Heimilisritið - 01.01.1946, Blaðsíða 28
Kviðdómurinn átti ekki ann-
ars úrkosta en að dæma hann
sekan. Verjendurnir reyndu
mjög að fá hann dæmdan geð-
veikan, en lögsækjendurnir létu
rannsaka hann og hann var
úrskurðaður með fullu viti.
Hann var dæmdur til dauða.
Hegðun hans var einkennileg,
meðan hann beið eftir henging-
unni. Allan tímann, sem hann
var í dauðaklefanum, neitaði
hann að borða, sofa eða drekka.
Hann gaf í skyn, að hann
borðaði ekki, af ótta við, að
eitrað væri fyrir hann; legðist
hann til svefns, taldi hann það
víst, að hann myndi ekki vakna
í dögun. Hann veslaðist upp, og
þegar hann var leiddur að
gálganum, varð að styðja hann
alla leiðina. Hann dó með for-
formælingar á vörum. —
,,Þetta er óvenjuleg saga!1'
sagði litli maðurinn og dró
andann djúpt. „Ég hef aldrei
heyrt neitt þvílíkt fyrr“.
„Það óvenjulegasta er enn eft-
ir. Löngu eftir að blöðin og
heimurinn höfðu gleymt mál-
inu, fékk ég einkennilegt bréf
frá manni í spítala.
Það hljóðaði svo: „Verð að
sjá yður, hef nokkuð að segja
yður um Severin-málið. Flýtið
yður, læknarnir segja, að ég
eigi ekki langt eftir!" Það var
undirskrifað af einhvsrjurn,
sem kallaði sig Stephen Drake.
Ég lét aka mér til spítalans,
og er ég spurðist fyrir í mót-
tökuskrifstofunni, yar mér sagt,
að með svonefndan Drake hefði
verið komið um morguninn
vegna alvarlegra innvortis-
meiðsla — bíllinn, sem hafði
komið með hann, var vöruflutn-
ingabifreið. Þeir álitu vonlaust
um að hann héldi lífi.
Er ég kom að rúmi hans,
starði hann hugsi upp í loftið.
Hann var fremur unglegur náj-
ungi, og ég minnist þess, að mér
geðjaðist ekki að því, hve stutt
bil var á mili augna hans. And-
litið var allt blóðstorkið, og það
hlýtur að hafa kostað hann tals-
verða áreynslu að tala.
„Sælir, Powell umsjónarmað-
ur“, sagði hann og brosti veiklu-
lega. „Þér virðist allforviða á
því að ég skuli þekkja yður“,
hélt hann áfram og bandaði til
hjúkrunarkonunnar, sem kom
skyndilega og varaði hann við
því að tala of mikið. „Ég er
Drake, lögfræðingurinn 1 Sever-
in-málinu. Ég er að deyja, og
áður en ég hrekk upp af og
hitti skjólskæðinga mína hinum
megin, langar mig til að trúa
ein'hverjum fyrir leyndarmáli
mínu. Og hvaða betri mann
gæti ég valið til þess en þann,
sem færði Charles Severin fram
íyrir rétivísina?i:
26
HEIMILISRITIÐ