Heimilisritið - 01.01.1946, Side 17
allt kvöldið. Þau voru saman
næstu daga og vissu þegar,
hvert stefndi. Það var ást við
fyrstu sýn. En þau reyndu að
halda því leyndu, og það vissi
enginn um leyndarmál þeirra,
að nokkrum vinum undanskild-
um, en þeir sögðu ekki frá því.
Elliot fór svo í stríðið og var
utanlands 1 heilt ár.
Hestavinir
Elliot Roosevelt er hestamað-
ur mikill, og Faye hefur sama
áhugamál. Faye fæddist í Louis-
iana, en ólst að mestu leyti upp
í Texas, á búgarði föður síns.
Þegar Faye og Elliott eru í
Kalíforíu eða í Hyde Park.
ættaróðali Rooseveltsættarinn-
ar, fara þau snemma á fætur og
reyna gæðingana. Þegar Elliot
er ekki heima, fer Faye oft í
reiðtúr á uppáhaldshesti hans,
sem er arabiskur gæðingur og
heitir „Hatall“.
Meðbiðlamir beztu vinir
Áður en Faye kynntist Elli-
ot var hún mikið með Joaquin
Alvarez, auðugum kaupsýslu-
manni í Los Angeles. Faye kall-
aði á hann kvöldið, sem hún ját-
aðist Elliot, og þeir urðu þegar
mestu vinir. Alvarez sá áður
um f járreiður Faye, og nú hjálp-
ar hann Elliot líka með fjár-
mál hans.
Búa í litlu húsnæði
Þau Faye og Elliot hafa ekki
ennþá ákveðið, hvar þau ætla
að setjast að. Faye - langar til
að eignast böm og fast heimili,
en nú leigja þau til bráðabirgða
1 smábænum Carmel 1 Kaliforn-
íu. Þar eru ekki húsgögn nema
í tveimur herbergjum. I svefn-
herberginu er rúmið, sem Elli-
ot fæddist í.
Faye tók þetta hús á leigu,
meðan Elliot var erlendis. Hún
ætlaði ekki að láta hann vita
neitt af því, fyrr en allt í einu.
En Elliot hafði frétt um það
frá vini þeirra, og það var hann,
sem gerði Faye undrandi. því að
hann hafði látið nokkrarkampa-
vínsflöskur í ísskápinn til að
drekka skál fyrir hinu nýja
heimili þeirra. Þau hjónin sátu
á gólfinu, því að ekki voru kom-
in nein húsgögn. Engin glös
voru í húsinu, og Faye fann
gamlan blómavasa til að drekka
kanipavínið úr. Það gekk ágæt-
lega.
Margir ágæfcir munir
Elliot vill ekki fá neina sér-
fræðinga til að skreyta húsið.
Faye á að ráða því sjálf, hvern
ig það verður. Þegar frú Ele-
anor Roosevelt flutti úr Hvíta
húsinu, gaf hún þeim Faye og
Elliot marga mjög verðmæta
ættargripi í búið. Elliott safnar
li.
HEIMILISRITIÐ