Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.09.2013, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 06.09.2013, Blaðsíða 60
 Í takt við tÍmann Rakel mjöll leifsdóttiR Hrædd um að sogast inn í Snapchat-svarthol Rakel Mjöll Leifsdóttir er 23 ára og stundar nám í myndlist og tónsmíðum í listaháskóla í Brighton. Hún söng meðal annars með Útidúr og Sykur áður en hún fór út en nú syngur hún í hljómsveitinni Halleluwah með Sölva Blöndal. Rakel gengur ekki í buxum. Staðalbúnaður Ég er mjög hrifin af tímabilum og karakterum í fatastíl. Eina vikuna er það seventís og aðra sixtís og einn daginn kannski Brigitte Bardot. Stundum tekst það og stundum ekki. Ég fylgi því ekki tískustraumum mikið en ég er voða hrifin af íslenskri hönnun og reyni að kaupa sem mest af henni. Úti í Brighton er mjög mikið af vintage-mörk- uðum og ég á það til að missa mig algerlega á þeim. Ég geng ekki í buxum en ég er alltaf á hælum af því mér finnst ég vera svo lágvaxin. Mér líður rosa vel á hælum. Og mér finnst hattar mjög skemmtilegir. Hugbúnaður Ég fer oftast á Kaffibarinn þegar ég fer út að skemmta mér. Ég var byrjuð að svindla mér þar inn fyrir tvítugt og nú þegar ég er 23 ára líður mér eins og ég eigi heima þar. Vinir mínir reka Harlem og það er ótrúlega gam- an þar líka, gaman að dansa. Svo flytja þau líka inn Club-Mate og selja og það er mjög stór plús. Ég er fastagestur á Tíu dropum, þar er gott að læra, hugsa og hitta vini. Ég hef oft reynt að stunda líkamsrækt en ég enda alltaf á því að fara bara í sund. Það er best. Annars labba ég allt sem ég fer eða hjóla. Ég horfi voða lítið á sjónvarp en hef gam- an af að fara í bíó. Í Brighton á ég heima á móti elsta kvik- myndahúsi Bretlands sem er frá um 1890. Þar eru alls konar sýningar sem gaman er að fara á, sinfóníuhljómsveit að spila yfir gamlar David Lynch-myndir og fleira. Mér finnst líka mjög gaman að fara í Bíó Paradís. Vélbúnaður Ég kem úr ætt listamanna. Pabbi var „rebell“ og ákvað að verða tölvuforritari við litla hrifningu foreldra sinna. Við börnin héldum okkur bara frá tölvunum og „rebelumst“ á móti honum. Ég hef samt gaman af að nördast í hljóðum í tölvum og að vinna í klippiforritum. Ég á snjallsíma og nota Facebook. En ég þori ekki að prófa Snapchat og öll þessi forrit, ég er hrædd um að sökkva inn í svarthol. Aukabúnaður Ég er ekki dugleg að elda og borða mikið úti. Ég reyni að borða hollt, sérstaklega í Bret- landi þar sem allt er hrikalega óhollt og maður þarf að passa sig. Hér heima er gott að komast í fisk. Mömmumatur er í uppáhaldi en mér finnst líka gott að fara á Serrano, Gló og Grænan kost. Ég ólst upp í Kaliforníu og það er einn af mínum uppáhalds stöðum. Planið er að fara þangað með fjölskyldunni á næsta ári. Berlín er líka í uppáhaldi, hún hefur verið mitt athvarf frá því ég var lítil og ég fer alltaf þangað einu sinni eða tvisvar á ári. Ég er á leiðinni í lok september í stutt frí áður en skólinn byrjar aftur. Það sem stendur upp úr á Íslandi þegar maður hefur búið úti er fiskurinn, sund- laugarnar og að vera með vinum sínum. Það er búið að vera frábært að vera á Íslandi í sumar og sjá hvað vinir manns eru að gera stórkostlega hluti. Rakel Mjöll skipar hljómsveitina Halleluwah með Sölva Blöndal. Fyrsta plata sveitarinnar kemur út á næstunni og sveitin spilar á tónlistarhátíðunum Airwaves og Sónar. Ljósmynd/Hari Tekur mest 7 kg. Orkuflokkur A+++. Hámarksvinduhraði 1400 sn./mín. VarioPerfect: Hægt að stytta tímann eða spara orku á þvottakerfum án þess að það komi niður á þvottahæfni. Þú uppskerð allt að 60% tímasparnað eða 20% orkusparnað með því að nota VarioPerfect-aðgerðina. Með sama góða árangrinum: Tandurhreinum þvotti. WAE 28271SN Opið virka daga frá kl. 11 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 16 Fullt verð: 149.900 kr. Tilboð: 119.900 kr. Bosch, mest seldu heimilistækin í Evrópu. Veldu hraðþvott eða orkusparnað. Og alltaf tandurhreinan þvott. Veldu Bosch þvottavél með VarioPerfect.  appafenguR Dr. Panda, Teach Me Dr. Panda er heldur vinsæll á mínu heimili. Tæplega fjögurra ára dóttirin hjálpar Dr. Panda að lækna sjúklinga í Hospital-appinu og hún að- stoðar hann við að elda mat og ganga frá í Res- taurant-appinu. Nýjasta appið í spjaldtölvunni okkar er Dr. Panda, Teach Me. Þar er púslað, farið yfir hvað litirnir heita, bókstafir, tölu- stafir, minnisleikir og fleira. Það er ekki svo gott að þetta sé allt á íslensku en þó er hægt að velja um sjö tungumál, sem er heldur sjaldgæft hefur mér sýnst þegar kemur að barna-öppum. En það er líka einn af þeim kostum sem appið prýðir, börn eiga að geta lært sitthvað í þessum sjö tungumálum með því að nota það. Þannig kemur ekki að sök þó dóttir mín kunni aðeins stök orð í ensku fyrir. Einn leikurinn felst í að velja liti, þar birtast kannski sex fiðrildi í ólíkum litum. Dr. Panda segir að nú skuli velja „red“ og orðið red birtist í talbólu, í rauðum lit. Ég leit af barninu í eitt augnablik og þegar ég kom aftur var appið stillt á kínversku, dóttirin þverneitaði að leyfa mér að skipta um tungu- mál og hún dundaði sér í nokkra stund með allar talaðar leiðbeiningar á kínversku. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is 60 dægurmál Helgin 6.-8. september 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.