Fréttatíminn - 06.09.2013, Blaðsíða 56
56 bíó Helgin 6.-8. september 2013
Lukas
Moo-
dysson er
þekktastur
þessara
gesta á
Íslandi en
myndir
hans hafa
verið
sýndar
hér við
talsverðar
vinsældir.
RIFF LIstRæn sýn LeIkstjóRa í bRennIdepLI
a lþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykja-vík hefst í tíunda sinn undir lok mánaðarins. Venju samkvæmt verður
mikið um dýrðir, skemmtilegar uppákomur og
að sjálfsögðu boðið upp á slíkt úrval áhuga-
verðra kvikmynda frá ýmsum heimshornum
að í raun er full vinna að reyna að komast yfir
brot af því sem í boði er.
RIFF fagnar tíu ára afmælinu með því að
bjóða til landsins þremur góðum heiðurs-
gestum, leikstjórunum Lukas Moodysson,
Laurent Cantet og James Gray. Leikstjórarnir
verða heiðraðir á hátíðinni „fyrir framúrskar-
andi listfengi“ í kvikmyndum sínum auk
þess sem þeir verða allir viðstaddir sýningar
á verkum sínum og munu sitja fyrir svörum
áhorfenda.
Bakgrunnur leikstjóranna er um margt ólík-
ur. Moodysson er Svíi, Cantet er franskur og
Gray kemur frá Bandaríkjunum en Hrönn Mar-
ínósdóttir, stjórnandi RIFF, segir þá eiga það
sameiginlegt að hafa mjög skýra listræna sýn.
Lukas Moodysson er þekktastur þessara
gesta á Íslandi en myndir hans hafa verið
sýndar hér við talsverðar vinsældir og þá
einna helst hin dásamlega hippamynd Tilsam-
mans og mansalshryllingurinn Lilya 4-Ever
sem lætur engan ósnortinn.
Moodysson, sem er fæddur 1969, sló í gegn
með fyrstu mynd sinni, lesbíska unglinga-
dramanu Fucking Åmål, 1998 og fylgdi henni
eftir með Tilsammans og Lilya 4-Ever. Síðan
ákvað hann að snúa blaðinu við og gera mynd
sem fældi áhorfendur beinlínis frá og honum
tókst það heldur betur með hinni ógeðslegu
Ett hål i mitt hjärta (2004) sem deildi harka-
lega á þá brenglun sem liggur til grundvallar
sóðalegustu kimum klámbransans.
Moodysson er þekktur talsmaður vinstri-
armsins og femínista í stjórnmálum en er jafn-
framt kristinn og innilegur trúmaður í þeim
efnum. Allir þessir eiginlegar hafa verið að
koma betur og betur fram í verkum hans.
Lukas mætir með glænýja mynd í fartesk-
inu, hina krúttlegu Vi är bäst!
Laurent Cantet fæddist árið 1961. Hann
þótti sýna með fyrstu þremur myndum sínum,
Mannauður (Ressources humaines) 1999,
Útrunninn (L'Emploi du temps) 2001 og Á leið
suður (Vers le sud) 2005, að á ferðinni væri
hæfur og áhugaverður leikstjóri. Talað var um
hann sem svar Frakka við Ken Loach. Hann
væri knúinn af samvisku sinni en tæki um leið
tók pólitískar skuldbindingar sínar léttvægt.
Fjórða mynd Laurents, Milli múra (Entre
les murs), hlaut Gullpálmann á Cannes árið
2008 og þar með skaust Laurent með hraði í
úrvalsdeild evrópskra leikstjóra.
RIFF sýnir nýjustu mynd Cantets og þá
fyrstu sem hann gerir á ensku, Tófuljómi –
Játningar stelpugengis (Foxfire – Confessions
of a Girl Gang), Vers le sud og Ressources
humaines.
James Gray fæddist í New York árið 1969
og ólst upp í Queens. Glæpir, innflytendur
og NewYork borg eru síendurtekin minni í
myndum hans.
Fyrsta mynd hans, Little Odessa, kom út
1994 og fékk góðar viðtökur. Næsta mynd
hans, The Yards, var valin í keppnina á kvik-
myndahátíðinni í Cannes árið 2000, sem og
We Own the Night árið 2007. Í fjórðu mynd
James, hinni Cesars-tilnefndu Two Lovers,
vann hann í þriðja sinn með leikaranum Joa-
quin Phoenix. Stjörnurnar Gwyneth Paltrow
og Isabella Rossellini léku einnig í þessu
rómantíska drama, sem gerist í Brooklyn
hverfinu.
RIFF sýnir The Immigrant, Two Lovers og
Little Odessa.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, RIFF, verður haldin í tíunda sinn dagana 26. september
til 6. október. Hátíðin hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn helsti menningarviðburður ársins
í borginni og hefur vakið mikla athygli víða um lönd. Þessum tímamótum verður fagnað sérstak-
lega með því að bjóða leikstjórunum Lukas Moodysson, Laurent Cantet og James Gray á hátíðina
þar sem þeir verða heiðraðir „fyrir framúrskarandi listfengi“.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Heiðursgestirnir
Moodysson, Cantet og Gray
James Gray er einn þriggja
áhugaverðra leikstjóra sem
verða heiðraðir fyrir framúr-
skarandi listfengi á RIFF. Hann
vakti fyrst athygli með sinni
fyrstu mynd, Little Odessa, en
innflytjendur eru honum sígilt
yrkisefni. „Líklegast er ég með
þráhyggju gagnvart stéttskipt-
ingu. Það kemur líklega til af
því að mér leið eins og úrhraki.
Þegar maður elst upp verandi
bjánalegur krakkavitleysingur í
frekar miklu verkamannahverfi
sem er við hliðina á mjög auð-
ugum nafla alheimsins þá líður
manni eins og utangarðsmanni
og fær það á heilann.“
bíódómuR the act oF kILLIng
Böðlar bregða á leik
Í kjölfar misheppnaðs valdaráns í
Indónesíu árið 1965 hófst blóðug
þjóðernishreinsun þar sem stjórnar-
andstæðingum var miskunnarlaust
slátrað undir því yfirskyni að þar væru
kommúnistar á ferð.
Leikstjórinn Joshua Oppenheimer
eyddi átta árum með eftirlif-
endum hreinsananna sem og með-
limum dauðasveita stjórnarinnar með
myndavélina á lofti. Niðurstaðan er
þessi stórmerkilega og áhrifaríka
heimildarmynd sem veitir einstaka og
um leið óvenjulega sýn ofan í dýpstu
myrkur mannssálarinnar.
Oppenheimer valdi þá frumlegu
leið að bjóða gömlu böðlunum að
endurskapa voðaverk sín á filmu og
nota hvaða aðferðir sem þá helst
langaði til í frásögnum sínum. Grobb
og stærilæti eru ríkur þáttur í fari
skúrkanna og með því að bjóða þeim
að gera bíó magnar Oppenheimer upp
í þeim belginginn og fær þá til þess að
segja miklu meira en þeir hefðu ef til
vill annars gert.
Myndin hverfist að mestu um böð-
ulinn Anwar Congo sem talinn er hafa
þúsund mannslíf á samviskunni. Hann
er merkilega brattur og ánægður með
afrek sín þótt samviskan sé ekki alveg
róleg. Vægast sagt sérkennilegur
og opinskár maður sem sýnir á sér
skuggalegar hliðar í bíóbrölti sínu.
Sviðsetningar böðlanna eru svo
hallærislegar að þær eru nánast
gróteskar á köflum. Slagkrafturinn í
þeim er samt magnaður og þótt þær
virki sem spéspegill hallærislegra
og heimskra gamalmenna á tjaldinu
hittir sú nístandi þjáning og viðbjóður
sem býr þeim að baki áhorfandann í
hjartastað.
En sjón er sögu ríkari. The Act of
Killing er mynd sem maður verður að
upplifa og allir ættu að sjá. Einhver
merkilegasta heimildarmynd sem
ratað hefur í bíó á Íslandi lengi. -ÞÞ
Sérstök sýning verður á lengri leikstjóraútgáfu The Act of Killing í Bíó Paradís klukkan 18 á
sunnudaginn. Að sýningu lokinni situr leikstjórinn fyrir svörum áhorfenda í gegnum Skype.
Hvalaskoðun
HARPA
EXPO SKÁLINN
2012-201320112010
SJANGHÆ - FRANKFURT - REYKJAVÍK
EXPO SKÁLINN Á MIÐBAKKA
360°G R Á Ð U K V I K M Y N D
ÍSLAND Í EINSTÖKU LJÓSI
3 MILLJÓNIR GESTA
Kauptu mida og fádu þér- -
-
-
rjúkandi heitan espresso í bodi okkar
Blanda sem getur ekki klikkad