Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.09.2013, Qupperneq 20

Fréttatíminn - 06.09.2013, Qupperneq 20
Óðalsostur hefur verið á borðum landsmanna frá árinu 1972 þegar Mjólkursamlag KEA hóf framleiðslu hans á Akureyri. Fyrirmynd hans er Jarlsberg, frægasti ostur Norðmanna. Óðalsostur er mildur með örlítinn möndlukeim og skarpa, sæta, grösuga tóna. Frábær á morgunverðarborðið, hádegishlaðborð eða bara einn og sér. www.odalsostar.is ÓÐALSOSTUR TIGNARLEGUR Doktorsrannsókn Margrétar Sigmarsdóttur leiddi í ljós að þegar aðferðum PMT- foreldrafærni er beitt sýna börn minni aðlögunarvanda, eru minna þunglynd, sýna meiri félagsfærni og minni hegðunarerfiðleika. Megin markmið aðferðarinnar er að efla foreldra við það hlutverk að ala börnin sín upp. P MT-foreldrafærni er byggð á aðferð sem á uppruna sinn í Oregon í Bandaríkjunum og kallast Parent Management Train- ing – Oregon aðferð eða PMTO. Frá árinu 2000 hefur Margrét Sigmarsdóttir sálfræðingur, ásamt samstarfsfélögum sínum, unnið að innleiðingu aðferðirnar hér á landi og segir hún hana byggja á eflingu foreldra í því hlutverki að ala upp börnin sín. „Þegar foreldr- arnir eflast í sínu hlutverki hefur það áhrif á barnið og hegðun þess. Þegar erfið hegðun fer úr böndun- um eru foreldrar oft komnir í víta- hring og þannig skapast togstreita á milli þeirra og barnanna. Með PMTO fær fólk þjálfun til að takast á við ástandið,“ segir Margrét og leggur áherslu á að aðferðin skili mestum árangri ef unnt er að grípa snemma inn í og vinna með vand- ann á fyrstu stigum. „PMT-foreldrafærni veitir for- eldrum ákveðin verkfæri sem gera þeim kleift að breyta og bæta hegðun barna sinna og stuðla þannig að bættri aðlögun þeirra á heimili, í skóla og í samfélaginu almennt,“ segir Margrét. Á vegum nokkurra sveitarfélaga hér á landi er aðferðinni beitt og hefur Mar- grét unnið hjá Hafnarfjarðarbæ við innleiðingu hennar en frá og með haustinu mun PMT-foreldrafærni verða eitt af úrræðum Barna- verndarstofu og mun Margrét þá innleiða úrræðið á landsvísu þaðan ásamt þeim Önnu Maríu Frí- mannsdóttur og Eddu Vikar Guð- mundsdóttur. Í þeim bæjarfélögum sem innleitt hafa PMTO aðferðina eru það í flestum tilfellum skólasál- fræðingar og félagsráðgjafar sem fengið hafa ákveðna þjálfun sem vinna með foreldrum. „Þegar upp koma hegðunarerfiðleikar hjá börnum er foreldrum boðið upp á kennslu í beitingu á PMT-foreldra- færni, ýmist í einkaviðtölum eða á námskeiðum með öðrum for- eldrum,“ segir Margrét. Á vegum nokkurra sveitarfélaga á Íslandi eru nú starfandi PMTO með- ferðaraðilar, svo sem í Hafnarfirði, Reykjavík, Sandgerði, Vogum, Grindavík, Skagafirði, á Akureyri og Fljótsdalshéraði. Fyrr á þessu ári lauk Margrét við doktorsverkefni sitt sem var rannsókn á árangri PMTO að- ferðarinnar í samanburði við aðrar aðferðir sem almennt eru veittar í sveitarfélögum landsins. Hundrað og tvær fjölskyldur barna á leik- og grunnskólaaldri tóku þátt í rann- sókninni og sýndu niðurstöðurnar að þegar PMTO meðferð var beitt dró meira úr aðlögunarvanda barna á leik- og grunnskólaaldri en með þeirri þjónustu sem þessum hópi er almennt veitt í sveitar- félögum landsins og er af ýmsum toga. Að sögn Margrétar dró marktækt úr aðlögunarvandanum hjá þeim hóp sem fór í PMTO með- ferð og er það í samræmi við er- lendar rannsóknir. PMTO aðferðin er mikið notuð í Noregi, Bandaríkj- unum, Hollandi og Danmörku. Meðal þess sem aðferðin byggir á er að foreldrar gefi börnum sín- um skýr fyrirmæli. Margrét nefnir sem dæmi að í stað þess að foreldr- ar biðji börn sín að leggja skóla- töskuna ekki á gólfið segi þeir þeim að ganga frá henni. „Þegar farið er með börn í matvöruversl- anir og þau hlaupa um búðina er betra að biðja þau að vera nær kerrunni í stað þess að segja þeim að hætta að hlaupa.“ Margrét segir einnig mikilvægt að foreldrar noti hvatningu með markvissum hætti. „Í því sambandi er mikilvægt að gefa jákvæðri hegðun gaum og taka eftir því þegar börnin standa sig vel. Hrós er einfaldasta útgáfan af hvatningu en þegar við viljum kenna börnum nýja hegðun er gott að hafa hrósið sértækt. Til dæmis að segja frekar „vá, flott hjá þér að ganga frá skónum“ í stað þess að segja þeim að þau séu æðisleg.“ Jafnframt er mikilvægt fyrir for- eldra að setja börnum skýr mörk með skipulögðum hætti. „Við miðum oft við að nota hvatningu fimm sinnum miðað við að setja mörk einu sinni,“ segir Margrét sem telur að séu börnum sett ákveðin mörk í hegðun líði þeim betur. „Ef börn fá ríkulegt magn af hvatningu eru þau yfirleitt tilbúin að láta setja sér mörk. Ef umhverf- ið er aftur á móti ekki hvetjandi streitast þau á móti mörkunum,“ segir hún. Virkt eftirlit er einnig stór liður í PMT-foreldrafærni. Með virku eftirliti er átt við að foreldrar viti alltaf hvar barnið er og með hverjum, hvað það sé að gera og hvernig það fari á milli staða. Í samskiptum foreldra og barna er lausnaleit mikilvægt verkfæri sem eflir foreldra í að leysa úr mál- unum með börnum sínum eftir ákveðnum aðferðum. „Til dæmis þegar umgengni barnanna er ekki nógu góð er gott að gera við þau samning um að bæta hana,“ segir Margrét. Þjálfun foreldra við lausnaleit sé því ekki svo ólík stjór- nendaþjálfun sem byggist á því að horfa til framtíðar, ræða kosti og galla og útbúa áætlun um hvernig megi bæta úr. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is Foreldrar efldir í hlutverki sínu Fái börn ríku- legt magn af hvatningu eru þau yfirleitt tilbúin að láta setja sér mörk. Ef umhverfið er aftur á móti ekki hvetjandi streitast þau á móti mörkunum.  Gefum börnum alltaf skýr fyrirmæli.  Veitum jákvæðri hegðun athygli og hrósum þegar börn sýna hana.  Setjum börnum skýr mörk.  Höfum virkt eftirlit með börnum. Verum með- vituð um hvar þau eru, með hverjum og hvað þau er að gera.  Leitum lausna við ágrein- ingsefnum. Ræðum málin og náum árangri saman. Margrét Sigmarsdóttir. Ljósmynd/Hari 20 viðtal Helgin 6.-8. september 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.