Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.09.2013, Qupperneq 48

Fréttatíminn - 06.09.2013, Qupperneq 48
Helgin 6.-8. september 201348 tíska  Viðtal krúttleg og töff Klárlega draumastarfið Þ etta byrjaði allt þegar ég var á leiðinni í fæðingarorlof haustið 2008. Þar sem ég var að fara vera mikið heimavið ákvað ég að prófa að selja nokkrar flíkur á netinu svona til að hafa eitthvað aukalega að dunda við. Ég fann að þetta var eitthvað sem mér fannst mjög skemmtilegt og ákvað að prófa að taka þetta lengra og árið 2009 opnaði ég netverslunina shopcouture.is. Þá var ég líka komin í lítið skrifstofurými á Suðurlandsbraut þar sem ég tók á móti kúnnum. Jólin 2009 byrjaði ég að selja e.l.f. snyrtivörur, fyrst í netverslun Shop Couture en færði það svo yfir í eyeslipsface.is þar sem ég er eingöngu með snyrtivörurnar. Verslunin Shop Couture er nú komin í rúmgott húsnæði í Síðumúla 34 og þar starfa þrír starfsmenn fyrir utan mig. Ég hef því gefið mér góðan tíma í að byggja upp reksturinn til að sjá hvað virkar og hvað virkar ekki. Ég setti mér líka snemma það markmið að taka ekki lán sem þýðir ég geti tekið minni áhættu og hef minna svigrúm og að byggja upp reksturinn hefur því tekið tíma. En mér persónulega finnst það mjög skemmtileg leið og ávinn- ingurinn er mun ánægjulegri. Ég hef rosalega gaman af rekstrinum og þetta er klálega draumastarfið.“ Hvað var erfiðast? „Það var klárlega að þurfa vera mjög þolinmóð og ekki gefast upp. Því þetta er erfiður bransi svo það er auðvelt að gefast bara upp. En ég hef alltaf haft mikla trú á mér í þessu starfi og finnst það eiga vel við mig og er mjög fókuseruð á að láta þetta ganga upp. Ég hef auðvitað gert mörg mistök því það er margt sem ég hef þurft að læra algjörlega upp á eigin spýtur. En ég held að það sé mjög mikilvægt að gera ráð fyrir mistökunum, því mistökin eru mikilvæg og veita manni góða reynslu.“ Hvað var skemmtilegast? „Það er svo margt skemmtilegt og ég er búin að læra svo margt nýtt. En ætli það skemmtilegasta sé ekki það þegar maður er búinn að gefa sér svona góðan tíma í eitthvað og leggja sig alla fram að uppskera vel. Því það er þá þess virði að hafa lagt svona mikið á sig og ekki endilega hafa farið auðveldustu leiðina. Mér finnst reksturinn mjög skemmtilegur og mér finnst skemmtilegt að mæta í vinnunna á hverjum einasta degi. “ Hvaðan kemur nafnið Shop Couture? „Ég lagði í raun mjög lítið í nafnið á sínum tíma, en þegar ég var að byrja selja flíkur á netinu þá vantaði mig bara eitthvað nafn og mér hefur alltaf fundist couture vera flott og því varð það fyrir valinu. Ég skellti síðan shop fyrir framan það til að tilgreina að þetta væri verslun. Svo vatt þetta upp á sig og fyrr en varði var ég komin með fyrirtæki og mér fannst þá of seint að breyta nafninu. Því ég hefði eflaust valið auðveldara nafn í dag.“ Einhver ráð fyrir þá sem eiga sér draum? „Já, ef þú átt þér draum þá er því ekkert til fyrirstöðu að hann geti ræst. Ef maður bara trúir nógu mikið þá allt hægt. Ef um draum er að ræða er þetta væntan- lega eitthvað sem þú hefur ánægju af og leiðin að markmiðinu ætti því að vera ánægjuleg og skemmti- leg, og tímans og fyrirhafnarinnar virði. Best er að taka lítil skref í einu og vanda sig, setja sér mörg lítil markmið í átt að drauminum og gefa sér tíma til þess að ná þeim.“ Sigrún Ásgeirsdóttir sigrun@frettatiminn.is Aldur: 29 Sambandsstaða: Einhleyp Börn: Ísabella tæplega 5 ára og Dagbjört rúmlega 3 ára Gæludýr: Nei Borg/bær: Fædd og uppalin á Hvammstanga en bý núna í Reykjavík Menntun: Lífeindafræði BS.c. Starf: Eigandi verslunar- innar Shop Couture og netverslananna shopcouture. is og eyeslipsface.is Stíll: Ég myndi segja að hann væri nokkuð breyti- legur og fjölbreyttur og ég óhrædd við liti og munstur. Ég á til dæmis marga litríka og munstraða kjóla í vintage stíl og er einnig mjög hrifin af bóhem og retro stíl. Uppháhalds flík: Það er erfitt að velja á milli, en ég er mikil kjóla manneskja og á marga fallega sem ég held upp á og klæðist helst kjólum daglega. Tískan í dag: Mér finnst skemmtilegt að sjá hvað munstur og litir hafa verið áberandi undanfarið. Einnig finnst mér gaman hvað tískan er afslöppuð og þægileg og kvenleg snið. Ég er líka mjög hrifin af stórum og áberandi fylgihlutum. Búðir: Mín eigin verslun og erlendar netverslanir. Litur: Enginn einn uppáhalds litur, en ég er yfirhöfuð mjög litaglöð manneskja Kaffihús/veitingastaður: Te & Kaffi, suzushii og Vegamót. Bar/skemmtistaður: Ég á mér í raun engan uppáhalds, en hef þó mun meira gaman af pöbbarölti heldur en skemmtistöð- unum. Annars fer það líka bara eftir tilefni og félags- skapnum hverju sinni. Samfélagsmiðilar: Facebook, Tumblr, Bloglovin og Instagram Staður á Íslandi: Ólafs- fjörður þar sem amma mín og afi bjuggu, en þaðan á ég svo margar yndislegar minningar. Staður erlendis: Cape Town (Höfðaborg) í Suður Afríku. Eyrún Ösp Hauksdóttir eigandi Shop Couture. Mynd og förðun/Ástrós Erla Benediktsdóttir Eyrún Ösp Hauksdóttir er 29 ára lífeindafræðingur frá Hvamstanga og eigandi tískuver- slunarinnar Shop Couture. Shop Couture er verslun og netverslun sem selur skemmti- lega blöndu af krúttlegum og töffaralegum fötum og skartgripum. Við báðum Eyrúnu að segja okkur frá því hvernig hún fór úr fæðingarorlofi yfir í verslunarrekstur. Bæjarlind 6, sími 554 7030 www.rita.is Ríta tískuverslun Full búð af nýjum haustvörum Verð kr. 7.900.- Str. M-XXXL Verð kr. 7.900.- Str. M-XXXL Hugsaðu vel um fæturna Í meira en hálfa öld hafa miljónir manna um allan heim notað BIRKENSTOCK sér til heilsubótar. Hvað um þig? Sími: 551 2070 Opið má. -fö. 10 - 18, lokað á laugardögum í sumar. Góð þjónusta fagleg ráðgjöf. Gerð Arisona Stærðir: 35 - 48 Verð: 12.885.- www.gullsmidjan.is Smá sýnishorn af úrvalinu hjá Shop Couture. Myndir og förðun/Ástrós Erla Benediktsdóttir förðunarfræðingur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.