftir leik lið-
anna í Sandgerði á sunnu-
daginn.
Eftir að staðan í leikhléi
hafði verið 48-43, heima-
mönnum í hag, náðu þeir
að sigra með tólf stiga
mun í leikslok. Jafnræði
hélst á með liðunum allan
síðari hálfleikinn, en undir
lokin er staðan var 74-69
fyrir Reyni, færðust þeir
heldur betur í aukana og
skoruðu tíu stig í röð,
Valsmönnum til mikillar
hrellingar. Eftir það áttu
Valsmenn litla möguleika
og lokatölur urðu 95-83.
David Grissom var
stigahæstur Reynismanna
með 47 stig.
son 47, 2. fl. Pétur Jóns-
son og Sigurður Kr. Sig-
urðsson 32, 3. fl. Ingiberg Þeir efstu á jólamótinu. Fremst er Adam Ingason (3),
Þ. Kristjánsson 20. Börkur Birgisson (2), Óskar Kristinsson (1).
Nú taka
vélarnar við
Greiðsla skilagjalds
fyrir einnota drykkjar-
umbúðir verður að
Iðavöllum 9b til föstu-
dagsins 12. jan. n.k.
Opið frá kl. 13-17.
Eftir þann tíma munu
vélarnar taká við,
sem staðsettar eru
í Samkaup og
Hagkaup.