Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.09.2013, Qupperneq 28

Fréttatíminn - 06.09.2013, Qupperneq 28
E lín Arnar og Björk Eiðsdóttir kynntust fyrst þegar Elín var ritstjóri Vikunnar og réð Björk þangað sem blaðamann. Fyrr á árinu stóðu þær báðar á tímamótum en þá hafði Björk ákveðið að segja starfi sínu lausu sem ritstjóri Séð og heyrt og Elín missti starf sitt sem rit- stjóri Vikunnar. Þær ákváðu að láta slag standa og gefa saman út sitt eigið tímarit, MAN mag- asín, sem dreift var á sölustaði nú fyrir helgi. Blaðamaður hitti þær stöllur í turninum við Höfðatorg í Reykjavík í byrjun vikunnar þar sem skrifstofa MAN magasín er til húsa. Elín og Björk hafa báðar starfað á fjölmiðlum í nær áratug en ætla nú að gera hlutina algjörlega eftir sínu höfði þar sem þær eru eig- endur MAN magasín ásamt Sunnu Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra og Auði Húnfjörð auglýsinga- stjóra. Björk segir þær hafa fundið mikinn meðbyr við uppbyggingu á nýja fjölmiðlinum. „Núna er stemning fyrir því að fólkið á gólfinu geri hlutina sjálft. Fyrr á árinu var konum bolað burt úr stjórnunar- stöðum og eru margir hugsi yfir stöðunni og orðnir þreyttir á þessum valdablokkum sem hafa átt íslenska fjölmiðla í gegnum tíðina,“ segir hún. Konur í fjölmiðlum Þær segja starfsör- yggi á íslenskum fjöl- miðlum lítið og því sé ákveðið öryggi fólgið í því að eiga sinn eigin fjölmiðil og starfa þar þó því fylgi vissulega líka áhætta. „Þegar ég var ritstjóri á Vikunni var svo margt sem mig langaði að koma í verk og hafði ákveðna framtíðarsýn fyrir vörumerkið. Svo var ég bara rekin einn daginn og fór þá að hugsa að ég hefði lagt allt mitt í starfið til þess eins að yfirgefa svæðið. Eftir það fór ég að velta því fyrir mér að það væri kannski sniðugt að taka sér þetta pláss og vald og stofna sinn eigin fjölmiðil. Í staðinn fyrir að bíða eftir að einhver myndi bjóða mér starf,“ segir Elín. Elín og Björk blása á allt tal þess efnis að konur séu konum verstar og nefna sem dæmi að á Vikunni hafi ávallt ríkt mjög góður andi á milli samstarfsfólksins, sem var flest konur. Elín starfaði áður við framleiðslu á auglýsingum og kvikmyndum þar sem karlmenn voru í miklum meirihluta. „Þá þurfti ég oft að stýra körlum. Ég byrjaði rúmlega tvítug að starfa sem pródúsent og þá var langt því frá auðvelt að gefa til dæmis mönnum sem voru komnir yfir fimmtugt og höfðu verið lengi í bransunum skipanir um hvað átti að gera.“ Engar skýjaborgir með lántöku Fyrsta eintakið af MAN magasíni er heilar 148 blaðsíður. „Þetta eru í rauninni fjögur tímarit í einu því við verðum með mann- legt efni, tísku, hönnun og heimili, mat og ýmis áhugaverð viðtöl, bæði létt og þungt efni í bland. Á hverjum kafla verður forsíða svo það ættu allir að finna eitt- hvað við sitt hæfi í MAN magasíni,“ segir Elín. Engir utanaðkom- andi fjárfestar standa að tímaritinu en á tímabili veltu þær því fyrir sér að sækja um lán en var sagt í bankanum að þær bæðu um allt of lága upphæð að láni. „Það kom mjög á óvart svona stuttu eftir hrun að það væri ekki talinn kostur að fara varlega í lántökum,“ segir Björk. Eftir töluverða íhugun ákváðu þær að fjár- magna ekki skýjaborgir með lánum og hafa litla yfirbyggingu. „Við erum reyndar með skrifstofu hérna á Höfðatorgi en hún er mjög lítil og við notum bara gömlu tölvurnar okk- ar. Svo bara göngum við á lagið Öll erfið reynsla gerir mann að því sem maður er. Það hefur eng- inn gott af því að fara auðveldlega í gegnum lífið. – fyrst og fre mst ódýr! TILBOÐ! GeGGjaÐ Hámar k 6 pk. á mann meðan birgðir endast ! 5598Verð áður 8397 kr./3 pk. Libero bleiur Fullt verð 2799 kr./pk. eða 8397 kr./3 pk. kr. 3 pk. Kauptu 3 en borgaðu fyrir 2 Taka sér pláss og vald Björk Eiðsdóttir og Elín Arnar kynntust þegar þær störfuðu saman á Vikunni. Fyrr í sumar stóðu þær á tímamótum, báðar án atvinnu og ákváðu að láta slag standa og gefa út sitt eigið tímarit, MAN magasín, sem þær dreifðu sjálfar á sölustaði í gær. Þær eru sammála um að þeir erfiðleikar sem þær hafa lent í í lífinu hafi gert þær að því sem þær eru í dag. Björk Eiðsdóttir og Elín Arnar eru sannfærðar um að konur séu konum bestar. Þær hafa fundið mikinn meðbyr við vinnslu á fyrsta tölublaði MAN magasín sem kom út í vikunni. Ljósmynd/Hari og látum vini og fjölskyldu hjálpa okkur við allt mögulegt,“ segja þær, fullvissar um að þær hafi sett met í aðhaldi. Báðar hafa þær reynslu af því að vera eina fyrirvinna fjölskyld- unnar og að þurfa að fara sparlega með peninga. Björk er 38 ára og á þrjú börn; dætur sem eru 16 og 11 ára og 6 ára gamlan son. „Við pabbi yngri barnanna skildum fyrir þremur árum. Þá bjuggum við í Noregi en ég flutti heim með börnin þegar við skildum, pakkaði búslóðinni í bílinn og fór til Íslands með Norrænu. Ég var ekki komin með vinnu eða neitt svo það má segja að ég hafi stokkið beint út í djúpu laugina.“ Elín er fertug og á 4 ára gamla dóttur en er nú í nýju sambandi og á von á barni í lok ársins. Framinn númer þrjú í for- gangsröðinni Þó svo Björk og Elín hafi eytt mestum sínum tíma á undanförn- um vikum í vinnu við nýja tímaritið er þær sammála um að vinnan sé í þriðja sæti á forgangslistanum, fjölskylda og vinir komi fyrst. „Heilsa og húmor eru líka mikil- væg. Án húmors væri maður ekki neitt,“ segir Björk en þær vinkon- urnar er sammála um að hindran- irnar á lífsleiðinni hafi gert þær að því sem þær eru í dag. „Það sem ekki drepur mann, gerir mann sterkari. Öll erfið reynsla gerir mann að því sem maður er. Það hefur enginn gott af því að fara auðveldlega í gegnum lífið,“ segir Björk og Elín bætir við að þeir sem aldrei hafi þurft að reyna neitt séu ekki skemmtilegasta fólkið. „Það fólk er sennilega í sínu fimmta lífi og búið að upplifa mikla erfiðleika í fyrri lífum,“ skýtur Björk inn í. Þakklát fyrir erfiða reynslu Björk ólst upp í Garðabænum og fór svo í Kvennaskólann. Sautján ára gömul fór hún sem skiptinemi til Brasilíu og kveðst ekki hafa verið hrædd við neitt á þeim tíma, nema kannski drauga. Björk á tvo eldri bræður og eru þau systkinin náin og hafa saman staðið við hlið móður sinnar í erfiðum andlegum veikindum hennar. „Veikindi mömmu hafa verið það erfiðasta í mínu lífi en jafnframt gert mig að því sem ég er. Ég hef líka þurft að takast á við eigin fordóma og ann- arra. Ég mjög þakklát fyrir þessa reynslu í dag og held að ég væri ekki helmingurinn af sjálfri mér ef ég hefði ekki farið í gegnum þetta allt,“ segir hún. Björk telur að með aukinni vitund hafi fordómar sam- félagsins gagnvart geðsjúkdómum þó minnkað. „Ég finn það líka að ég sjálf get frekar rætt þetta núna en áður. Þegar ég var um tvítugt hefði ég aldrei getað rætt þetta við vini mína.“ Björk minnist greinar sem hún las einu sinni um geð- sjúkdóma og fjallaði um að þegar fólk er lagt inn á geðdeild kemur enginn með blóm og konfekt fyrir sjúklinginn þó það þyki sjálfsagt þegar um annars konar veikindi er að ræða. „Þetta er svo satt. Ef fólk fer í heimsókn á annað borð á geð- deild, mætir það ekki með blóm. Það þykir öðruvísi en önnur veik- indi. Sem er í sjálfu sér skrítið.“ Vonbrigði í Vínarborg Elín er elst þriggja systkina og var mikið flökkubarn. „Ég á yndis- lega fjölskyldu og pabbi minn var fótboltaþjálfari þegar ég var að alast upp svo við vorum því mikið á flakki. Þegar ég var tíu ára var ég búin að flytja ellefu sinnum,“ segir Elín sem hefur meðal annars búið á Ísafirði, í Færeyjum, Bolungarvík, Borgar- nesi og í Garði. „Kost- urinn við flakkið er sá að ég hef gríðarlega mikla aðlögunarhæfni en að sama skapi hef ég verið svolítið rótlaus í gegnum tíðina.“ Þegar Elín var búin að vera í sama grunnskólanum í þrjú ár spurði hún foreldra sína hvort hún gæti ekki fengið að skipta um skóla, hún væri búin að vera svo lengi í sama skólanum. Nú hefur hún þó skotið rótum í miðbæ Reykjavíkur og búið þar í nær tvo áratugi með einhverjum hléum þó. Elín lærði kvikmyndagerð í Kaupmannahöfn en áður en námið hófst bjó hún í borginni og sá aug- lýsingu í blaði þar sem óskað var eftir barþjónum í Vínarborg. Hún sótti um og fór í atvinnuviðtal hjá umboðsmanni á kaffihúsi í Kaup- mannahöfn. „Mér fannst skrítið að fara í atvinnuviðtal á kaffihúsi og að það skyldi ekki vera nein eiginleg umboðsskrifstofa á bak við auglýsinguna en ævintýraþráin ákvað að loka á það.“ Svo hélt Elín til Vínarborgar með danskri vinkonu sinni og á flugvellinum tóku á móti þeim tveir vígalegir menn með varðhunda. Þeim var fylgt í skuggalegt hverfi þar sem vændiskonur voru úti á götum. „Á byggingunum voru stórar myndir af nöktum konum svo mér fannst þetta mjög skrítið. Við fengum íbúð og var svo fylgt í vinnuna sem við héldum að væri bar en þá var það vændishús. Við fórum inn í búningsklefa þar sem var stimpil- klukka. Þarna voru margar naktar konur og allt í rauðu flaueli.“ Elínu brá mjög en ákvað þó að halda ró sinni og bað um að fá að fylgjast með starfseminni fyrsta kvöldið. Hálftíma seinna fengu þær að fara heim í íbúðina gegn því að koma aftur næsta dag „í vinnuna“. „Sem betur fer var enginn vörður í íbúðinni okkar svo við gátum pakkað niður og drifið okkur í burtu. Við vorum orðnar svangar og keyptum okkur pulsu og pulsusalinn redd- aði okkur vinnu á bar. Eigendur vændishúss- ins leituðu okkur uppi á þeim bar og þá urðum við hræddar og var ráðlagt af samstarfs- fólki okkar á barnum að yfirgefa Vínarborg hið snarasta sem við auðvi- tað gerðum.“ Á þessum tíma hafði Elín aldrei heyrt af mansali né að vændissalar fyndu fólk með þessum hætti. „Þetta hefði getað orðið miklu verra. Ég var ung og vitlaus á þessum tíma og þá tíðkaðist að kornungar stelpur færu til útlanda að vinna á börum. Það er sem betur fer breytt og börn fá að vera börn lengur í dag.“ Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is Ef fólk fer í heimsókn á annað borð á geðdeild, mætir það ekki með blóm. Það þykir öðru- vísi en önn- ur veikindi. 28 fjölmiðlar Helgin 6.-8. september 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.