Heimilisritið - 01.01.1946, Page 55
Spurningar 00 SYÖr ~~Eva Adams svarar
HEIMILISFÖNG LEIKARA
Sp.: Kæra Eva Adams! Viltu vera
svo góð og segja mér hvert heimils-
fang þessara kvikmyndaleikara er:
Clark Gable, Betty Hutton, Gloria
Jean.
Eagle.
Sv.: Oftast er vani að skrifa kvik-
myndafélag leikarans undir nafnhans
og svo: Hollywood — California —
United States — þar undir (hvað
fyrir neðan annað). Clark Gable er
til dæmis hjá Metro-Goldwin-Meyer“
— en annars er óþarfi að skrifa það,
því að bréf héðan frá íslandi komast
til skila, ef þau eru send til Holly-
wood, merkt nafni merkrar film-
stjörnu, þótt utanáskriftin sé ekki
alveg nákvæm.
UPPLÝSINGAR UM LEIKARA
Sp.: 1. Kæra Eva Adams! Þú veizt
svo mikið um „stjörnur", svo að mér
datt í hug að biðja þig um að gefa
mér upplýsingar um utanáskrift
Betty Grable og June Allyson.
2. Hvorri hefur þú meira dálæti á,
Ritu Hayworth eða Judy Garland?
3. Hvað lestu úr skriftinni?
Vonasteftir svari í næsta Heimilis-
riti.
Ein frá Siglufirði.
Sv:. 1. B^tty hefur unnið hjá 20th
Century-Fox, en June hjá Metro-
Goldwyn-Meyer.
2. Mér finnst Judy Garland meiri
leikkona og skemmtilegri. Þótt Rita
HEIMILISRITIÐ
sé hins vegar sérlega hrífandi stúlka.
3. Sakleysi.
KALDLYNDUR ELSKHUGI
Svar til „Einnar 17 ára“: Veiztu:
það, að ekkert er verra fyrir þig
en að láta hann finna, hvernig þér
er innanbrjósts? Þá er hætt við, að
ást sú, er hann kanna að bera til
þín, þreytist í vorkunnsemi, og hún
getur aftur orðið til þess, að hann
forðist þig. Þetta er þín fyrsta
reynsla af heiminum, og þegar þú
situr heima, ein og örvæntingarfull,
skaltu hugsa um allar kynsystur
þínar, sem hafa orðið að þola
svipaða reynslu. Hafðu það hugfast,
að lífið er reynslutími, og að um leið
og þú öðlast eitt, sækistu eftir öðru.
Hver veit nema það sé þér fyrir
beztu, að þið náið ekki saman, fyrst
hann er svona veikur á svellinu.
Þá lifir ást þín i barninu ykkar. —
Ég veit, að þetta er þungbær reynsla,
en þú átt lífið fram undan þér. Kvíð-
inn og áhyggjumar eru þér sjálfri
fyrir Verstu. Reyndu að sýna honum
alúð og umhyggju, þegar hann er
hjá þér, en vera samt persónuleg og
ákveðin á alvörustundum, ef þú við
nána íhugun álítur, að þið eigið sam-
an til frambúðar.
RITHANDARSKOÐUN
Næstum öll bréf, sem mér berastr
enda á spurningunni: „Hvað geturðu
lesið úr skriftinni minni?“ En vafa-
laust gera fáir sér grein fyrir því,
53-
/