Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.09.2013, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 06.09.2013, Blaðsíða 2
www.hjahrafnhildi.is S. 581 2141 Skoðið úrvalið á facebook! Verð 32.980,-  Hafnarfjörður Opnað fyrir umsóknir um lóðir í skarðsHlíð Meðal síðustu suðurhlíðalóða á höfuðborgarsvæðinu Opnað verður fyrir umsóknir um lóðir í Skarðshlíð í Hafnarfirði á morgun, laugardaginn 7. septem- ber, en þar er að finna einar síðustu suðurhlíðarlóðir á höfuðborgar- svæðinu. Um er að ræða 30 hektara svæði sem liggur upp að hlíðinni sunnan og vestan í Ásfjalli og eru lóðirnar við Hádegisskarð, Drangs- skarð, Bjargsskarð, Bergsskarð, Víkurskarð og Glimmerskarð. Svæðið er í hlíð sem hallar mót suðri og liggur í skjóli fyrir norðan- og austanáttum. Efst í hlíðinni verða einbýlishús, þar fyrir neðan par- og raðhús og fjölbýlishús næst Ásvallabrautinni, sem er aðkoman inn í hverfið. Í hverfinu er fyrirhug- að að byggja 4–6 deilda leikskóla og hjúkrunarheimili. Byggðin er tengd náttúrunni með tveimur grænum ósnortnum svæðum þvert inn í byggðina og tengist þannig þunga- miðju hennar. „Skarðshlíðin hefur í raun upp á allt að bjóða,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Hafn- arfjarðar og bætir því við að um ein- stakt tækifæri sé að ræða. „Örstutt er í ósnortna náttúruna, Ásfjall, Ástjörn, Hvaleyrarvatn, Helgafell, Bláfjöll, gönguleiðirnar eru ein- hverjar þær fallegustu á höfuð- borgarsvæðinu og öll þjónusta er til staðar í hverfinu. Þetta er sannköll- uð náttúruperla á frábærum stað.“ Hægt er að kynna sér lóðar- möguleika á svæðinu á laugar- daginn milli klukkan 11 og 16 í anddyri Ásvallalaugar en þá kynna starfsmenn Hafnarfjarðar hverfið og svara fyrirspurnum. Nánari upplýsingar um hverfið og lóðirnar fá finna á heimasíðu bæjarins. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Skarðshlíð. Þar er að finna einar síðustu suðurhlíðarlóðir á höfuðborgarsvæðinu. Styrkir til ungra, einstæðra mæðra Rúmlega tveimur milljónum var úthlutað úr Starfsmenntunarsjóði ungra kvenna þann 29. ágúst síðastliðinn. Að sjóðnum stendur Bandalag kvenna í Reykjavík og fengu tuttugu konur styrki til náms næsta skólaár. Tilgangur sjóðsins er að hvetja og styðja við bakið á konum sem ekki eiga kost á námslánum, til að afla sér mennt- unar. Í gegnum tíðina hafa styrkþegar einkum verið ungar einstæðar mæður, sem einhverra hluta vegna hafa þurft að hætta námi. Frá upphafi hefur Starfsmenntunar­ sjóðurinn úthlutað hundrað þrjátíu og níu styrkjum, samtals að upphæð tæplega sextán milljónir króna. -dhe Átak gegn mænusótt „Klárum málið“ er yfirskrift átaks UNICEF á Íslandi og Te & Kaffis sem hófst form- lega í gær, 6. september, og stendur út mánuðinn. Markmiðið er að vekja athygli á þeim mikla árangri sem náðst hefur í baráttunni gegn mænusótt, einnig þekkt sem lömunarveiki, og bjóða landsmönnum að taka þátt í baráttunni við að útrýma veikinni á heimsvísu. Fyrir 25 árum var mænusótt landlæg í 125 ríkjum en nú í þremur; Afganistan, Nígeríu og Pakistan. Fyrir 25 árum var hún landlæg í 125 ríkjum í heiminum. Engin lækning er til við þessum skelfilega sjúkdómi og eina leiðin til að koma í veg fyrir að veikin valdi lömun er bólusetning. Ein bólusetning kostar 25 krónur. Af hverjum seldum drykk í september gefur Te & Kaffi andvirði einnar bólusetn- ingar gegn mænusótt. Jafnframt býðst landsmönnum að styðja átakið með því að senda sms-ið stopp í númerið 1900 og gefa þannig 250 krónur eða 10 bólusetningar. - eh 60 vilja sinna eftirliti með velferð dýra Alls bárust 60 umsóknir í stöður sér- fræðinga vegna eftirlits með velferð og aðbúnaði dýra, ásamt öflun hagtalna, sem Matvælastofnun auglýsti í sumar. Í framhaldinu verða umsækjendur boðaðir í viðtöl en miðað er við að þeir sem verða ráðnir hefji störf um næstu áramót þegar ný lög um dýravelferð og búfjárhald taka gildi. Þar með flyst búfjáreftirlit sem hing- að til hefur verið á vegum sveitarfélaga til Matvælastofnunar. Þar starfa nú um sjötíu manns og verður stöðugildum fjölgað um átta vegna gildistöku nýja laganna, þar af eru sex stöður sérfræðinga. ­eh Bifröst í samstarf með virtustu háskólum heims Háskólinn á Bifröst tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi sem nefnist Law Without Walls sem hefur það markmið að bregðast við breyttri stöðu lögfræðinga á vinnumarkaði og umbylta þekktum aðferðum við lögfræðikennslu þannig að lögfræðinemar fái víðari sýn á fræðin og nýti menntun sína til nýsköpunar. Meðal þeirra háskóla sem taka þátt í verk- efninu eru Harvard og Stanford. Lagadeild Miami háskóla sér um skipulag verkefnisins og hefur aðeins tuttugu og einn skóli fengið þátttökurétt. Umsjónarmaður verkefnisins er Helga Kristín Auðunsdóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs. „Bifröst er eini háskólinn á Íslandi sem kennir viðskiptalögfræði og það er ánægjulegt að margar virtustu lagadeildir heims skuli horfa í sömu átt með þátttöku sinni í verk- efninu,“ segir hún. -dhe Þ riggja ára börn hafa frá 1. sept-ember fengið ókeypis tann-læknaþjónustu samkvæmt samningi Sjúkratrygginga Íslands og Tannlæknafélags Íslands, að undan- skildu 2500 króna árlegu komugjaldi. Samkvæmt þessum sama samningi hætta þessi börn að fá ókeypis tann- læknaþjónustu daginn sem þau verða fjögurra ára og eru ekki gjaldgeng inn í kerfið á ný fyrr en þau verða sjö ára, eða árið 2016. Börn sem nú eru fjög- urra ára komast inn í kerfið sama ár, þegar þau eru orðin sjö ára gömul. Sjúkratryggingar Íslands og Tann- læknafélagið undirrituðu samninginn þann 13. maí síðastliðinn en hann byggði á tillögum starfshóps sem þá- verandi ráðherra heilbrigðismála, Guðbjartur Hannesson, skipaði til að tryggja börnum undir 18 ára aldri nauðsynlega tannlæknaþjónustu óháð efnahag foreldra. Strax í maí tók samningurinn til 15, 16 og 17 ára barna og í septemberbyrjun bættust við 3, 12, 13 og 14 ára börn. Fleiri ald- urshópar bætast við á næstu árum þar til í janúar 2019 þegar hann ær til allra barna undir 18 ára. Ragnheiður Hilmarsdóttir, móttöku- ritari á tannlæknastofunni Brostu, hefur orðið vör við að nokkurs mis- skilnings gætir um innleiðingu samn- ingsins. „Það er auðvitað stutt síðan þetta tók gildi en mér finnst ekki hafa verið auglýst nægjanlega vel hvernig þetta virkar,“ segir hún en foreldrar barna sem koma á tannlæknastofuna hafa sumir hverjir staðið í þeirri trú að þau börn sem nú eru þriggja ára séu komin inn í kerfið til frambúðar. „Ég hef alveg ákveðinn skilning á þessu. Það er auðvitað verið að hvetja for- eldra til að koma með börnin í fyrstu skoðun í stað þess að fresta því,“ segir Ragnheiður. Ennfremur hefur starfsfólk tannlæknastofunnar bent foreldrum barna sem hringdu til að panta tíma í ágúst að ef þau panta tíma í september hefur samningurinn tekið gildi. Foreldrar hafa ekki fengið nein bréf um þetta.“ Forsenda greiðsluþátttöku Sjúkra- trygginga Íslands samkvæmt fyrr- nefndum samningi er skráning heim- ilistannlæknis sem gert er rafrænt í gegn um Réttindagátt Sjúkratrygg- inga Íslands. „Oft vita foreldrar ekki hvernig þeir eiga að gera þetta þannig við höfum gert þetta fyrir þá hér á stofunni.“ Leiðbeiningar fyrir foreldra er að finna á vef Sjúkratrygginga Ís- lands. Þar er einnig vakin athygli á því að réttur til þjónustu samkvæmt samningnum fellur niður þegar börn verða 18. ára og er það afmælisdagur- inn sem gildir. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  TannHeilsa misskilnings Hefur gæTT vegna TannlæknaÞjónusTu Þrjú ár í næsta ókeypis tannlæknatíma Mér finnst ekki hafa verið auglýst nægjanlega vel hvernig þetta virkar. Þriggja ára börn hætta að fá ókeypis tannlæknaþjónustu á fjögurra ára afmælisdaginn og fá næst ókeypis tannlæknatíma árið 2016. Börn sem nú eru fjögurra ára komast ekki inni nýtt kerfi fyrr en þau eru orðin sjö ára. Mótttökuritari á tannlæknastofu segir nokkurs misskilnings gæta vegna innleiðingar samnings um ókeypis tannlæknaþjónustu fyrir börn. Börn sem nú eru fjögurra ára fá ókeypis tannlækningar árið 2016. Mynd/NordicPhotos/Getty 2 fréttir Helgin 6.-8. september 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.