Heimilisritið - 01.01.1946, Side 12

Heimilisritið - 01.01.1946, Side 12
af draumum hans. Hann fékk hjartslátt og leit til kennslukon- unnar. Það skein dálítil hæðsla úr grábláum augum hans. „Komdu hingað!“ hreytti fröken Short út á milli gervi- tanna sinna með miklum þjósti. Edward gekk upp að kennara- borðinu, eldrauður í kinnum. I vandræðafálmi stakk hann hendinni ofan í annan vasann á stuttbuxunum sínum. „Taktu hendina úr vasanum!“ æpti fröken Short. Henni var sýnilega afar mikið niðri fyrir. Edward datt í hug, að það myndi vera gaman, ef hann kæmi síðar meir og gæti haft í öll tré við hana. „Heyrðirðu, hvað ég sagði!“ kallaði fröken Short hryssings- lega. „Jájá“. Edward dró litlu, titr- andi höndina upp úr vasanum. Hann nuddaði kjálkabeinið og hugsaði: Einhvern tíma kemur að þv'i, að ég raka mig eins og pabbi, og ég skal horfast í augu við fröken Short og drepa Cone með eitraðri ör. Fröken Short tók samanbrotna stilabókarörk, sem stóð upp úr brjóstvasa hans. Hún leit á það, sem stóð skrifað á blaðinu, og rétti honum það svo. Honum varð litið í augu hennar — þau voru eins og litlir, blikandi hnífsoddar. Edward feit á blaðið. Hann las orð, sem hann hafði oft heyrt drengi kalla úti á götunni, en vissi óljóst um merkingu þeirra. Honum var líka sama um, hvað þau þýddu. Hann vissi, að það voru orð, sem mamma hans hafði varað hann við að segja. „Skrifaðir þú þetta?“ spurði fröken Short hranalega. „Ég gef þér tækifæri til þess að segja sannleikann“. „Nei“, sagði hann. Hann sagði það eins eðlilega og hreinskiln- islega eins og ef móðir hans hefði spurt hann, hvort hann hefði farið út í brauðabúð eftir brauði. „Nei“, endurtók hann, eins og málið væri þar með útkljáð. Hann sneri sér við og ætlaði að ganga til sætis. Hann svaraði spurningum móður sinnar, og hún trúði honum. Hún trúði honum, af því að hann hefði heldur viljað deyja en skrökva að henni, og það var líka synd, sem guð gat ekki fyrirgefið. Auk þess skrökvaði hann yfir- leitt aldrei. Kennslukonan þreif óþyrmi- lega í treyjuna hans og kippti honum til sín. Það skríkti í sumum börnun- um. „Þögn!“ hrópaði kennslukon- an í skipunartón. 10 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.