Fréttatíminn - 06.09.2013, Qupperneq 10
Nánari upplýsingar um bætta þjónustu
má finna á vefnum www.or.is.
Takk fyrir að vera í sambandi!
Ís
le
n
sk
a
s
Ia
.Is
O
R
K
6
53
36
0
8/
13
Betri þjónusta fyrir þig
Öryggi þitt skiptir okkur máli
Við höfum hafið samstarf við Neyðarlínuna
1-1-2 til að auka öryggi viðskiptavina. Verði
bilanir í veitukerfum sem skapa hættu fá
viðskiptavinir send SMS skilaboð beint í
farsímann sinn.
Öryggismál eru forgangsmál hjá Orkuveitunni og
því er þetta samstarf mikilvægt skref í aukinni
þjónustu okkar.
Það er mikilvægt bæði fyrir Orkuveituna og þig.
„SMS-sendingar leika stöðugt
stærra hlutverk í samskiptum við
almenning þegar hættuástand
skapast. Það er nauðsynlegt
að koma til móts við almenning
og nýta þær samskiptaleiðir
sem fólk notar mest, fjölmiðla,
netið, samfélagsmiðla og
auðvitað SMS, en hjá flestum
sameinast allar þessar leiðir í
snjallsímanum.”
Tómas Gíslason,
aðstoðarframkvæmdastjóri 112.
A fgangur var af undirliggjandi við-skiptajöfnuði við útlönd á öðrum ársfjórðungi, og er það í fyrsta
skipti frá árinu 2009 sem afgangur mælist
á þessum árstíma. Undirliggjandi hrein
erlend staða þjóðarbúsins virðist viðráðan-
leg, þótt hún sé vissulega við efri mörk
þess sem getur talist sjálfbær staða. Þetta
er meðal þess sem lesa má úr tölum Seðla-
bankans yfir greiðslujöfnuð við útlönd á 2.
ársfjórðungi og erlenda stöðu þjóðarbúsins
um mitt ár, segir Greining Íslandsbanka.
Undirliggjandi viðskiptajöfnuður var
hagstæður um 0,5 milljarða króna á 2. árs-
fjórðungi. Er það breyting til hins verra
frá 2. fjórðungi, þegar undirliggjandi
afgangur var 15,4 milljarðar króna, en
hins vegar töluvert jákvæðari niðurstaða
en á sama fjórðungi í fyrra, en þá mældist
22,6 milljarða króna undirliggjandi halli á
viðskiptajöfnuði. Með undirliggjandi við-
skiptajöfnuði er átt við viðskiptajöfnuð að
undanskildum reiknuðum þáttatekjum og
–gjöldum gömlu bankanna. Þar er um að
ræða stærðir sem að mestu verða afskrif-
aðar við uppgjör þeirra. Afganginn á 2.
fjórðungi má þakka 20,1 milljarðs króna af-
gangi af þjónustujöfnuði, sem að verulegu
leyti á rætur að rekja til jákvæðrar þróunar
í ferðaþjónustu. 2,2 milljarða króna halli
var á vöruskiptajöfnuði á fjórðungnum og
17,4 milljarða króna halli var á undirliggj-
andi þáttatekjujöfnuði.
Það sem af er ári nemur undirliggjandi
viðskiptaafgangur 16 milljörðum króna,
tæplega 1% af áætlaðri vergri landsfram-
leiðslu ársins. Spá Seðlabankans frá ágúst
gerir ráð fyrir að afgangurinn muni nema
2,6% af vergri landsframleiðslu (u.þ.b.
46 milljörðum króna) á árinu í heild. „Sú
spá virðist nokkuð nærri lagi,“ segir enn
fremur. „Búast má við talsverðum undir-
liggjandi afgangi á 3. ársfjórðungi.
Þjónustujöfnuður á væntanlega
eftir að skila myndarlegum afgangi
vegna mikils vaxtar í ferðaþjónustu,
útlitið fyrir vöruskipti er betra en
raunin var á 2. ársfjórðungi, auk
þess sem undirliggjandi þáttatekju-
halli er jafnan með minnsta móti á
3. ársfjórðungi.“
Í fyrra mældist 50,6 milljarða
króna afgangur af undirliggjandi
jöfnuði á 3. ársfjórðungi, en á árinu
í heild nam afgangurinn 6,2 millj-
örðum króna.
Seðlabankinn birti einnig tölur í
vikunni um erlenda stöðu þjóðar-
búsins og undirliggjandi erlenda
stöðu í júnílok. Þar kemur fram að
erlend staða þess að gömlu bönkun-
um meðtöldum er enn neikvæð sem
nemur 7.885 milljörðum króna, sem
jafngildir 458% af áætlaðri vergri
landsframleiðslu ársins.
„Sú tala,“ segir Greiningin, „gef-
ur hins vegar ekki raunhæfa mynd
af undirliggjandi erlendri stöðu, þar
sem stærstur hluti skulda gömlu bankanna
verður afskrifaður við uppgjör þeirra.“
Að gömlu bönkunum undanskildum var
hrein erlend staða þjóðarbúsins í júnílok
neikvæð sem nemur 464 milljörðum króna
eða 27% af vergri landsframleiðslu.
Hins vegar á uppgjör gömlu bankanna
og annarra þrotabúa eftir að breyta þeirri
mynd talsvert, og metur Seðlabankinn það
svo að uppgjör gömlu bankanna muni rýra
erlenda stöðu þjóðarbúsins sem nemur
43% af vergri landsframleiðslu (u.þ.b. 740
milljarðar króna), en uppgjör annarra
þrotabúa bæti stöðuna um 5% af vergri
landsframleiðslu.
Undirliggjandi hrein erlend staða þjóðar-
búsins var neikvæð í júnílok um 65% af
vergri landsframleiðslu, eða u.þ.b. 1.120
milljarða króna.
Staða þjóðarbúsins virðist viðráðanleg
þótt hún sé nokkuð snúin,“ segir deildin.
Meðal landa með háa neikvæða erlenda
stöðu má nefna Grikkland, 115% af vergri
landsframleiðslu, Írland 108% og Spán 91%.
Eystrasaltsríkin eru með svipaða stöðu og
Ísland, „og ýmis A-Evrópuríki hafa lakari
erlenda stöðu en Ísland,“ segir Greiningin,
„án þess að markaðir telji voðann vísan
meðal þeirra.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
EfnAhAgur LítiLs háttAr undirLiggjAndi viðskiptAAfgAngur á öðrum ársfjórðungi
Erlend staða þjóðarbúsins viðráðanleg en snúin
Miðað við tölur Seðla-
banka Íslands er
undirliggjandi hrein
staða þjóðarbúsins
viðráðanleg þótt hún sé
nokkuð snúin, að mati
Greiningar Íslands-
banka. Á myndinni er
Már Guðmundsson
seðlabankastjóri.
Jákvæðari
staða en á
sama tíma
í fyrra.
Stærstur
hluti skulda
gömlu
bankanna
verður af-
skrifaður
við uppgjör
þeirra.
10 fréttir Helgin 6.-8. september 2013