Fréttatíminn - 06.09.2013, Blaðsíða 36
Vipppútt Víti
36 golf Helgin 6.-8 september 2013
Golf Góð ráð
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI
Þrjú bestu ráð
Íslandsmeistarans
Hvernig er best að rífa sig upp úr meðalmennskunni og verða
góður í golfi, svona sjónvarpsgóður? Ein leið er að spyrja Birgi
Leif Hafþórsson. Hann ætti að vita aðeins meira um það en
meðalmaðurinn. Enda þrautþjálfaður atvinnumaður sem endur-
heimti Íslandsmeistaratitilinn í höggleik fyrr í sumar.
„Það besta sem byrj-
endur jafnt sem lengra
komnir geta gert er að
finna taktinn í pútt-
unum. Þar er endur-
tekningin sem skapar
meistarann,“ segir
Birgir. Hann segir pútt-
in jafnframt vera þann
hluta leiksins þar sem
hann sjálfur getur bætt
sinn leik hvað mest.
„Þrípútt eyðileggja
hringi. Takturinn í
strokunni skiptir gríð-
arlega miklu máli og
mikilvægt er að finna
hvernig boltinn snertir
pútterinn alltaf eins. Því
góður taktur þýðir betri
lengdarstjórn un í löngu
púttunum og meiri
ákveðni í þeim stuttu.“
Aðal Birgis eru upphafshöggin og hann segir það
gríðarlega mikilvægt að halda boltanum í leik eftir
upphafshöggið. „Víti kostar tvö högg og með tvö, þrjú
slík á hring er erfitt að koma í hús á góðu skori.“ Aftur
talar Birgir um að finna taktinn og sveifla alltaf eins.
„Leikskipulag hvers og eins er mismunandi og til að ná
árangri er oft betra að geyma dræverinn í pokanum og
taka járn af teig.“ Á hættulegri par 5 holu þar sem erfitt
er að komast inn á flöt í tveimur höggum er því oft betra
að teygja sig eftir öruggu kylfunni og vita líka hvert er
best að missa höggið. Því það gerist jú stundum.
Birgir Leifur segir mikilvægasta atriðið til þess að
ná árangri í golfi sé stutta spilið. „Stuttu höggin
og vippin sem tekin eru innan við 50 metra frá hol-
unni.“ Þar sé best fyrir helgarkylfinginn að sækja
högg. „Eitt vipp og tvö pútt
sigra alltaf tvö vipp og tvö
pútt.“ Allir ættu því að læra
eitt gott vipp og nota alltaf
sömu hreyfinguna. Skipta
bara um kylfu eftir því sem
nær dregur holunni. Í þriðja
sinn talar Birgir um taktinn
í golfsveiflunni og mikil-
vægi þess að slá alltaf eins
og þekkja hvað hver kylfa
dregur á flugi. „Kylfingar
með yfir 15 í forgjöf ættu
svo að forðast flókin högg
og einbeita sér meira að því
að einfalda leikinn,“ segir Íslandsmeistarinn og
kveður með því að ekki skemmi svo fyrir að fara
til golfkennara. Þeir vinni með það sem fyrir er og
bæta við eftir því sem færni eykst. Koma kannski
ekki öllum í sjónvarpið en kannski á Youtube.